Þjóðmál - 01.03.2009, Page 55
Þjóðmál VOR 2009 53
Þórdís Bachmann
Dýrmætast
er frelsið
Um afleiðingar innflytjendastefnu
Nýlega kom út bókin Dýrmætast er frelsið hjá Bókafélaginu Uglu . Hún
fjallar um þann vanda sem evrópsk sam
félög standa frammi fyrir vegna síaukins
fjölda innflytjenda til álfunnar úr ólíkum
menn ingarheimum . Þótt bókin líti aðal
lega til þátta er snerta innflytjendamál í
Noregi, eiga dæmin og textinn alveg jafn
vel við nágrannalöndin Danmörku og
Svíþjóð – en það merkilega er, að enginn
útgef andi fannst að bókinni einmitt í
Danmörku og Svíþjóð – efni hennar þótti
allt of eldfimt .
Höfundurinn, Hege Storhaug, er
norsk ur blaðamaður með sérþekkingu
á inn flytjenda málum . Hún starfar nú
við hugmyndasmiðj una Human Rights
Service í Noregi, sem hefur beitt sér fyrir
aðlögun innflytjendakvenna og barna .
Áður starfaði Storhaug sem blaðamaður
og rithöf undur, þar á meðal í Pakistan í
tvö ár og segist þar hafa misst sitt pólitíska
og menn ingarlega sakleysi . Storhaug segir:
„Ég sá líf fólks eyðilagt af ómanneskjulegri
hug myndafræði . Sömu hópsálarlegu og
ofstæk is fullu hugmyndakerfin er líka að
finna í Nor egi og festa stöðugt sterkari
rætur . Óháð birt ingarmynd valdsins, hef
ég ávallt barist gegn óréttlæti og ofbeldi .
Á síðustu árum hefur ný hvatning komið
til: óróleiki vegna framtíðar al menns og
veraldlegs lýðræðis . Viðkvæmt lýð ræð
ið á að baki stutt tímaskeið í langri sögu
mann kyns . Innflutningur fólks og aukin
áhrif trú ar pólitískra afla getur leitt til þess
að hug mynda fræðilegur grunnur lýðræðis
okkar veikist .“
Innflytjendum fjölgar stöðugt
Innflutningur fólks er að breyta grundvall ar mynd norsks þjóðfélags . Eftir
nokkur ár verða innflytjendur meirihluti
íbúa í Ósló . Fyrir aldarlok mun meirihluti