Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2015, Qupperneq 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2015, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.8. 2015 Fjölskyldan Það fer í taugarnar á mörgum foreldrum hvað börn þeirra eiga vont með aðlíta upp úr snjalltækjum sínum. Breskur maður, Simon Barnes, tók þetta vandamál föstum tökum í sumar; varði hverjum einasta degi í heilan mánuð með fjórtán ára gömlum syni sínum í náttúrunni. Hvorugum varð meint af. Nutu náttúrunnar í heilan mánuð Við getum sagt að þetta sýni ekki miklagrósku í því að gera ný íslensk leikritfyrir börn,“ segir Pétur Eggerz hjá Möguleikhúsinu um komandi leikár hjá stóru atvinnuleikhúsunum en hvorki Þjóðleikhúsið né Borgarleikhúsið frumsýna nýja sýningu ætlaða börnum á stóru sviðum sínum í vetur. „Maður sér ekki mikið af frumsköpun í nýju efni fyrir börn hjá stóru leikhúsunum og eins og svo oft áður er það sem er nýtt yfir- leitt byggt á eldri sögum. Er ekki tími til kominn að gera eitthvað nýtt fyrir börn á stóra sviðinu og leggja verulega mikið í það? Börn eru 25% af þjóðinni og eðlilegt að leik- hússtarf speglaðist í því. Að ekki sé talað um að börnin eru auðvitað leikhúsgestir framtíð- arinnar,“ heldur hann áfram. Sýningum fram haldið Fyrirhugaðuð er ein ný barnasýning í Þjóð- leikhúsinu, Umhverfis jörðina á 80 dögum eft- ir Sigurð Sigurjónsson og Karl Ágúst Úlfsson, byggt á sögu Jules Verne, í Kassanum. Þrjár eldri sýningar verða svo teknar upp aftur: Leitin að jólunum eftir Þorvald Þorsteinsson og Árna Egilsson á Leikhúsloftinu; Kuggur og leikhúsvélin eftir Sigrúnu Eldjárn í Kúl- unni og Klókur ertu, Einar Áskell eftir Gun- illu Bergström á Leikhúsloftinu. Við þetta má raunar bæta að sýningin Í hjarta Hróa hattar eftir David Farr á Stóra sviðinu er skilgreind sem fjölskyldusýning. Þar er á ferðinni samstarfsverkefni Þjóðleik- hússins og Vesturports. Borgarleikhúsið tekur upp Billy Elliot og Línu Langsokk frá fyrra leikári og frumsýnir nýtt verk, Made in children, eftir Aude Bus- son, Ásrúnu Magnúsdóttur og Alexander Ro- berts á Litla sviðinu. Pétur segir barnasýningar þannig í eðli sínu að þær geti í mörgum tilfellum gengið lengur en fullorðinssýningar enda endurnýjast áhorfendahópurinn örar. Þess vegna sé al- gengt að stórar sýningar á borð við Línu Langsokk flytjist milli ára. Foreldrar fara frekar með börnin á efni sem þeir þekkja Eigi að auka frumsköpun á efni fyrir börn í leikhúsum landsins þarf meiri stuðning, að sögn Péturs. „Ástæðan fyrir því að settar eru upp leikgerðir á eldri sögum fyrir börn er sú að foreldrar fara frekar með börn sín á þann- ig sýningar en ný verk. Foreldrarnir velja gjarnan verk sem þeir þekkja en í flestum til- vikum ráða þeir för, en ekki börnin. Það er með öðrum orðum auðveldara að selja sýn- ingar á þekktum verkum eftir höfunda á borð við Thorbjörn Egner og Astrid Lindgren. Barnasýningar þurfa að vera markaðsvænar, alla vega virðist það vera raunin með þær sem settar eru upp á stóru sviðunum. Til þess að koma með eitthvað alveg nýtt þarftu einhverja uppörvun.“ Hann segir engan vafa á því að hægt sé að setja upp frumsamið efni fyrir börn á stóru sviðum atvinnuleik- húsanna og nefnir Skilaboðaskjóðu Þor- valdar Þorsteinssonar í því sambandi. Spurður hvað sé til ráða í þess- um efnum segir Pétur æskilegt að stóru leik- húsin fari fram með góðu for- dæmi enda sé fjárhagslegt bolmagn þeirra mun meira en sjálfstæðu leikhúsanna. „Samt sem áður hefur gróskan oft verið meiri í sjálfstæðu leikhúsun- um, alla vega hvað varðar ný frumsamin barnaleikrit. Síðasta vetur voru þau meira að segja óvenju mörg.“ Kemur í bylgjum Hann hefur tilfinningu fyrir því að þetta komi svolítið í bylgjum, án þess að hafa skoðað það niður í kjölinn. „Það var bylgja í fyrra en það er eins og hún dugi stundum í meira en eitt leikár. Ég get trútt um talað því sýningarnar hjá mínum litla leikhóp lifa gjarnan giska lengi og við erum oft að taka eldri sýningar upp aftur vegna þess að það er kominn al- gjörlega nýr áhorfendahópur. Við settum upp tvær nýjar sýningar í fyrravetur og munum leggja áherslu á að sýna þær áfram í vetur. Verðum með öðrum orðum ekki með neina nýja sýningu.“ Í þessu ljósi má velta fyrir sér hvort erfitt verði ekki að fylla flokkinn „barnaleiksýning ársins“ af tilnefningum á íslensku leiklist- arverðlaununum, Grímunni, á næsta ári. Pétur hvetur stóru leikhúsin til aukinnar frumsköpunar á verkum fyrir börn og að fá til lið við sig höfunda með nýjar og ferskar hug- myndir. „Þetta hefur Möguleikhúsið oft gert með góðum árangri.“ Snýst um viðhorf Pétur segir málið í grunninn snúast um við- horf. Leggja þurfi metnað í að vinna leikverk fyrir börn. „Allir sem vinna menningarefni fyrir börn fá á einhverjum tímapunkti spurn- inguna: Ætlarðu svo ekki að fara að gera eitt- hvað fyrir fullorðna? Þetta þekki ég vel sjálf- ur en við í Möguleikhúsinu höfum líka sett upp sýningar fyrir fullorðna. Maður finnur að viðhorfið er annað til slíkra sýninga og það er eilífðarbarátta að vinna upp virðinguna gagn- vart efni fyrir börn. Það á að sjálfsögðu að vera jafnsett efni fyrir fullorðna.“ ER HLUTUR BARNALEIKRITA OF RÝR HJÁ STÓRU LEIKHÚSUNUM? Eilífðarbarátta að vinna upp virðingu Lína Langsokkur í Borgarleikhúsinu á síðasta leikári. Gott dæmi um „öruggt“ val á leikriti handa yngstu kynslóðinni. Ljósmynd/Grímur Bjarnason ENGIN NÝ BARNASÝNING VERÐUR Á STÓRA SVIÐINU Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU OG BORGAR- LEIKHÚSINU Í VETUR OG LÍTIÐ UM FRUMSKÖPUN Á EFNI FYRIR YNGSTU LEIKHÚSGESTINA. PÉTUR EGGERZ HJÁ MÖGULEIKHÚSINU HVETUR STÓRU LEIKHÚSIN TIL AÐ EFLA ÞENNAN ÞÁTT Í STARFI SÍNU, AUK ÞESS SEM BREYTA ÞURFI VIÐHORFINU. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Pétur Eggerz í hlutverki Sæmundar fróða í Möguleikhúsinu fyrir fáeinum árum. Morgunblaðið/ÞÖK Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Karíus og Baktus fara alltaf vel í blessuð börnin.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.