Þjóðmál - 01.03.2009, Blaðsíða 33
Þjóðmál VOR 2009 31
Allt uppnámið við Seðlabankann að
und an förnu er mistök og vandræði . Heið
arleiki, einurð og góður vilji Jóhönnu verða
ekki dregin í efa hér, en margt bendir til
að hún hafi ógóða ráðgjafa . Hún ætti að
forðast þá sem hafa hvíslað í eyru henni
að undanförnu . Frumvarpið til breytinga
á lögum um Seðlabankann var illa undir
búið og varla hálfkarað . Og það fjallaði
alls ekki um neitt sem tengist vandræðum
þjóðarinnar um þessar mundir . Skipulag
bankastjórnar Seðlabankans brást alls
ekki, og frumvarpið hafði ekkert fram
að færa í peningamálum eða varðandi
peningastefnu .
Í þokkabót lét Jóhanna blekkja sig til að
skrifa bankastjórunum bréf . Upp úr þeirri
sendingu varð ljóst að allt málið var póli
tískt einelti . Alþingi getur hvenær sem er
breytt lögum og skipulagi stofnana og látið
fylgja með að stöður æðstu stjórnenda verði
lagðar niður . Það er ekkert óeðlilegt eða
persónulegt eða niðurlægjandi í slíku . En
það varð strax ljóst að málatilbúnaðurinn
þessu sinni var annar, verri og heiftúðugur .
Það eina sem hefur áunnist er að prýði
legu skipulagi hefur verið kollvarpað fyrir
einhvers konar kaffiselskap þar sem verður
töluð enska, mest með íslenskum og norsk
um hreim . Pólitískt einelti hefur verið
viðurkennt í landinu . Og trúverðugleiki
Seðla banka Íslands – þessi frægi ,,faglegi“
sem hagfræðingar tala mest um – er í
tætlum .
Smáfuglarnir taka undir með Steinunni Sigurðardóttur, rithöfundi, þegar hún
segir í Fréttablaðinu 28 . febrúar um þá
ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur, að setja
Norðmann í stöðu seðlabankastjóra:
„Lítur [embættisveitingin] kannski svona
út: Já grey Íslendingar þeir ráða ekki neitt
við neitt og eiga ekki einu sinni nógu hæft
fólk þessi angaskinn til að gegna mikilvægum
embættum . Þeir urðu bara að leita á náðir
Norðmanna, það var ekki annað að gera .
Kannski Stoltenberg geti fært út kvíarnar
og tekið að sér smá forsætisráðherrastörf
líka hjá litlu grannþjóðinni . Hann var
að minnsta kosti strax kominn að tala
norsku við íslensku blaðamennina, með
norska Seðlabankastjóranum í íslenska
Seðlabankanum .“
Smáfuglunum þykir einnig jafndæmalaust
hjá Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs,
að fara í Seðlabanka Íslands til að fagna
samlanda sínum þar, og að Stoltenberg skyldi
blanda sér í íslensk stjórnmál, þegar hann
óskaði eftir rauðri ríkisstjórn hér á landi á
blaðamannafundi með Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur við Bláa lónið .
Þessi framganga norska forsætisráðherrans
sýnir aðeins, að hann og Kristin Halvorsen,
fjár málaráðherra Noregs, flokkssystir Stein
gríms J . Sigfússonar, telja sig eiga gagnrýnis
laust innangengt í íslenskt stjórnmálalíf og
íslenska stjórnkerfið á annan hátt en Ís
lendingar hafa kynnst síðan þjóðin hlaut
sjálfstæði .
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort for ystu
menn ríkisstjórnarflokkanna hafi í valda
græðgi sinni tapað allri sómatilfinningu fyrir
hönd íslensku þjóðarinnar . Eitt er að þessir
for ystumenn flaðri upp um norska ráða menn,
annað að lítillækka þjóðina á þann veg, sem
gert hefur verið á þeim fáu vikum, sem þessir
forystumenn hafa verið völd .
Birtist á vefsíðunni amx .is
í byrjun mars 2009.
_____________________
Flaðrað upp um Norðmenn