Þjóðmál - 01.06.2006, Blaðsíða 89
Þjóðmál SUmAr 2006 87
ruglaðan,. reiðan. og. æstan .“. Og. Sigurður.
Einarsson.(síðar.frá.Holti),. talaði.1930.um.
„djarfyrði. Kiljans. og. galsa. [. . . .. ]. orðin. eru.
einatt.furðu.vel.hreinsuð.af.ýmsum.óþverra.
sem. annars. er. vanur. að. loða. við. þau .. Þau.
birtast.okkur.sem.tákn.nýrra.hugmynda.þótt.
gömul.sé ..En.alt.um.það.loðir.svo.mikið.við.
þau.af. eldri.keim,.að.það.vekur.undarlega,.
ertandi.furðukend .“
Nú.skiptir.meginmáli,.að.þótt.sögupersón-
ur.HKL.séu.ýktar.sem.áður.segir,.þá.eru.þær.
að.því.leyti.raunsæislegar,.að.þær.tala.yfirleitt.
eðlilegt.mál.sinnar.stéttar.og.umhverfis ..En.
sögumaður.er.gerólíkur.þeim,.hann.talar.af.
yfirsýn.menntaðs.heimsmanns.og.málfari,.
hann.talar.um.sögupersónur.úr.fjarlægð,.og.
iðulega. af. háði,. þar. gætir. þessara. stílrofa ..
Um.það.sagði.ég.(tv ..r .,.bls ..118):.
„Hefði. Halldór. bara. lýst. íslensku. sjáv-
arþorpi. frá. sjónarmiði. menntaðs. heims-
manns,.þá.hefði.útkoman.orðið.nær.grein.
eða.hugleiðingu.en.skáldskap ..Hefði.hann.
hinsvegar.skrifað.um.það.á.þess.eigin.máli.
eingöngu. (þannig. má. skilja. tilvitnuð. orð.
hans.í.Skáldatíma),.þá.hefði.útkoman.getað.
orðið. raunsæislegur. skáldskapur,. en. varla.
hefði.hún.bent.neitt.útfyrir.þorpið,.hugar-
heim.þess ..En.Halldór.fléttar.þetta. tvennt.
saman,.þannig.að.útkoman.verður.raunsæ.
lýsing,. sem.sýnir,.hvernig. fólkið.mótast.af.
umhverfi. sínu,. en. jafnframt. verður. þessi.
hversdagsleiki. Íslendinga. ekki. sjálfsagður.
hlutur,. heldur. er. gerður. þeim. framandi,.
dreginn.í.efa.á.mjög.róttækan.hátt ..Þetta.er.
meginatriði. í.skáldsögum.Halldórs,.og.því.
eru.þær.raunveruleg.byltingarverk .“
Sem.áður.segir.er.mikill.fengur.að.þessum.
ævisögum,.þótt.báðum.sé.stórlega.ábótavant.
í.umfjöllun.um.bókmenntaverk.HKL,.sem.
eru.þó.meginatriðið.í.ævi.hans ..Eflaust.mun.
flestum. fróðleiksfúsum. Íslendingum. þykja.
rit.Hannesar.ótvíræður.sigurvegari ..En.bók.
HG.mun.þegar.vera.að.birtast.erlendis,.og.
þar.mun.rit.Hannesar.þykja.of.viðamikið .
Heimildir.m .a .:
Guðbergur.Bergsson:.„Ævisögur.Laxness“,.Þjóðmál I,
2,.bls ..40–42 .
Hannes.Hólmsteinn.Gissurarson:.„Rannsóknarfrelsi,
ritstuldur.og.viðurkennd...fræðileg.vinnubrögð .“.Saga.
2005,.1,.bls ..121–153 .
Helga.Kress:.„Meðal.annarra.orða ..Um.aðferðafræði
og.vinnubrögð.við.ritun.ævisögu.Halldórs.Laxness .“.
Saga.XLII;.1,.bls ..187–220.og.2;.bls .
187–222 .
Örn.Ólafsson:.Rauðu pennarnir,.Rvík.1990 .
Örn.Ólafsson:.Kóralforspil hafsins,.Rvík.1992 .
Eins.manns.fjölmiðla-
stofnun
Ólafur.Teitur.Guðnason:.Fjölmiðlar 2005,.
Bókafélagið.Ugla.,.Reykjavík.2006,.351.bls .
Eftir.Egil.Helgason
Fjölmiðlar.liggja.yfir.því.sem.er.misjafnt.í. fari. fólks .. Því. er. auðvitað. furðulegt.
að. þeir. séu. svo. viðkvæmir. fyrir. sjálfum.
sér .. Margir. blaðamenn. reiðast. mjög. þegar.
fundið.er.að.verkum.þeirra ..Kannski.hefur.
það. eitthvað. með. hégómleika. að. gera. –.
hann.er.mjög.ríkur.í.fari.blaðamanna ..Því.
er.ekki.að.undra.að.Ólafur.Teitur.Guðnason.
sé.með.óvinsælustu.mönnum.í.íslenskri.fjöl-
miðlastétt .. Ég. þekki. margt. fólk. sem. um-
hverfist.þegar.hann.er.nefndur.á.nafn ..
Ólafur.Teitur.hefur.tekið.að.sér.það.frem-
ur.vanþakkláta.hlutverk.að. rýna. í. íslenska.
fjölmiðla. til. að. finna. vitleysur,. staðlausa.
stafi,. léleg. vinnubrögð .. Stundum. spyr. ég.
mig.hvernig.maðurinn.nenni.þessu.–.varla.
hefur. hann. tíma. fyrir. margt. annað. –. en.
kannski. má. segja. að. með. þessari. klepps-
vinnu.sé.Ólafur.Teitur.orðinn.að.eins.manns.
fjölmiðlastofnun ..
„Fagleg“.umræða.um.fjölmiðlun.er.oft.á.
tíðum.mjög.leiðinleg,.sérstaklega.þegar.hún.
verður. mjög. fræðileg .. En. það. má. Ólafur.
Teitur.eiga.að.pistlar.hans.eru.skemmtilega.