Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2015, Síða 32
Þegar maður sér Fatback-hjól í
fyrsta sinn sér maður eiginlega
ekkert nema dekkin – þau eru
svo yfirþyrmandi þykk.
Ég verð að viðurkenna aðmér fannst hálf hjákátlegtað stíga á bak Fatback
Corvus-hjólinu sem ég fékk í
Hjólaspretti í Hafnarfirði – mál-
ið er nefnilega að það er svo-
kallað Fatbike og dekkin svo
ýkt, í þvílíkri yfirstærð, að það
var nánast eins og ekki væri um
alvöruhjól að ræða – frekar eins
og Jawa-
faratæki á
Tatooine.
Þegar á
reyndi var
það að
hjóla á því
eins og á
hverju öðru
hjóli, nema
náttúrlega
hjóli með 4" dekkjum.
Fatbike, það er hjól með
dekkjum í yfirstærð, rekja ættir
sínar til Alaska þar sem þróað
var hjól sem nota mætti í þæf-
ingsfærð og eins og sagan er
rakin byrjuðu menn á að sjóða
saman gjarðir og búa til tvöföld
og þreföld dekk þar til framleið-
endur gjarða og dekkja tóku við
sér og fóru að smíða ofurbreið
dekk og gjarðir í stíl. Það gefur
augaleið að dekk sem þróuð eru
til að hjóla í snjó hljóta að
henta bráðvel fyrir ferðalag í
sandi, eins og sannast á ferð
hjólreiðakappans Geoff Harper
um sanda Suðurlands á 9:Zero:7
Tusken-hjóli með 26 x 4.0"
45NRTH-dekkjum og sagt er frá
á vefsetrinu unchained-
iceland.wordpress.com. Slík hjól
hafa notið æ meiri vinsælda ytra
og þeim hefur líka fjölgað smám
saman hér á landi.
Algengasta spurning sem ég
fékk þegar fólk sá mig á
hjólinu var hvort ekki
væri erfiðara að
hjóla og byggist
það á þeirri
þjóðtrú að
maður fari því
hraðar sem
dekkin eru
mjórri. Rétt
er að breidd-
in á dekkinu
skiptir litlu
sem engu en
mynstrið aftur
á móti miklu.
Ég fann líka fyrir
því að mynstrið á
dekkjunum er mjög gróft
enda var hjólið notað til ferða á
Langjökli áður en ég fékk það,
en það var þó búið að taka
naglana úr því – meira mynstur
eykur titring og maður tapar
orku fyrir vikið.
Á þeirri leið sem ég fer í
vinnuna á morgnana eru göngu-
og hjólastígar svo að segja alla
leið og því lítið fengið með því
að vera á svo öflugu hjóli, verra
reyndar að vera á hjóli með
dempara þegar hjólað er upp
brekkurnar að Vatnsendahvarfi.
Þegar ég fór lengri leiðina heim,
sunnan við Elliðavatn, norðan við
Strýpshraun og svo Grunnu-
vatnaleið í átt að Arnarbæli og
niður í Heiðmörk, kom hjólið
aftur á móti heldur en ekki í
góðar þarfir – það var frábært
að svífa yfir sand og möl og
best af öllu þegar ég sigldi nið- þar sem ójöfnur voru hvað mest-
ar og þeir gerðu sitt til að gera
ferðina eins ánægjulega og hún
varð.
Hjólið sjálft, stellið, er mjög
vel hannað, nóg pláss fyrir flösk-
ur og aðrar viðbætur og sérdeil-
is þægilegt að sitja það – þetta
er óskahjól fyrir langt ferðalag,
til að mynda yfir Sprengisand.
Eins og getið er fékk ég hjól-
ið í Hjólaspretti í Hafnarfirði.
Það er svo nýkomið að ekki er
komið á það verð, en koltrefja-
týpan kostar væntanlega um
900.000 kr. og Lauf-gaffallinn
um 100.000 til viðbótar. Hjóla-
sprettur verður líka með Fat-
back með álstelli sem kostar þá
mun minna, sennilega 3-400.000
kr.
ur Vífilsstaðahlíðina. Ég hef áður
farið þessa leið og eiginlega ekki
lagt í hana aftur, enda ekki gott
fyrir götuhjól, en á fatbike má
segja að maður svífi á svörtu
skýi.
Önnur spurning sem ég heyrði
oft var hvort hjólið væri ekki
þungt. Því er til að svara að
það er fislétt – allt er úr kol-
trefjum sem á annað borð er
hægt að smíða úr þeim og eins
og sjá má á meðfylgjandi mynd
er framdemparinn frá íslensku
hugvitsmönnunum í Lauf Forks,
gaffallinn er Lauf Carbonara
sem er ekki nema rétt rúmt kíló
að þyngd. Skipting á hjólinu er
líka einföld, aðeins eitt tannhjól
að framan, og ekki saknaði ég
gíra.
Lauf-gaffallinn og koltrefja-
dempararnir virkuðu frábærlega
vel, þó að ég efist um að þeirra
sé þörf á hjóli með svo breið og
loftmikil dekk, enda er eðlilega
mjög góð fjöðrun í dekkjunum
og svörun í stýri er ekki eins
nákvæm þegar maður er með
dempara. Að því sögðu var fínt
að hafa þá, mjög gott reyndar
SVIFIÐ Á SVÖRTU SKÝI
ÞAÐ GEFUR AUGALEIÐ AÐ ÞVÍ BREIÐARA SEM DEKKIÐ ER, ÞVÍ BETRA ER AÐ HJÓLA Í SNJÓ OG SANDI EÐA FARA YFIR ÓJÖFNUR.
DEKK HAFA VERIÐ AÐ BREIKKA Í REIÐHJÓLAHEIMINUM EFTIR ÞVÍ SEM MENN VILJA ÞRÆÐA Æ ÓTROÐNARI SLÓÐIR, EN EKKI VEIT
ÉG HVORT LENGRA VERÐI KOMIST EN Á FATBACK CORUS SEM ER MEÐ 4" DEKK.
* Stellið er Fatback Corvus,hnakkurinn WTB, stýri, stýrisstöng
og tannhjól Race Face og SRAM
XO1 drifhjól og Avid skiptingar.
Diskabremsur. Dekk eru 26" x 4"
45NRTH Dillinger 5, koltrefjagjarðir
SUNringlé (Mulefüt 80SL) að aftan
og Surly Clown Shoe að framan.
Gaffallinn er Lauf Carbonara gaffall.
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
Það er frábært að
hjóla á Fatback.
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.8. 2015
Græjur og tækni Með því að fara á vefinnwww.boredpanda.com og setja
„donald“ í leitarstreng síðunnar
má finna stórskemmtilegan lista
yfir 15 fyrirbæri sem líta út eins
og Donald Trump.
Leið panda gefur lífinu lit
www.veislulist.is
Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar sem kaupand
i sér sjálfur um að raða þeim á föt eða tilbúnir á á b
orð á einnota
veislufötum. Sé veislan 150manna eðameira eru a
llar veitingar afhentar á einnota veislufötum.
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
PINNAMATUR
FYRIRÖLLTÆKIFÆRI
Þú getur lesið allt um
pinnamat og aðra rétti
á heimasíðu okkar
PINNAMATUR
Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvaða tím
a
dagsmóttakan er og hversu lengi hún á að standa.
Í “standandi” veislum er vinsælt að bjóða upp á t.d
fimm til sjö rétta pinnaborð.
Skoðið verðin á heimasíðu okkar