Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 12
M itt á meðal eins og hálfs milljarða Kínverja býr 26 ára Íslending- urinn Helgi Steinar Gunnlaugsson, háskólanemi og uppistandari. Hann hefur búið í Kína í fjögur ár, nú í Peking þar sem hann leggur stund á meist- aranám í alþjóðsamskiptum við Há- skólann í Peking. Áhuginn á Kína kviknaði þegar hann var í menntaskóla í Banda- ríkjunum en boðið var upp á kín- versku á síðasta árinu. „Ég kolféll alveg fyrir málinu. Fyrir tilviljun var svo útskriftarferð á vegum skólans til Kína árið sem ég út- skrifaðist,“ segir Helgi. Eftir að hann flutti til Íslands hóf hann nám í kínversku og fór síðar í sum- arskóla til Ningbo, sem er sunnan við Shanghai. Það var ekki aftur snúið. „Eftir það hef ég verið fastagestur í landinu og kláraði meðal annars BA-gráðuna mína í kínverskum fræðum í gegnum há- skólann í Ningbo.“ Dásamlegt fólk í Kína Helgi Steinar unir sér vel í Kína. Hann segir það besta við landið án efa vera mannlífið. „Kínverjar eru dásamlegt fólk og hvað þá ef mað- ur talar tungumálið. Þeir eru alltaf svo forvitnir að vita allt um útlend- inga, enda búnir að vera lokaðir af frá umheiminum dágóðan tíma. Ef þú týnist eða þarft aðstoð er aldrei skortur á fólki sem er meira en tilbúið að hjálpa þér,“ segir Helgi. Helgi fer mikið út að borða með vinum sínum sér til skemmtunar. „Það er hlegið og drukkið og mað- ur finnur alveg hlýjuna frá fólkinu hér,“ segir hann. Hins vegar segir hann margt geti farið í taugarnar á sér. „Það er mikil mannmergð í Kína og það virðast ekki allir kunna að standa í röð,“ segir hann. Notar hökkunarforrit Helgi segir að stjórnarfarið í Kína hafi ekki bein áhrif á hans líf. „Ég get náttúrlega ekki talað fyrir hönd hins almenna Kínverja, en í daglegu lífi hefur stjórnarfarið lítil sem engin áhrif á mig. Burt séð frá því að þurfa að nota hökkunar- forrit til að geta komist inná Face- book, Twitter eða Youtube (síður sem eru bannaðar í Kína) þá geng- ur allt bara sinn vanagang,“ segir hann. Stjórnarfarið í Kína kallar Helgi „einræðisharðstjórn með áætlaðan kapítalískan efnahag“. Hann segir að nánast engin sósíalísk þjónusta sé lengur til staðar eins og maður myndi búast við af kommúnista- landi og í stórborgum landsins sé varla lengur til pláss fyrir allar þær auglýsingar og sportbíla sem eru á hverju götuhorni. „Fyrrum leiðtogi Kína, Deng Xiaoping, orð- aði þetta ágætlega þegar hann var spurður hvernig kerfi Kína væri með: „Við gerum bara það sem virkar og köllum það síðan sósíal- isma.““ Spilling og gremja „Kínverskur almenningur er frek- ar ánægður að geta lifað í sátt og samlyndi og átt fyrir mat. Þó hef- ur aukist á síðustu árum gremja, aðallega í garð spillingar,“ segir Helgi. Samkeppnin er gríðarlega hörð að sögn Helga og hann segir að þeir sem vilja láta drauma sína rætast þurfa að leggja mikið á sig í námi eða vinnu. „Það er kald- hæðnislegt að ánægðasta fólkið sem ég hitti er fólkið í sveitum. Bændur og vinnumenn sem eiga miklu minna en bankamennirnir í Shanghai. En hjá þeim sést sjald- an bros á vör.“ Hefur smakkað rottur Ýmislegt kemur útlendingum í Kína spánskt fyrir sjónir og þurfa ferðamenn að vara sig á að láta ekki svindla á sér. „Viðskiptamenn- ing þeirra er voða hörð og þó svo að það sé ekki nema vara upp á 200 krónur þá er allt gert til að fá sem mest út úr vasanum þínum,“ segir hann. Helgi segir að mat- urinn sé mjög góður en hann hefur smakkað ýmislegt sem ekki sést á borðum Íslendinga. „Ég hef lagt munn á froska, snáka, rottur og engisprettur á priki en þær eru með pínu beikon bragði. En eitt gott ráð sem ég fékk þegar ég kom hingað fyrst var: „Ekki vera alltaf að spyrja hvað hitt og þetta er, smakkaðu það bara. Ef þér finnst það gott þá bara borðarðu meira, ef ekki þá bara ferðu í næsta rétt,““ segir Helgi en í uppáhaldi hjá honum er Kong Pao-kjúklingur sem er alls staðar fáanlegur. Uppistand í uppáhaldi Helgi Steinar ver frítíma sínum að- allega í uppistand en hann komst nýlega í fréttirnar hér heima vegna afskiptis lögreglu. En við byrjum á byrjuninni og blaðamaður spyr hvernig þetta hófst allt saman. Helgi segir að hann hafi flutt sitt fyrsta uppistand í Bandaríkjunum þegar hann var 14 ára á „open mic“-kvöldi og haldið nokkrar sýn- ingar það sumar í háskólanum þar. Þegar hann svo kom til Peking síð- asta sumar fann hann uppistands- klúbb. „Síðan þá hef ég stundað þetta á fullu og finnst fátt skemmtilegra,“ segir hann. Helgi fer gjarnan til annarrar borgar með sýningar en er einnig með uppistand víðs vegar um Peking. Yfirheyrður af lögreglu Eitt kvöld fyrir skemmstu voru þeir uppistandsfélagar klagaðir til yfirvalda og lögreglan mætti á staðinn. „Þetta örlagaríka kvöld þar sem lögreglan mætti var frek- ar sérstakt. Við höfðum aldrei lent í öðru eins og þetta kom okkur al- gjörlega í opna skjöldu. Þetta var nýr bar sem hafði leyft okkur að flytja uppistand og þetta gerðist á fimmta kvöldinu okkar þar. Málið var að þetta byrjaði mjög vel og ég held að við höfum meira að segja þrefaldað viðskiptin á þessum stað með þessum kvöldum. Það má segja að þetta gengi kannski „of vel“. Við fengum aldrei að vita ná- kvæmlega hver það var sem klag- aði eða af hverju lögreglunni fannst nauðsynlegt að mæta og koma fram við nokkra grínista eins og þeir væru í einhverri hryðju- verkastarfsemi,“ segir Helgi. Hann segir að konan sem rekur barinn hafi sagt að einhver hefði tilkynnt að verið væri að segja slæma hluti um Kommúnistaflokkinn og vildi lögreglan vita hvaða ummæli það væru. „Við komum upp með nokkr- ar skemmtilegar samsæriskenn- ingar, en ákváðum bara í lokin að taka smá pásu frá þessum stað,“ segir hann. Hálfstressaður næstu daga „Ég var bara yfirheyrður á staðn- um. Það var engin ástæða til að fara með mig niður á stöð þar sem ég hafði náttúrlega þannig séð ekki gert neitt rangt. Málfrelsi er lagalega varið samkvæmt 35. grein kínversku stjórnarskrár- innar. Það þýðir að ef ríkisstjórnin vill fara á eftir fólki sem segir eitthvað sem þeir þola ekki, þá finna þeir eitthvað annað eins og skattsvik eða aðra „glæpi“ til að þagga niður í fólki. Í okkar tilfelli Uppistand í Kína HELGI STEINAR GUNNLAUGSSON NÝTUR LÍFSINS Í KÍNA ÞAR SEM HANN NEMUR ALÞJÓÐA- SAMSKIPTI. FRÍTÍMINN FER Í UPPISTAND SEM VAKIÐ HEFUR ATHYGLI MARGRA, ÞAR Á MEÐAL LÖGREGLUYFIRVALDA. HELGI SEGIR ÍSLENDINGA GETA LÆRT MIKIÐ AF KÍNVERJUM. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Helga finnst fátt skemmtilegra en uppistand en hann fer víða um Kína með sýningar. 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015 Svipmynd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.