Tölvumál


Tölvumál - 01.11.2005, Side 17

Tölvumál - 01.11.2005, Side 17
Farsímatækni Tölvumál 17 Handtækin eru hönn- uð miðað við fyrir- tækjanotkun og hafa engan stuðning við lausnir eins og MP3 spilara eða mynda- vélar, en skýringuna er líka að finna í gagnaöryggi og líftíma á rafhlöðu. sér alfarið um rekstur og notendaumsjón á þ.m.t. handtækjum sem tengjast þjóninum. Hægt að uppfæra og breyta upplýsinga- tæknistefnu fyrirtækisins hlaupandi með því að uppfæra handtækin yfir MDS burð- arlagið fjarrænt, og hægt er t.a.m. að hindra notkun á hverskyns farsímaþjón- ustum eins og SMS, WAP og MMS. Hægt er að breyta lykilorðum sem gleym- ast, læsa tækjum og eyða gögnum ef tæki týnast og taka afrit af gögnum miðlægt og færa þau yfir í nýtt handtæki ef með þarf. Ennfremur er stuðningur við að afrita öll samskipti sem fara fram á og yfir tækin í gegnum BES þjóninn. BIS lausnin Hér fær notandi vefaðgang af notandaum- sjónarkerfi sem er staðsett á vefnum og pósthólf sitt með BlackBerry netfangi. Frá þessu umsjónarkerfi er hægt að tengja allt að 10 ytri pósthólf í gegnum POP3 eða IMAP tengingar og fá póst frá þeim póst- hólfum í rauntíma. Ýmsar stillingar eru í boði t.d. hver sendandi tölvupósts sé úr handtækinu og möguleiki er á að setja upp póstsíur. Umsjónarkerfið takmarkast að mestu við tölvupóstshólfið og ekki er hægt að fá PIM tilkyningar eins og í BES lausninni. Öll umferð fer yfir TCP/IP tengingu frá handtækinu á proxiþjón sem er hýstur hjá RIM og ekki er boðið upp á 3DES eða AES dulkóðun á burðarlaginu. Hægt er að setja upp skjáborðsstjórnanda (e. Desktop Manager) til að afrita gögn úr tækinu og samstilla við staðbundið tölvu- póstkerfi. Handtækin Handtækin eru hönnuð miðað við fyrir- tækjanotkun og hafa engan stuðning við lausnir eins og MP3 spilara eða mynda- vélar, en skýringuna er líka að finna í gagnaöryggi og líftíma á rafhlöðu. Hug- búnaðaruppfærslur í handtækin fara fram yfir vefinn og með hjálp skjáborðstjórn- anda. Stuðningur er við allar farsímaþjón- ustur eins og SMS,WAP og MMS í hand- tækjunum og hægt er að þróa lausnir sem eru samhæfðar við J2ME, IDP 2.0 og JavaScript 1.3 svo eitthvað sé nefnt á móti handtækjunum. Umferð á WAP, MMS og SMS fer þó alltaf yfir farsímakerfin ein- göngu og þar af leiðir er sértækur WAP og MMS vafri í handtækjunum. Handtækin styðja ennfremur svokölluð P2P skila- boðakerfi sem rekið er af RIM og notend- ur geta haft samkipti sín á milli á þeim Mynd 1. Uppbygging á BlackBerry BES lausn. Skilaboðin ferðast frá póstþjóni fyrirtækis, í gegnum BES þjón, yfir eldvegg og til samskiptamiðstöðvar RIM. Þaðan ferðast þau áfram til þess aðgangs- nets sem notandi er tengdur, hér GSM-GPRS farsímakerfis.

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.