Þjóðmál - 01.03.2009, Blaðsíða 54
52 Þjóðmál VOR 2009
ráði heldur fyrir tilviljun . Það væru helzt
blaða menn eða einhverjir slíkir sem kæmu
hreyfi ngu á hlutina, þegar það gerðist, með
því að komast á snoð ir um þá og upplýsa
almenn ing um þá .14 Muis var sérstaklega
fenginn frá Alþjóðabankanum til þess að
taka til í stjórnkerfi Evrópusambands ins
en lenti hvarvetna á veggjum í störfum
sínum . Enginn vilji reyndist fyrir því að
taka nokkurt tillit til ráðlegginga hans eða
athuga semda . Að lokum lét hann af störfum
árið 2004 eftir alls árangurslaust starf .
Lokaorð
Hæglega mætti rita langa ritgerð og vafalaust bók og jafnvel bókaflokk
um það hversu rotið, spillt og ólýðræðislegt
stjórnkerfi Evrópusambandsins er . Ljóst
er að af nógu er að taka í þeim efnum .
14 „Auditor urges EU culture change“, Bbc .co .uk 8 .
desember 2003 .
Seint verður sagt að sambandið sé einhvers
konar fyrirmynd þegar kemur að góðri
stjórnsýslu eins og sumir virðist halda í
einfeldni sinni . Mun nær væri að segja að
þar væri á ferðinni víti til að varast . Það er
ljóst að margt má betur fara hér á Íslandi
þegar kemur að stjórnsýslu landsins en það
er deginum ljósara að það verður ekki fært
í betra horf ef Íslandi verður komið inn í
Evrópusambandið . Staðan myndi aðeins
versna yrði slíkt skref tekið .
Það fer bezt á því að við Íslendingar
höldum í sjálfstæði okkar og fullveldi yfir
eigin málum og auðlindum okkar í stað þess
að framselja það vald í hendurnar á öðrum
sem seint munu ráðstafa því með sérstöku
tilliti til okkar hagsmuna og aðstæðna – eða
tilliti yfir höfuð . Við höfum reynt það áður
hvernig það er að láta aðra sjá um okkar mál
og sú reynsla verður seint talin jákvæð . Við
getum átt okkar slæmu og góðu daga en á
meðan við höldum örlögum okkar í eigin
höndum eru okkur allir vegir færir .
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi í Hafnarfirði spyr að því í grein í Frétta blaðinu í dag
[4 . mars] hvort frjálshyggjan hafi lagt Bretland og
Hafnarfjörð í rúst .
Tilefnið er að Lúðvík Geirsson bæjar
stjóri í Hafnarfirði lýsti því yfir á bæjar
stjórnarfundi nýlega að slæm fjárhagsstaða og
skuldasöfnun bæjarins væri frjáls hyggjustefnu
Sjálfstæðisflokksins að kenna . Rósa segir að
eftir sex ára stjórnartíð í Hafnarfirði hafi Sam
fylkingunni að öllum líkindum tekist að setja
heimsmet í skuldaaukningu .
Lúðvík og félagar hans í Samfylkingunni í
Hafnarfirði gerðu sömu mistök og svo margir
aðrir á undanförnum árum . Þeir létu glepjast af
ódýru erlendu lánsfé og höfðu ekki borð fyrir
báru . Hvernig átti Sjálfstæðisflokkurinn að
koma í veg fyrir að kratar í Hafnarfirði tækju
erlend lán?
Þessi mistök voru ekki aðeins gerð í Hafnarfirði
þótt þar hafi menn alveg gleymt að hafa botn
í bæjarsjóði og tappa í nýju sundlauginni .
Eins og Rósa bendir á þá hafa jafnaðarmenn
stjórnað í Bretlandi undanfarin áratug og óvíst
að breska ríkið hafi bolmagn til að taka meira
af fjármálakerfinu upp á arma sína en þegar er
orðið .
Þegar frá líður munu menn sjá að seðla
prentun ríkisins, ríkisábyrgðir á húsnæðislánum
og ríkistryggingar á inni stæðum eru rótin að
þeim vanda sem menn glíma nú við um allan
heim .
Úr VefÞjóðviljanum 4. mars 2009.
_____________________
Þetta er allt Sjálfstæðisflokknum að kenna!