Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Page 4
* Það eina sem hægt er að reikna út með Ólaf Ragnar erþað að hann er óútreiknanlegur. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor. ÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015
Verður bitist um Bessastaði?
Fastlega má gera ráð fyrir þvíað Ólafur Ragnar Grímssontilkynni í nýársávarpi sínu til
þjóðarinnar hvort hann hyggst
gefa kost á sér til áframhaldandi
veru á Bessastöðum. Á nýársdag
2012 túlkuðu flestir orð hans á
þann veg að hann hygðist láta
staðar numið en það reyndist mis-
skilningur. Ólafur Ragnar fór fram
í fimmta sinn og vann öruggan sig-
ur.
Ólafur Ragnar er þegar orðinn
þaulsætnastur allra í embætti.
Fimmta kjörtímabili hans lýkur á
næsta ári. Ásgeir Ásgeirsson (1952
til 1968) og Vigdís Finnbogadóttir
(1980 til 1996) sátu í fjögur kjör-
tímabil hvort, Kristján Eldjárn í
þrjú (1968 til 1980) og Sveinn
Björnsson lést áður en öðru kjör-
tímabili hans lauk (1944 til 1952).
Síðustu forsetakosningar, árið
2012, voru þær fyrstu þar sem sitj-
andi forseti fær alvöru mót-
framboð, en Þóra Arnórsdóttir, rit-
stjóri Kastljóssins í Ríkis-
sjónvarpinu, bauð sig þá fram gegn
Ólafi Ragnari. Þóra fékk ríflega
33% greiddra atkvæða sem hlýtur
að teljast ljómandi góð kosning.
Niðurstaðan var þó vonbrigði fyrir
Þóru og stuðningsmenn hennar en
hún hafði mælst með enn meira
fylgi í skoðanakönnunum í aðdrag-
anda kosninganna.
Það var mál manna að Þóra
hefði farið halloka í sjónvarpskapp-
ræðum gegn Ólafi Ragnari og velta
má fyrir sér hvort einhver „alvöru“
frambjóðandi leggi í að skora hann
á hólm á næsta ári gefi hann áfram
kost á sér. Auðveldara getur
reynst að verja embættið en sækja.
Ólafur Ragnar hefur verið um-
deildur forseti en eigi að síður
hafa vinsældir hans verið nokkuð
stöðugar gegnum árin, ef undan
eru skilin eftirmál efnahagshruns-
ins.
Grétar Þór Eyþórsson, stjórn-
málafræðingur og prófessor við
Háskólann á Akureyri, segir erfitt
að átta sig á því hvort Ólafur
Ragnar komi til með að bjóða sig
fram aftur. „Það eina sem hægt er
að reikna út með Ólaf Ragnar er
það að hann er óútreiknanlegur,“
segir Grétar í léttum tón.
Aldurinn vegur þyngra
Ólafur Ragnar er orðinn 72 ára og
Grétari þykir einsýnt að aldur
hljóti að vega þyngra en áður þeg-
ar hann tekur ákvörðun sína að
þessu sinni. „Aldurinn talar ekki
beinlínis með honum, Ólafur Ragn-
ar yrði 77 ára við lok næsta kjör-
tímabils. Á móti kemur að hann
virkar heilsuhraustur. Við skulum
ekki gleyma því að mikil ferð hefur
verið á Ólafi Ragnari í embætti, oft
á tíðum vængjasláttur. Hann er
ekki maður sem vill sitja kyrr og
gera ekki neitt. Þess vegna þarf
hann að vera sannfærður um að
honum endist þrek í fjögur ár til
viðbótar.“
Fyrir kosningarnar 2012 vísaði
Ólafur Ragnar til óvissu varðandi
stjórnskipun landsins þegar hann
rökstuddi þá ákvörðun sína að
bjóða sig fram aftur. Grétar sér
ekki að slík rök eigi við að þessu
sinni, nema eitthvað óvænt komi
upp á í vetur. „Það er mjög ólík-
legt að farið verði í mikla stefnu-
breytingu í stjórnarskrármálum á
næstunni. Alla vega ætti ekki að
þurfa sérstaka vakt á Bessastöðum
af þeim sökum.“
Að þessu sögðu telur Grétar
minni líkur nú en síðast á því að
Ólafur Ragnar bjóði sig fram. Það
sé þó alls ekki hægt að útiloka það.
En hverjir eru líklegir til að gefa
kost á sér í forsetakjörinu næsta
vor?
Nokkuð hefur verið rætt um
konu en yngsta kynslóð Íslendinga
man ekki annað en karl á forseta-
stóli. Þóra Arnórsdóttir lýsti því
yfir eftir ósigurinn síðast að hún
hefði ekki hug á að bjóða sig fram
aftur. Annað hefur ekki komið
fram. Nafn Katrínar Jakobsdóttur,
formanns Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, hefur líka verið
nefnt í þessu sambandi. Hún hefur
hvorki tekið afstöðu af né á, alltént
ekki opinberlega. Þá hefur nafn
Rögnu Árnadóttur, fyrrverandi
dómsmálaráðherra, borið á góma.
Af þessum þremur konum þykir
Grétari Þóra líklegust til að velgja
Ólafi Ragnari undir uggum. Hún
hafi fengið góða kosningu síðast og
gæti mögulega lagt forsetann nú.
„Þóra fékk næstum því jafnmikið
fylgi 2012 og Vigdís Finnbogadóttir
1980. Gleymum því ekki.“
Hann á vont með að sjá Katrínu
bjóða sig fram gegn Ólafi Ragnari
og Ragna sé orðin umdeildari en
áður vegna starfa sinna hjá Lands-
virkjun og aðkomu að flugvallar-
málum. „Ragna er ekki eins hlut-
laus og hún var enda fer minna
fyrir henni í umræðunni nú en áð-
ur,“ segir Grétar.
Persóna en ekki kyn
Spurður hvort eðlilegt sé að karl
og kona skiptist á að gegna emb-
ætti forseta Íslands segir Grétar
ekki heilladrjúgt að stýra málum
þannig. Framboð hljóti að snúast
um persónur en ekki kyn.
Nafnið sem oftast hefur líklega
verið nefnt í sambandi við forseta-
framboð á næsta ári er Jón Gnarr,
ritstjóri innlends efnis hjá 365
miðlum og fyrrverandi borgar-
stjóri. Hann hefur á hinn bóginn
lýst því yfir að hann hafi ekki
áhuga á embættinu, í það minnsta
ekki að sinni. Fastlega má þó
reikna með að stuðningsmenn Jóns
láti á vilja hans reyna einhvern
tíma á komandi vetri.
Ákveði Ólafur Ragnar að draga
sig í hlé segir Grétar ljóst að mun
fleiri komi til með að hugsa sér til
hreyfings en ella og slagurinn um
embættið gæti auðveldlega staðið
milli fleiri en tveggja frambjóð-
enda. „Við skulum hafa í huga að
sterkir kandídatar hafa oft komið
seint fram, gott dæmi um það er
Ólafur Ragnar Grímsson árið 1996.
Það getur því margt gerst á
skömmum tíma.“
Á því leikur enginn vafi að Ólaf-
ur Ragnar hefur breytt forseta-
embættinu í sinni tíð. Hann hefur
látið mun meira til sín taka en for-
verar hans, ekki síst á pólitíska
sviðinu. Nægir þar að nefna beit-
ingu neitunarvaldsins samkvæmt
sextándu grein stjórnarskrárinnar.
Gjörningur sem þótti óhugsandi
áður.
Pólitískur undirtónn
Grétari þykir ekki ólíklegt að
stemning gæti orðið fyrir manni
sem ekki er eins umdeildur og
Ólafur Ragnar á næsta ári, svo
sem úr menningar- eða fræða-
samfélaginu. „Á móti kemur að
þjóðin vill greinilega hafa mál-
skotsréttinn og gæti því viljað for-
seta sem hikar ekki við að beita
honum. Fyrir vikið er ekki útilokað
að kosningabaráttan næsta vor
verði með pólitískari undirtón en
oftast áður. Við fengum reyndar
forsmekkinn af því 2012.“
Grétari þykir líklegt að Ólafur
Ragnar tilkynni ekki ákvörðun sína
fyrr en í nýársávarpinu og eftir
það komi til með að hitna hratt í
kolunum. Hvort sem hann verður
með í slagnum eður ei. „En auðvit-
að verður þetta annar slagur ef
Ólafur Ragnar verður ekki með.
Og líklega meira spennandi.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
EITT ÁR ER UM HELGINA ÞANGAÐ TIL NÝR FORSETI TEKUR VIÐ EMBÆTTI Á ÍSLANDI. EÐA EKKI. NÚVERANDI FORSETI HEFUR NEFNILEGA EKKI LÝST ÞVÍ
YFIR ENN HVORT HANN HYGGIST BJÓÐA SIG FRAM TIL AÐ GEGNA EMBÆTTINU ÁFRAM. STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR TELUR MINNI LÍKUR Á ÞVÍ AÐ
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON BJÓÐI SIG FRAM NÚ EN SÍÐAST EN EKKI MEGI ÚTILOKA ÞAÐ. DRAGI HANN SIG Í HLÉ GÆTU MARGIR STIGIÐ FRAM.
Jón Gnarr Katrín Jakobsdóttir Þóra ArnórsdóttirRagna ÁrnadóttirÓlafur Ragnar Grímsson