Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015
* Það er dýrmætt að skapa menningu sem hvetur tilnýsköpunar á öllum sviðum og að það sé í lagi aðgera mistök svo framarlega sem við lærum af þeim.“
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, í Frjálsri verslun
Landið og miðin
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
sbs@mbl.is
UM ALLT LAND
ESKIFJÖRÐUR
Eskja hf. á Eskifirði hefur sótt um nýtt athafnasvæði
til að byggja upp frekari starfsemi tengda fyrirtækinu
RANGÁRVELLIR
Biskup Íslands hefur auglýst laust
til umsóknar embætti sóknarprests í
Oddaprestakalli á Rangárvöllum. Sá sem
brauðið fær mun þurfa að sinna um 1.100
sálum, það er í Keldna-, Þykkvabæjar- og
Oddasókn
síðastne
YE
SELFOSS
Fjölskylduhátíðin Sumar á
þar eystra um aðra helgi.
Árborgar stendur fyrir há
var haldin í júnímánuði en
helgina í ágúst. Meðal dags
föstudagskvöldið 7. ágúst um
SKAGAFJÖRÐUR
Skagafjörður hefur verið
Gæðaáfangastaður Ísland rkjum
svonefnds Eden-verkefnis fu er
markmiðið að vekja athyg fjölbreytileika
og einkennum evrópskra a, þar
álfbærni er
angspunktur.
mað 2015
var matartengd
ferðaþjónusta og þótti
anek fnið
Herðubreið er drottning ís-lenskra fjalla. Rís há ogdraumfögur á sléttunni og
er tignarleg að sjá, sama úr hvaða
átt til hennar er litið. Því kom ekki
á óvart árið 2002, þegar Land-
vernd efndi til kosninga um Ís-
lenska þjóðarfjallið, að Herðubreið
hlyti sæmdarheitið. Í tímans rás
hefur þjóðarfjallið orðið ótalmörg-
um að yrkisefni; ljósmyndurum,
rithöfundum, listmálurum og fleira.
Fjallið á meiri ítök í þjóðarsálinni
enmargir ætla.
Stapinn stendur eftir
Á ferðalögum um landið síðustu ár
hefur sá sem þetta skrifar stund-
um veitt því eftirtekt hvernig
nokkrum fjöllum svipar til Herðu-
breiðar. Þau eru öll háir og form-
fastir stapar, en slíkir myndast í
eldsumbrotum undir jökli. Í allra
einföldustu útgáfu jarðvísindanna
er atburðarásin þá sú, að þegar
jökullinn sem umlukt hefur fjallið
hverfur stendur stapinn eftir sem
kringlótt fjall með hamrabrúnum
og dyngju á flötum toppi.
Staparnir eða fjöllin sem hér
verða gerð að umfjöllunarefni eru
íslensk þjóðarfjöll. Systkini fjalla-
drottningar. Eða auðvitað er best
að segja hlutina skýrt og skorinort,
að þetta er hirðin. Íslenska kon-
ungsfjölskyldan.
Inn af uppsveitum Borg-
arfjarðar, séð í austur frá Holta-
vörðuheiði, er Eiríksjökull sem er
1.675 metrar á hæð og hæsta fjall
Vesturlands. Jökulkollurinn er ofan
á hamragirtum grágrýtiskolli stap-
ans, en sem slíkt er það eitt hið
stærsta í heimi. Margt í svip
Herðubreiðar og þessa kennimarks
Borgarfjarðarhéraðs er svipað og
víst er að „ískaldur Eiríksjökull
veit allt sem talað er hér,“ segir í
ljóði Jónasar Hallgrímssonar. Tign
jökulsins er mikil og fjallið ekki
árennilegt, enda reyna gönguhrólf-
ar sig við flest önnur fjöll.
Þrjú systkinafjöll
Á Suðurlandi eru þrjú „systk-
inafjöll“ og öll á sama eldgosabelt-
inu. Hrafnabjörg eru austarlega í
Þingvallaþjóðgarði, ofan við Gjá-
bakka. Fjallið er 763 metrar á hæð
og ber nokkurn svip Herðubreiðar.
Er girt hömrum í efstu skriðum en
vantar þó þann hvíta kúf sem setur
svo sterkan svip á þjóðarfjallið
fræga. Hlöðufell, sem er á háslétt-
unni ofan við Laugardalinn og
sunnan Langjökuls, er í raun miklu
líkara Herðubreið. Það er tilkomu-
mikill móbergsstapi sem er 1.188
metrar hæð en sést ekki nema af
völum stað úr byggð. Í góðri sjón-
línu er þessi Herðubreið Suður-
landsins úr ofanverðu Grímsnesinu
þegar ekið er að Laugarvatni og af
Biskupstungnaafrétti, til dæmis of-
an við Gullfoss.
Sé haldið norður Kjöl er að
minnsta kosti eitt þjóðarfjall á leið-
inni, það er Kjalfell. Það er inni á
reginfjöllum, það er í Kjalhrauni,
ÍSLAND
Systkini
drottningar
HERÐUBREIÐ ER Í ÖNDVEGI ÍSLENSKRA FJALLA.
EN DROTTNINGIN ER EKKI EIN. SÉU FLEIRI FJÖLL
TALIN MEÐ VERÐUR ÚR ÞVÍ HEIL KONUNGSFJÖLSKYLDA.
MÖRG FJÖLL Í ÞEIRRI HIRÐ ERU SUNNAN HEIÐA.
Tignarleg í auðninni rís Herðubreið sem árið 2002 var valin þjóðarfjall Íslendinga. Fjallið hefur tignarlegan svip og er
fallegt sama úr hvaða átt til þess er litið, en þess mynd er tekin af Fljótsdalsheiði á leiðinni inn að Kárahnjúkum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hrafnabjörg í Gjábakkahrauni við Þingvelli hafa skýran Herðubreiðarsvip.
Fjallið er auðkleift, en allt þetta svæði nýtur mikilla vinsælda meðal gönguhrólfa.