Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015 Heilsa og hreyfing Niðurstöðurnar komu rannsakendum nokkuð á óvart, því algengt er að karlmenn lýsi fæðingu fyrsta barns síns sem eins konar „lykilaugnabliki“ í lífi þeirra, þeir finna að þeir vilja vera til staðar fyrir barn sitt í framtíðinni og taka ákvörðun um að breyta lifnaðar- háttum sínum til batnaðar, hafi eitthvað vant- að þar upp á. Þannig strengja sumir karl- menn þess heit að hætta að reykja, draga úr drykkju, byrja að fara út að hlaupa og borða hollari mat eftir fæðingu frumburðarins. Þessi heit virðast þó ekki skila sér sem skyldi og er auðvelt að sjá fyrir sér mögulegar ástæður þess. Mikil vinna fylgir ungbarni, ekki síst fyrsta barni, og ekki víst að mikill tími gefist til hlaupatúra. Svefnleysi og þreyta geta líka stuðlað að þyngdaraukningunni. Breytingar á líkama og heilsu kvenna á með- an á meðgöngu stendur og eftir barnsburð hafa mikið verið rannsakaðar og ræddar síð- ustu ár. Er þar til dæmis rætt um þyngdar- aukningu kvenna á meðgöngu. Breytingar á heilsu feðra hafa hins vegar nær enga athygli fengið, en í sumar var birt rannsókn er tók til 10.253 karlmanna og athugaði breytingar á BMI-stuðli þeirra í tengslum við fæðingu fyrsta barns. Rannsóknin var birt í tímaritinu American Journal of Men’s Health. Nið- urstöður rannsóknarinnar benda til þess að mæður séu ekki einar um að þyngjast á meðgöngu, því þeir karlmenn sem eignast höfðu eitt barn voru að meðaltali tæpum tveimur kílóum þyngri en barnlausir karl- menn. HEILSA NÝBAKAÐRA FEÐRA Feður þyngjast líka í kjölfar fæðingar Lítið hefur verið fjallað um heilsu karlmanna í kjölfar barneigna en skv. nýrri rannsókn þyngjast þeir að meðaltali um tvö kíló eftir fæðingu fyrsta barns, í samanburði við barnlausa karlmenn. Morgunblaðið/Eggert Seven Minute Workout Snyrtilegt og fallega hannað app sem setur fram stuttar en laggóðar æfingar. Notandinn getur sjálf- ur stillt appið eftir því hvaða líkamshluta hann vill þjálfa hverju sinni. Einnig er hægt að stilla lengd æfinganna, frá rúmum sjö mínútum í tæpar fjörutíu. Appið er því tilvalið fyrir þá sem hafa lítinn tíma en vilja nýta hann vel – sem sagt flesta. MapMyRun Þetta app er líklega ekki nýtt fyrir marga en er þó vel að því komið að vera nefnt á ný. Appið heldur utan um svo til alla hreyfingu notandans, mælir vega- lengdir, áætlar brenndan hitaeiningafjölda, hraða og svo mætti lengi áfram telja. Einnig má vista leiðir í appinu og nota aftur – upplagt fyrir þá sem hlaupa alltaf sömu leiðina. Einu sinni í viku fær notandinn síðan tölvupóst sem inniheldur tölfræði yfir æfingar hans þá vikuna. Fitnet Við eigum öll a.m.k. einn vin eða vinkonu sem þreytist ekki á því að monta sig af ræktardugnaði eða hollum prótín- þeytingum á Facebook og Instagram. Kannski ert þú sá vinur sjálf/ur – og þá hef- urðu líklega veitt því athygli að ekki hafa allir jafngaman af slíkum stöðuuppfærslum. Nú er kominn sérstakur samfélagsmiðill fyrir mont af þessu tagi – Fitnet – og þar er hægt að monta sig að vild, í friði fyrir úrillum só- fakartöflum. Pump up Þetta app gengur skrefinu lengra í nýtingu tækninnar. Notandinn velur sér myndband með æfingum sem hann horf- ir á og framkvæmir æfingarnar um leið. Myndavélin á síma eða spjaldtölvu notand- ans fylgist síðan með honum á meðan hann spriklar og gefur honum endurgjöf fyrir frammistöðuna jafn- óðum! Substitutions Ef þú ert með ofnæmi fyr- ir einhverjum fæðutegundum, vilt forðast þær heilsu þinnar vegna eða finnst þær hreinlega vondar, þá gæti þetta app komið þér að góðum notum. Appið leggur fram til- lögur að fæðutegundum sem komið gætu í staðinn fyrir þá sem notandinn vill forðast. Noom Coach Matardagbækur hafa sann- arlega sýnt fram á ágæti sitt, líkt og þeir vita sem hafa haldið slíka dagbók að ein- hverju marki. Það getur hins vegar verið flókið að reikna sjálfur út næringu í hverj- um skammti og einnig er hætt við því að minnisbókin gleymist í amstri dagsins. Noom Coach leysir þetta en appið er matardagbók fyrir símann. Stór gagna- grunnur með upplýsingum um ýmsar fæðutegundir hjálpar notandanum að reikna út næringargildi fæðunnar. Appið gerir þar að auki tillögur að breytingum til hins betra fyrir notandann, út frá núverandi mataræði. Twilight Margir nota ýmis snjalltæki rétt fyrir svefninn en bláa skjábirtan sem þau stafa frá sér getur haft vekjandi áhrif á heilann og þannig gert fólki erfiðara fyr- ir að sofna. Appið Twilight minnkar bláu birtuna smám saman eftir því sem líður á kvöldið og dregur þannig úr vandanum. Önnur en vissu- lega ekki alveg jafn tæknileg lausn væri að sleppa síman- um fyrir háttinn og lesa bók í staðinn. Lumosity Heilsa snýst um fleira en að hlaupa hratt og borða gulrætur – það skiptir líka máli að halda toppstykkinu í toppformi. Þar kemur þetta app sterkt inn en einhverjir kannast líklega við fyr- irbærið því heimasíða Lumosity hefur ver- ið vinsæl í nokkur ár. Notendur brjóta heilann yfir skemmtilegum þrautum í nokkrar mínútur, þrisvar sinnum í viku, og fylgjast í kjölfarið með snerpu hugans snar- aukast á mettíma. SNJALLSÍMINN LÉTTIR HEILSURÆKTINA Öræfingar, betri svefn og heilabrot Fleira er hægt að gera í snjallsímanum en kíkja á Facebook – nú getur síminn þinn sagt þér hversu vel þú gerir líkamsræktar- æfingar, haldið utan um mataræði þitt og fundið fyrir þig mat í stað fæðu sem þú vilt forðast. Morgunblaðið/Styrmir Kári TÆKNINNI FLEYGIR FRAM OG ÓFÁIR ERU NÚ ÞEGAR TEKNIR AÐ NÝTA HANA HEILSU SINNI Í HAG. ÝMISS KONAR GRÆJUR ER HÆGT AÐ KAUPA FYRIR FÚLGUR FJÁR EN MEÐ ÞVÍ NOTENDAVÆNNA ERU SMÁFORRIT Í SNJALLSÍMANN. SUNNUDAGSBLAÐIÐ TÓK SAMAN NOKKUR SNIÐUG ÖPP. Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is Algengt er að fólk velti því fyrir sér hvort eðlilegt sé að vakna upp í svitakófi. Oftast er um- hverfisþáttum um að kenna, þ.e. of hátt stilltum ofni, lokuðum gluggum og þykkum ábreiðum. Nætursviti getur líka verið aukaverkun lyfja, t.d. sumra tegunda af pillunni. Sömuleiðis getur breytingaskeiði kvenna verið um að kenna. Ef skýring er óljós, er rétt að leita læknis. Er eðlilegt að svitna á nóttunni?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.