Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 33
2.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
* Þetta snýst ekki um að binda vonirvið tæknina, þetta snýst um aðbinda vonir við fólkið.
Steve Jobs
Google er í miðri lagadeilu við frönsk yfirvöld um
gagnavörslu. Málið snýst um hversu langt evrópski
„rétturinn til að gleymast“ nær.
Evrópskir dómstólar úrskurðuðu á síðasta ári að
samkvæmt „réttinum til þess að gleymast“, ættu þeir
þegnar sem vildu, réttmæta kröfu á að láta fjarlægja sig
og upplýsingar varðandi sig af listum leitarvéla. Var
þetta ekki síst hugsað í tilfelli neyðarlegra eða niðrandi
upplýsinga sem væru á evrópskum leitarvélum.
Google varð við beiðninni og gerði milljónir síðna
óaðgengilegar á evrópskum leitarvélum eftir að not-
endur báðu fyrirtækið um það, að því tilskildu að upp-
lýsingarnar féllu undir þann flokk að vera „ófullnægj-
andi, óviðkomandi, ekki lengur viðkomandi, ofaukið,
eða ekki almenningi til hagsbóta.“
CNIL í Frakklandi espar Google
Google heldur því fram að dómurinn nái bara til léna
sem heyra undir Evrópusvæðið, en CNIL (Commission
Nationale de l’Informatique et des Libertés) í Frakk-
landi hefur haldið því fram að úrskurðurinn eigi að ná til
allra landa. Þessu andmælti Google síðasta fimmtudag
og bað CNIL að draga fullyrðinguna til baka. Neyðist
Google til að verða við úrskurði CNIL þýðir það að
leitarvélarnar þyrftu ekki aðeins að taka upplýsingar af
leitarsvæðum á borð við google.co.uk, heldur einnig af
öðrum lénssvæðum, til að mynda google.com (Banda-
ríkjunum), google.com.co.in (Indlandi), google.com-
.co.ca (Kanada) og google.com.co.br (Brasilíu).
Þrátt fyrir að upplýsingar séu fjarlægðar undir því yf-
irskini að sá er málið snertir hafi „réttinn til að gleym-
ast“ þýðir það ekki að upplýsingarnar séu teknar af
vefnum, né netinu í heild sinni. Það merkir eingöngu að
upplýsingarnar séu ekki innan handar fyrir ákveðinn
hóp gegnum einfalda leit með leitarvélum, líkt og Go-
ogle.
Google sendir frá sér tilkynningu síðasta fimmtudag
að ekkert eitt land ætti að hafa úrslitavald yfir því hvaða
upplýsingar fólk í öðrum löndum hefði aðgang að.
CNIL hefur aftur á móti svarað því til að sum andmæli
Google komi málinu hreint ekki við og það gæti tekið
allt að tvo mánuði að skoða áfrýjun Google áður en
sambandið ákveður hvort það eigi að draga úrskurð
sinn til baka, eða halda áfram í sókn.
GLEYM MÉR EI
Google og franska ríkið deila
um „réttinn til að gleymast“
Google og franskir embættismenn eru ekki sammála
um upplýsingar. Google hefur áfrýjað úrskurði.
Þegar septembermánuður gengur
í garð á tölvurisinn Apple það
allajafna til að beina öllum sviðs-
ljósum á nýjasta iPhone-snjallsím-
ann. Þá er vaninn að greina frá
öllum þeim undursamlegu nýju
tæknibrellum sem síminn hefur
uppi í erminni. Snjallsíminn verður
hinsvegar að öllum líkindum ekki
eina græjan sem Apple kynnir til
leiks í haust.
Bandaríski tölvurisinn ætlar
nefnilega að svipta hulunni af nýrri
útgáfu af sjónvarpsgræju sinni,
Apple TV. Í tilkynningu segir að
nýja útgáfa græjunnar muni hafa til
að bera stærra geymslupláss,
hraðari örgjörva, nýja og betr-
umbætta fjarstýringu og stýrikerfi
þar sem hægt verður að notast
við raddstýringu.
Tilkynningin átti upphaflega að
líta dagsins ljós fyrr í sumar á al-
þjóðlegri ráðstefnu á vegum
Apple, en við það tilefni tilkynnti
tölvurisinn þess í stað nýja tón-
listarveitu, Apple Music, til leiks.
Stóra spurningin að svo stöddu
er hinsvegar sú hvort hið nýja
Apple TV muni einungis fela í sér
sama úrval sjónvarpsefnis og hef-
ur fram til þessa verið, en þar má
nefna þjónustu á borð við þá sem
er í boði hjá Netflix og Hulu, eða
hvort kaup á hinni nýju græju
muni einnig fela í sér aðgang að
dagskrárbundnum sjónvarps-
stöðvum. Spurning sem íslenskir
neytendur geta velt fyrir sér er
hvaða áhrif það kynni að hafa hér
á landi, ef bandarískar sjónvarps-
stöðvar væru aðgengilegar með
því einu að festa kaup á Apple
TV.
Splunkunýtt Apple
TV á döfinni
Nýjan útgáfan mun bera
stærra geymslupláss,
hraðari örgjöva og fleira.
TÖLVURISINN MEÐ SÍNA GRÆJUFJÖLD
Vísindamenn hafa nú lagt lokahönd
á agnarsmátt vélmenni sem getur
hafist við á yfirborði vatns og jafn-
vel stokkið af því. Innblástur er
óneitanlega fenginn frá náttúrunni,
en vélmennið notast við sömu
tækni og ýmsar tegundir skordýra
sem státa af sama hæfileika.
Vélmenni sem stekkur á vatni
SMÁRALIND • 2 HÆÐ
Verð 26.995
Verð 19.995
LYTDS®
VANDAÐIR ÍTALSKIR GÖNGU-
OG ÚTIVISTARSKÓR FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
Motorola kynnir nýja vöru úr
heyrnartóladeildinni. Tvær nýjar
tegundir ef heyrnartólum voru að
líta dagsins ljós. Annars vegar eru
það tappaheyrnartól sem eru með
innbyggða Surround-eiginleika.
Hins vegar eru það heyrnartól sem
þeir kalla Puls og eru í þessum
heyrnarhlífastíl sem gott er að
hjóla með á veturna. Bæði heyrn-
artólin keyra á blátannartækni og
því laus við allt vesenið sem fylgir
snúrum.
Að fagurfræðilegum stöðlum
slepptum snýst val neytandans líka
um endingu. Kjósi hann að fjár-
festa í Púls-heyrnartólunum held-
ur Motorola því fram að hægt sé
að hlusta á tónlist í 18 tíma sam-
fleytt á fullri hleðslu. Aftur á móti
styttist líftími rafhlöðunnar niður í
12 stundir velji maður að næla sér
í tappaheyrnartólin. En þau eru að
vísu, eftir því sem Motorola segir,
vatnsheld í kaupbæti.
Hvort tveggja er fáanlegt á net-
inu í dag og kostar á milli 8.000 og
9.500 kr.
NÝ TÓL FRÁ MOTOROLA
Heyrðu með blátönn
Tappaheyrnartól eru
meðfærileg en hlífarnar
ylja eyrunum.