Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2015, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2015, Blaðsíða 22
H lín Reykdal segist heillast af lit- um, bæði heima og í starfi en kjósi að hafa hlutina fremur ein- falda heimavið. „Við erum með listaverk eftir pabba, Jón Reykdal (f. 1945, d. 2013), og systur mína Höddu Fjólu Reykdal, Erró, Þórð Hall og fleiri. Listaverkin eru kannski helsta einkenni heimilisins ásamt alls konar persónulegum hlutum.“ Aðspurð hvað hjónin leggi áherslu á hvað varðar innréttingu heimilisins nefnir Hlín að heimilið sé fallegt og að það sé einnig kostur ef hlutirnir fúnkeri vel. Hlín segist ekki vera svakalega praktísk þegar kemur að heimilinu. „Sem dæmi þá er frekar stór gluggi í eld- húsinu okkar og fannst mér í raun og veru algjör synd að setja gardínur. En maðurinn minn var nú ekki á sama máli. Ég setti upp gardínur sem eru gegnsæjar og mér finnst mjög smart. Hann hafði sem betur fer húm- or fyrir þessu og gardínurnar hanga enn uppi.“ Hlín hefur mikinn áhuga á hönnun og list- um, matargerð, hreyfingu og heilsu. „Mér finnst mjög gaman í eldhúsinu því ég elska að elda mat og er það svolítið mitt jóga,“ út- skýrir hún og bætir við að hún sæki inn- blástur á Pinterest ásamt því að skoða blöð og vafra á netinu. Aðspurð hverjar séu eftirlætisverslanir hjónanna fyrir heimilið segir Hlín „Ég hef verslað hér og þar í gegnum tíðina. Epal er klárlega í miklu uppáhaldi. Kokka, Hjarn, Heimili og Hugmyndir. Pipar og Salt er verslun sem ég sakna.“ Morgunblaðið/Eggert Hlín Reykdal, hönnuður, rekur, ásamt eiginmanni sínum, Hallgrími Stefáni, hönnunarhúsið Hlín Reykdal. Skemmtileg uppröðun persónulegra muna í stofuskápnum gefur rýminu aukinn karakter. Listaverkin ein- kenni heimilisins HJÓNIN HLÍN REYKDAL OG HALLGRÍMUR STEFÁN SIGURÐSSON SEM REKA SAMAN HÖNNUNARHÚSIÐ HLÍN REYKDAL HAFA BÚIÐ SÉR OG DÆTRUM SÍNUM TVEIMUR EINSTAKLEGA NOTALEGT HEIMILI Í VESTURBÆNUM Í REYKJAVÍK. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Hlín segir stofuna nokkurs- konar griðastað fjölskyld- unnar en þar er lesið, leikið, dansað og horft á imbann. KJÓSA AÐ HAFA HLUTINA EINFALDA HEIMAVIÐ Heimili og hönnun Matarhátíð í Hörpu Stærsti matar- markaður landsins! *Laugardag og sunnudag verður sannkölluð matar-hátíð í Hörpu þar sem saman koma sjómenn, bændurog smáframleiðendur hvaðanæva af landinu meðskemmtilegt úrval matvæla. Einnig verður boðið uppá skemmtilega fyrirlestra og hressandi viðburði. Hátíðin, sem nefnist Matarhátíð Búrsins, er opin ámilli klukkan 11 og 17 laugardag og sunnudag. Miða- verð er 1.000 kr. fyrir fullorðna en frítt er fyrir börn yngri en 16. ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.