Tölvumál - 01.11.2005, Page 28
Samþætting
28 Tölvumál
Rekstur samþættingar-
lausna fellur mjög vel
að þjónustumiðaðri
högun.
Flest stærri fyrirtæki
landsins eru nú í óða
önn að leggja drög
að samþættingu sinna
kerfa við kerfi birgja,
viðskiptavina eða sam-
starfsaðila.
Auk tengla við sjálf grunnkerfin gerir
samþættingarbúnaður af þessu tagi kleift að
vinna með gögn sem fara um brautina.
Vörpun gagna úr einu formi í annað, stýring
dreifileiða og meðhöndlun gagnanna á ýms-
an hátt er möguleg með einföldum hætti.
Gögn geta með þessum hætti flætt milli
kerfa á sjálfvirkan hátt, eða með aðkomu
notenda í þeim tilfellum sem þess er þörf.
Sem dæmi um inngrip notenda má nefna
reikninga sem senda þarf til samþykktar ef
þeir eru yfir ákveðinni upphæð. Í þessum
tilfellum gefur samþættingarbúnaðurinn
möguleika á tengingum við stöðu- eða stig-
unarvél (e. workflow engine).
Góður samþættingarbúnaður miðar ekki
einungis við flutning gagna milli kerfa inn-
an fyrirtækis eða stofnunar. Með aukinni
áherslu á rafræn viðskipti aukast kröfur til
samþættingar milli fyrirtækja. Flest stærri
fyrirtæki landsins eru nú í óða önn að leggja
drög að samþættingu sinna kerfa við kerfi
birgja, viðskiptavina eða samstarfsaðila.
Samþætting – Grunnur að þjónustumið-
aðri högun
Við innleiðingu samþættingarlausna þarf að
gæta vel að því í upphafi hvernig lausninni
skuli beitt gagnvart þeim kerfum sem fyrir
eru þannig að samstæð og vel skilgreind
högun verði niðurstaðan. Sú högun sem
flestir hallast að í þessu samhengi má nefna
þjónustumiðaða högun sem þýðingu á enska
hugtakinu Service Oriented Architecture.
Þjónustumiðuð högun byggir á laustengdu
en vel skilgreindu safni af þjónustum sem
hver um sig framkvæmir einstaka aðgerð
eða ferli. Þjónustan er nýtileg frá margs
konar kerfum hvort heldur þau eru innan
eða utan veggja þess sem hana veitir.
Rekstur samþættingarlausna fellur mjög vel
að þjónustumiðaðri högun. Með slíkum
lausnum má hjúpa innri kerfi og tengjast
þeim utan frá í gegnum afmarkaðar vel skil-
greindar þjónustur. Í flestum tilfellum má
framlengja líftíma eldri kerfa þar sem að-
gengi að þeim er nú veitt í gegnum þjón-
ustulag. Ofan á þjónustulagið má svo útfæra
eða endurnýja viðmót sem þá má samræma
eða útvíkka. Flestar samþættingarlausnir
bjóða upp á margs konar útfærsluleiðir fyrir
þjónustulag. Algengast er að útfæra þær
sem vefþjónustur þó að nota megi aðrar
leiðir. Mynd 3 sýnir hvernig þjónustulag er
útfært með samþættingarlausn.
Hönnun og útfærsla viðskiptaferla
Með þjónustumiðaðri högun verða til ein-
ingar sem nota má sem grunn að uppbygg-
ingu samsettra kerfa og við skilgreiningu og
útfærslu viðskiptaferla (e. Business Process
Management). Flestir framleiðendur sam-
þættingarverkfæra bjóða búnað eða verkfæri
sem gera kleift að skilgreina viðskiptaferli
og hanna þannig eða jafnvel framleiða
lausnir eða heil kerfi sem byggja á og tengja
Vörpun , vinnsla og umbreyting gagna
AS/400 / S390 /
Gagna -
grunnar
Message
Broker
Integration
Server
Rekstrar -
eftirlit
Skrár
SÈrsmÌu
lausn
Beinar
tengingar
Forritunarskil
API
NotendurYtri kerfi
Skeytatengill
C++ / VB /
Java API
Forritunarskil
API
Workflow
Þróunar- og
rekstrarumhverfi
Aðrar
starfsstöðvar
Þróunar-
verkfæri Vefþjónustur Vefþjónn
Tenglar við
stórtölvu-
umhverfi
Tenglar við
gagnagrunna
Tenglar við
skrár
Tenglar við
staðlaðar
lausnir
Stöðluð
lausn
Stöðluð
lausn
FTP /
Email oþh
Aðrar
lausnir
Aðgangur um vef eða ytri kerfi
S A M Þ Æ T T I N G A R L AU S N
Mynd 2.