Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 4
* Það eina sem hægt er að reikna út með Ólaf Ragnar erþað að hann er óútreiknanlegur. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor. ÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015 Verður bitist um Bessastaði? Fastlega má gera ráð fyrir þvíað Ólafur Ragnar Grímssontilkynni í nýársávarpi sínu til þjóðarinnar hvort hann hyggst gefa kost á sér til áframhaldandi veru á Bessastöðum. Á nýársdag 2012 túlkuðu flestir orð hans á þann veg að hann hygðist láta staðar numið en það reyndist mis- skilningur. Ólafur Ragnar fór fram í fimmta sinn og vann öruggan sig- ur. Ólafur Ragnar er þegar orðinn þaulsætnastur allra í embætti. Fimmta kjörtímabili hans lýkur á næsta ári. Ásgeir Ásgeirsson (1952 til 1968) og Vigdís Finnbogadóttir (1980 til 1996) sátu í fjögur kjör- tímabil hvort, Kristján Eldjárn í þrjú (1968 til 1980) og Sveinn Björnsson lést áður en öðru kjör- tímabili hans lauk (1944 til 1952). Síðustu forsetakosningar, árið 2012, voru þær fyrstu þar sem sitj- andi forseti fær alvöru mót- framboð, en Þóra Arnórsdóttir, rit- stjóri Kastljóssins í Ríkis- sjónvarpinu, bauð sig þá fram gegn Ólafi Ragnari. Þóra fékk ríflega 33% greiddra atkvæða sem hlýtur að teljast ljómandi góð kosning. Niðurstaðan var þó vonbrigði fyrir Þóru og stuðningsmenn hennar en hún hafði mælst með enn meira fylgi í skoðanakönnunum í aðdrag- anda kosninganna. Það var mál manna að Þóra hefði farið halloka í sjónvarpskapp- ræðum gegn Ólafi Ragnari og velta má fyrir sér hvort einhver „alvöru“ frambjóðandi leggi í að skora hann á hólm á næsta ári gefi hann áfram kost á sér. Auðveldara getur reynst að verja embættið en sækja. Ólafur Ragnar hefur verið um- deildur forseti en eigi að síður hafa vinsældir hans verið nokkuð stöðugar gegnum árin, ef undan eru skilin eftirmál efnahagshruns- ins. Grétar Þór Eyþórsson, stjórn- málafræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri, segir erfitt að átta sig á því hvort Ólafur Ragnar komi til með að bjóða sig fram aftur. „Það eina sem hægt er að reikna út með Ólaf Ragnar er það að hann er óútreiknanlegur,“ segir Grétar í léttum tón. Aldurinn vegur þyngra Ólafur Ragnar er orðinn 72 ára og Grétari þykir einsýnt að aldur hljóti að vega þyngra en áður þeg- ar hann tekur ákvörðun sína að þessu sinni. „Aldurinn talar ekki beinlínis með honum, Ólafur Ragn- ar yrði 77 ára við lok næsta kjör- tímabils. Á móti kemur að hann virkar heilsuhraustur. Við skulum ekki gleyma því að mikil ferð hefur verið á Ólafi Ragnari í embætti, oft á tíðum vængjasláttur. Hann er ekki maður sem vill sitja kyrr og gera ekki neitt. Þess vegna þarf hann að vera sannfærður um að honum endist þrek í fjögur ár til viðbótar.“ Fyrir kosningarnar 2012 vísaði Ólafur Ragnar til óvissu varðandi stjórnskipun landsins þegar hann rökstuddi þá ákvörðun sína að bjóða sig fram aftur. Grétar sér ekki að slík rök eigi við að þessu sinni, nema eitthvað óvænt komi upp á í vetur. „Það er mjög ólík- legt að farið verði í mikla stefnu- breytingu í stjórnarskrármálum á næstunni. Alla vega ætti ekki að þurfa sérstaka vakt á Bessastöðum af þeim sökum.“ Að þessu sögðu telur Grétar minni líkur nú en síðast á því að Ólafur Ragnar bjóði sig fram. Það sé þó alls ekki hægt að útiloka það. En hverjir eru líklegir til að gefa kost á sér í forsetakjörinu næsta vor? Nokkuð hefur verið rætt um konu en yngsta kynslóð Íslendinga man ekki annað en karl á forseta- stóli. Þóra Arnórsdóttir lýsti því yfir eftir ósigurinn síðast að hún hefði ekki hug á að bjóða sig fram aftur. Annað hefur ekki komið fram. Nafn Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hefur líka verið nefnt í þessu sambandi. Hún hefur hvorki tekið afstöðu af né á, alltént ekki opinberlega. Þá hefur nafn Rögnu Árnadóttur, fyrrverandi dómsmálaráðherra, borið á góma. Af þessum þremur konum þykir Grétari Þóra líklegust til að velgja Ólafi Ragnari undir uggum. Hún hafi fengið góða kosningu síðast og gæti mögulega lagt forsetann nú. „Þóra fékk næstum því jafnmikið fylgi 2012 og Vigdís Finnbogadóttir 1980. Gleymum því ekki.“ Hann á vont með að sjá Katrínu bjóða sig fram gegn Ólafi Ragnari og Ragna sé orðin umdeildari en áður vegna starfa sinna hjá Lands- virkjun og aðkomu að flugvallar- málum. „Ragna er ekki eins hlut- laus og hún var enda fer minna fyrir henni í umræðunni nú en áð- ur,“ segir Grétar. Persóna en ekki kyn Spurður hvort eðlilegt sé að karl og kona skiptist á að gegna emb- ætti forseta Íslands segir Grétar ekki heilladrjúgt að stýra málum þannig. Framboð hljóti að snúast um persónur en ekki kyn. Nafnið sem oftast hefur líklega verið nefnt í sambandi við forseta- framboð á næsta ári er Jón Gnarr, ritstjóri innlends efnis hjá 365 miðlum og fyrrverandi borgar- stjóri. Hann hefur á hinn bóginn lýst því yfir að hann hafi ekki áhuga á embættinu, í það minnsta ekki að sinni. Fastlega má þó reikna með að stuðningsmenn Jóns láti á vilja hans reyna einhvern tíma á komandi vetri. Ákveði Ólafur Ragnar að draga sig í hlé segir Grétar ljóst að mun fleiri komi til með að hugsa sér til hreyfings en ella og slagurinn um embættið gæti auðveldlega staðið milli fleiri en tveggja frambjóð- enda. „Við skulum hafa í huga að sterkir kandídatar hafa oft komið seint fram, gott dæmi um það er Ólafur Ragnar Grímsson árið 1996. Það getur því margt gerst á skömmum tíma.“ Á því leikur enginn vafi að Ólaf- ur Ragnar hefur breytt forseta- embættinu í sinni tíð. Hann hefur látið mun meira til sín taka en for- verar hans, ekki síst á pólitíska sviðinu. Nægir þar að nefna beit- ingu neitunarvaldsins samkvæmt sextándu grein stjórnarskrárinnar. Gjörningur sem þótti óhugsandi áður. Pólitískur undirtónn Grétari þykir ekki ólíklegt að stemning gæti orðið fyrir manni sem ekki er eins umdeildur og Ólafur Ragnar á næsta ári, svo sem úr menningar- eða fræða- samfélaginu. „Á móti kemur að þjóðin vill greinilega hafa mál- skotsréttinn og gæti því viljað for- seta sem hikar ekki við að beita honum. Fyrir vikið er ekki útilokað að kosningabaráttan næsta vor verði með pólitískari undirtón en oftast áður. Við fengum reyndar forsmekkinn af því 2012.“ Grétari þykir líklegt að Ólafur Ragnar tilkynni ekki ákvörðun sína fyrr en í nýársávarpinu og eftir það komi til með að hitna hratt í kolunum. Hvort sem hann verður með í slagnum eður ei. „En auðvit- að verður þetta annar slagur ef Ólafur Ragnar verður ekki með. Og líklega meira spennandi.“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti EITT ÁR ER UM HELGINA ÞANGAÐ TIL NÝR FORSETI TEKUR VIÐ EMBÆTTI Á ÍSLANDI. EÐA EKKI. NÚVERANDI FORSETI HEFUR NEFNILEGA EKKI LÝST ÞVÍ YFIR ENN HVORT HANN HYGGIST BJÓÐA SIG FRAM TIL AÐ GEGNA EMBÆTTINU ÁFRAM. STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR TELUR MINNI LÍKUR Á ÞVÍ AÐ ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON BJÓÐI SIG FRAM NÚ EN SÍÐAST EN EKKI MEGI ÚTILOKA ÞAÐ. DRAGI HANN SIG Í HLÉ GÆTU MARGIR STIGIÐ FRAM. Jón Gnarr Katrín Jakobsdóttir Þóra ArnórsdóttirRagna ÁrnadóttirÓlafur Ragnar Grímsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.