Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2015, Síða 22
H
lín Reykdal segist heillast af lit-
um, bæði heima og í starfi en
kjósi að hafa hlutina fremur ein-
falda heimavið.
„Við erum með listaverk eftir pabba, Jón
Reykdal (f. 1945, d. 2013), og systur mína
Höddu Fjólu Reykdal, Erró, Þórð Hall og
fleiri.
Listaverkin eru kannski helsta einkenni
heimilisins ásamt alls konar persónulegum
hlutum.“
Aðspurð hvað hjónin leggi áherslu á hvað
varðar innréttingu heimilisins nefnir Hlín að
heimilið sé fallegt og að það sé einnig kostur
ef hlutirnir fúnkeri vel.
Hlín segist ekki vera svakalega praktísk
þegar kemur að heimilinu.
„Sem dæmi þá er frekar stór gluggi í eld-
húsinu okkar og fannst mér í raun og veru
algjör synd að setja gardínur. En maðurinn
minn var nú ekki á sama máli. Ég setti upp
gardínur sem eru gegnsæjar og mér finnst
mjög smart. Hann hafði sem betur fer húm-
or fyrir þessu og gardínurnar hanga enn
uppi.“
Hlín hefur mikinn áhuga á hönnun og list-
um, matargerð, hreyfingu og heilsu. „Mér
finnst mjög gaman í eldhúsinu því ég elska
að elda mat og er það svolítið mitt jóga,“ út-
skýrir hún og bætir við að hún sæki inn-
blástur á Pinterest ásamt því að skoða blöð
og vafra á netinu.
Aðspurð hverjar séu eftirlætisverslanir
hjónanna fyrir heimilið segir Hlín „Ég hef
verslað hér og þar í gegnum tíðina. Epal er
klárlega í miklu uppáhaldi. Kokka, Hjarn,
Heimili og Hugmyndir. Pipar og Salt er
verslun sem ég sakna.“
Morgunblaðið/Eggert
Hlín Reykdal, hönnuður, rekur, ásamt
eiginmanni sínum, Hallgrími Stefáni,
hönnunarhúsið Hlín Reykdal.
Skemmtileg uppröðun persónulegra muna í stofuskápnum gefur rýminu aukinn karakter.
Listaverkin ein-
kenni heimilisins
HJÓNIN HLÍN REYKDAL OG HALLGRÍMUR STEFÁN SIGURÐSSON
SEM REKA SAMAN HÖNNUNARHÚSIÐ HLÍN REYKDAL HAFA BÚIÐ
SÉR OG DÆTRUM SÍNUM TVEIMUR EINSTAKLEGA NOTALEGT
HEIMILI Í VESTURBÆNUM Í REYKJAVÍK.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Hlín segir stofuna nokkurs-
konar griðastað fjölskyld-
unnar en þar er lesið, leikið,
dansað og horft á imbann.
KJÓSA AÐ HAFA HLUTINA EINFALDA HEIMAVIÐ
Heimili
og hönnun
Matarhátíð í Hörpu
Stærsti
matar-
markaður
landsins! *Laugardag og sunnudag verður sannkölluð matar-hátíð í Hörpu þar sem saman koma sjómenn, bændurog smáframleiðendur hvaðanæva af landinu meðskemmtilegt úrval matvæla. Einnig verður boðið uppá skemmtilega fyrirlestra og hressandi viðburði. Hátíðin, sem nefnist Matarhátíð Búrsins, er opin ámilli klukkan 11 og 17 laugardag og sunnudag. Miða-
verð er 1.000 kr. fyrir fullorðna en frítt er fyrir börn
yngri en 16. ára.