Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2015, Page 33
Sturtan notar um 70% minna vatn en venjuleg sturta, að sögn Nebia.
Vatnsskortur í Kaliforníufylki í
Bandaríkjunum hefur verið viðvar-
andi vandamál um árabil og er
vatnsreikningurinn stór hluti af út-
gjöldum heimila fylkisins. Banda-
ríska sprotafyrirtækið Nebia telur
sig vera með vöru sem geti sparað
meðalheimili í Kaliforníu tæplega
400 Bandaríkjadollara á ári, sem
samsvarar um 50.000 krónum.
Um er að ræða sturtu sem notar
um 70% minna vatn en venjuleg
sturta með hjálp mjög nýstárlegrar
tækni. Sturtan tvístrar upp vatninu í
milljónir lítilla dropa sem búa saman
til eins konar vatnsgufu og segja þau
sem hafa prófað sturtuna að upplif-
unin sé gerólík því sem áður þekk-
ist. Og ekki síðri.
Verkefnið var kynnt á vefsíðunni
Kickstarter, þar sem sprotafyrirtæki
óska eftir fjármagni til að koma
vörum og fyrirtæki sínu af stað. Á
rúmlega tveimur vikum hefur 2,7
milljónum dollara verið heitið á verk-
efnið, sem er langt yfir markmiði
fyrirtækisins, en það var 100.000
dollarar. Meðal þeirra sem hafa hjálp-
að til við að fjármagna verkefnið eru
Tim Cook, forstjóri Apple, og Eric
Schmidt, stjórnarformaður Alpha-
bet, móðurfélags Google.
Þessi mikli stuðningur við verk-
efnið lýsir bæði trú fólks á hugmynd-
inni og þörf fyrir að nýta vatnið bet-
ur, en það er mjög takmörkuð
auðlind víðs vegar um heiminn.
Fyrirtækið telur að í heildina geti
tæknin sparað yfir 760 milljarða lítra
vatns og 3,9 milljarða dollara í Kali-
forníufylki, en það nemur 500 millj-
örðum íslenskra króna.
KICKSTARTER-VERKEFNIÐ NEBIA HEFUR FENGIÐ
GÍFURLEGA MIKIÐ FJÁRMAGN
Sparar Kaliforníu
milljarða dollara
30.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
*Merkilegasta uppgötvun allra tíma ersú að einstaklingur geti breytt framtíðsinni með því einu að breyta viðhorfi sínu.
Oprah Winfrey
Tölvuleikjaspilun á sér fastan sess
meðal fólks um allan heim. Margir
spila tölvuleiki heima hjá sér til
gamans, aðrir til að stytta sér
stundir í vinnunni og sumir hafa
spilunina að atvinnu. Tekjulind
þeirra síðastnefndu hefur hingað til
verið peningaverðlaun fyrir keppni
eða frá stuðningsaðilum. Nú eru
hins vegar margir færir um að
framfleyta sér aðeins á því að spila
tölvuleiki og annaðhvort taka það
upp og hlaða upp á YouTube eða
streyma því í beinni útsendingu á
netinu.
Stærsta, og í raun eina, vefsíðan
sem býður upp á að streyma tölvu-
leiki beint heitir Twitch, en á árinu
2014 heimsóttu síðuna yfir 100
milljón einstaklingar mánaðarlega.
Myndbandsvefsíðan YouTube
stefnir nú á að skáka Twitch og
hefur opnað streymissíðuna
Gaming.YouTube.com og mun hver
sem er geta streymt tölvu-
leikjaspilun sinni.
RISINN MÆTTUR Í TÖLVULEIKJASTREYMIÐ
YouTube í streymið
Það getur verið erfitt að halda í
við öra tækniþróun nútímans. Á
hverjum degi virðast koma fram á
sjónarsviðið ný tæki eða nýr hug-
búnaður sem ætlað er að auðvelda
fólki lífið með einum eða öðrum
hætti. Ekki líður svo á löngu þar
til téð tækni þykir ómissandi, eins
og snjallsímarnir eru í dag.
Fyrir þá sem eru að eignast sína
fyrstu snjallsíma eða skilja ekki ný
stýrikerfi munu ýmsir aðilar bjóða
upp á vikuleg námskeið í allan vet-
ur endurgjaldslaust. „Þessi nám-
skeið eru fyrir fólk sem eru að
taka sín fyrstu skref í snjallsímum,
en þetta er mjög framandi tækni
fyrir marga og fólk getur verið
mjög óöruggt með tækin,“ segir
Hrafn Hjartarson, sem sér um
Snjallsímaskólann hjá Símanum.
Kennt er á tækin alveg frá
grunni. „Við kennum fólki á grunn-
inn, að komast af stað og vinna sig
í gegnum valmyndina,“ segir
Sindri Már Björnsson, versl-
unarstjóri Vodafone í Kringlunni.
Þó að oft sé hægt að fá kennslu
heima fyrir finnst mörgum þægi-
legra að læra þetta á námskeiðum.
„Það er allt öðruvísi að koma á
námskeið en að vera kennt heima
og sumum finnst það einfaldlega
þægilegra,“ segir Hrafn. „Á nám-
skeiði er fólkinu oft sýnd meiri
þolinmæði og kennt með skipu-
lagðari hætti á það sem skiptir
máli.“
Símafyrirtækin Síminn og Voda-
fone bjóða bæði upp á vikuleg
námskeið fyrir Android- og iOS-
stýrikerfin, en iOS er stýrikerfið
sem notað er í iPhone og iPad.
Hjá Símanum eru tvö námskeið í
hverri viku, annað með Android og
hitt með iOS, en Vodafone er með
þrjú Android-námskeið í mánuði
og eitt iPhone. „Android-nám-
skeiðin hafa verið betur sótt, en
þau eru talsvert fleiri sem eiga
þannig tæki,“ segir Sindri Már.
Verslunin Epli, sem er sérversl-
un fyrir Apple-vörur, mun bjóða
upp á námskeið á hverjum laugar-
degi í vetur þar sem kennt er á
tæki með iOS-stýrikerfið og þá
sérstaklega iPad-spjaldtölvur. „Við
kennum á iPad en það gildir alveg
jafnmikið fyrir iPhone, þar sem
báðar vörurnar keyra á sama
stýrikerfi,“ segir Björgvin Þór
Björgvinsson, verslunarstjóri í
Epli.
Hægt að læra betur á
snjallsímann í vetur
ÝMIS ÓKEYPIS NÁMSKEIÐ
STANDA FÓLKI TIL BOÐA Í
VETUR TIL AÐ LÆRA Á
FLÓKIN SNJALLTÆKI
HVERSDAGSLÍFSINS.
Sigurður Tómasson
sigurdurt@mbl.is
Epli, Síminn og Vodafone eru öll með vikuleg snjallsímanámskeið þar sem
farið er yfir grunninn í notkun tækjanna og fólki hjálpað að komast af stað.
Á vefnum www.googlesheep-
view.com er hægt að sjá kind-
ur úr lofti, s.s. á Englandi og
Nýja-Sjálandi, á sama hátt og
skoða má götur með „street
view“ frá Google.
Kindur úr lofti
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
ÚTSÖLULOK
SÓFAR
STÓLAR
PÚĐAR
SÓFABORĐ
MOTTUR
SMÁVÖRUR
ALLT AĐ
50% AFSLÁTTUR
AF ÚTSÖLUVÖRUM
LOKADAGUR
LAUGARDAGINN 29. ÁGÚST