Morgunblaðið - 12.09.2015, Qupperneq 6
Fjölgun áfangastaða
» Áfangastöðum í leiðarkerfi
Icelandair fjölgar um þrjá á
næsta ári þegar heilsársflug
hefst til Chicago, Montreal og
Aberdeen
» Flugmenn félagsins voru
282 árið 2012 en hefur fjölgað
í 366 á þessu ári. Einnig hefur
verið fjölgað í áhöfn og fleiri
störf skapast í tengslum við
flugreksturinn.
» Forstjóri Icelandair Group
segir félagið lykilhlekk í vexti
ferðaþjónustunnar.
Farþegafjöldi
2009 2011 2013 20152010 2012 2014 2016
spá áætlun
Heimild: Icelandair
3.500.000
3.000.000
2.500.000
2.000.000
1.000.000
500.000
0
Flugflotinn stækkar ört
Heimild: Icelandair
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
24 Boeing þotur
21 Boeing þotur
16 Boeing þotur
14 Boeing þotur
18 Boeing þotur
12 Boeing þotur
26 Boeing þotur
BAKSVIÐ
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Umsvif Icelandair, dótturfélags
Icelandair Group, hafa aukist
stórum skrefum ár frá ári og nú er
áætlaður fjöldi farþega á næsta ári
3,5 milljónir. Gangi það eftir munu
rúmlega tveimur milljónum fleiri
farþegar ferðast með vélum félags-
ins árið 2016 en
á árinu 2010 og
hefur farþega-
fjöldinn þá auk-
ist um 136% á
sex árum. Í ár er
gert ráð fyrir að
farþegafjöldinn
fari í fyrsta
skipti yfir þrjár
milljónir. Leiða-
kerfi félagsins
hefur nærri þre-
faldast að umfangi frá árinu 2009
þegar farþegar voru um 1,3 millj-
ónir.
Flugferðum Icelandair fjölgar úr
6.836 árið 2012 í rúmlega tíu þús-
und í ár og fast að 11.400 á næsta
ári gangi áætlanir eftir og flogið er
til mun fleiri áfangastaða. Árið
2000 voru áfangastaðir félagsins 17
en flogið verður til 42 áfangastaða
í leiðakerfinu á næsta ári, sem er
fjölgun um þrjá staði á milli ára.
Tíðni ferða eykst á fjölmarga
áfangastaði beggja vegna Atlants-
hafsins og tengimöguleikar í leiða-
kerfinu hafa margfaldast á örfáum
árum eða úr 130 árið 2010 og
verða 410 á næsta ári gangi allt
eftir að því er fram kemur í tölum
sem forráðamenn félagsins kynntu
nýlega á fjárfestadegi.
Flugáætlun Icelandair, dótt-
urfélags Icelandair Group, fyrir
árið 2016 verður um 18% umfangs-
meiri en á þessu ári. Alls verða 26
flugvélar nýttar til farþegaflugsins
næsta sumar, tveimur fleiri en á
þessu ári.
Skattspor Icelandair
19,3 milljarðar í fyrra
Ferðaþjónustan á Íslandi er orð-
in helsti drifkraftur útflutnings og
atvinnulífs og hefur vöxtur umsvifa
Icelandair mikil áhrif á eflingu
hennar. Björgólfur Jóhannsson,
forstjóri Icelandair Group, segist
líta svo á að allar þrjár meginstoð-
irnar í atvinnulífinu ferðaþjón-
ustan, sjávarútvegurinn og orku-
geirinn, geti unnið saman, eflst og
dafnað.
,,Allt snýr þetta að útflutningi
og að búa til gjaldeyri,“ segir
Björgólfur. Stóraukin starfsemi fé-
lagsins skilar sífellt stærri hlut til
þjóðarbúsins og bendir Björgólfur
á að skattspor Icelandair Group,
þ.e. þær fjárhæðir sem félagið inn-
heimtir fyrir hið opinbera af laun-
um s.s. í sköttum og greiðslu
tryggingagjalds auk virðis-
aukaskatts, var 19,3 milljarðar á
seinasta ári.
,,Það er í mínum huga af-
skaplega mikilvægt að okkur skuli
takast að vera með íslenskt félag
sem greiðir skatta og skyldur inn í
íslenskt samfélag. Ég veit ekki til
þess að nokkurt annað félag hvort
sem er í flugi eða annarri ferða-
tengdri starfsemi skili annarri eins
fjárhæð og starfsemi þessa félags.
Í mínum huga er starfsemi Ice-
landair og Icelandair Group lykil-
hlekkur í vexti og viðgangi ferða-
þjónustunnar,“ segir hann.
Hreinn hagnaður 32
milljarðar króna frá 2010
Fram kemur í kynningargögnum
forsvarsmanna félagsins á fjár-
festadeginum að frá árinu 2010
hefur rekstrarhagnaður fyrir fjár-
magnsliði og skatta (EBITDA) af
starfsemi Icelandair Group numið
643 milljónum dollara eða sem
svarar til rúmlega 82 milljarða ís-
lenskra króna á núverandi gengi.
Hreinn hagnaður á tímabilinu
svarar til 248 milljón dollara (tæp-
lega 32 milljarða króna) og hand-
bært fé frá rekstri samsvarar rúm-
um 140 milljörðum kr. Arður til
hluthafa frá 2010 nam 55 millj-
ónum dollara eða sem jafngildir
um 7 milljörðum króna á gengi
dagsins.
Í frétt frá félaginu í vikunni um
áframhaldandi vöxt í millilanda-
fluginu á næsta ári kom fram að
framboð Icelandair mælt í svo-
nefndum sætiskílómetrum eykst
um 18% á næsta ári, en flug-
ferðum í millilandaflugi fjölgar um
14%.
„Munurinn skýrist annars vegar
af auknu vægi flugs á lengri flug-
leiðum til Norður-Ameríku og hins
vegar af því að stækkun flugflot-
ans á næsta ári felst í því að tvær
262 sæta Boeing 767-300 breiðþot-
ur bætast í flota félagsins. Nýju
vélarnar taka fleiri farþega en Bo-
eing 757 vélarnar sem félagið not-
ar annars,“ segir þar.
Farþegafjölgun 2 milljónir frá 2010
Starfsemi Icelandair Group vex áfram hröðum skrefum Flugferðir allt að 4.600 fleiri á næsta ári
en árið 2012 Lykilhlekkur í vexti og viðgangi ferðaþjónustunnar, að sögn Björgólfs Jóhannssonar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Farþegaflug Yfirleitt lenda vélar Icelandair á Keflavíkurflugvelli en vegna veðurs þarf stundum að lenda á Reykjavíkurflugvelli.
Björgólfur
Jóhannsson
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015
BERLÍN – AÐVENTUFERÐIR 26. NÓV., 3., 10. OG 17. DES.
Berlín er dásamleg á aðventunni. Á jólamörk-
uðunum má finna ógrynni af fallegu jólaskrauti,
jólavöru, handverki, gjafavöru og ýmsu góðgæti.
Jólastemmningin í Berlín er ógleymanleg upplifun.
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
VERÐ FRÁ
89.900 KR.
á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli.
Formenn og
varaformenn að-
ildarfélaga
Starfsgreinasam-
bandsins telja
brýnt að endur-
meta forsendur
kjarasamninga á
almenna mark-
aðnum sem und-
irritaðir voru í
maí í ljósi niður-
stöðu gerðardóms.
Dómurinn setji ný viðmið á vinnu-
markaði sem séu í verulegu ósam-
ræmi við þau viðmið sem samninga-
nefndir SGS og Flóabandalagsins
sömdu um.
Spurður hvað átt sé við með end-
urmati á forsendum samninganna
svarar Björn Snæbjörnsson, formað-
ur SGS:
„Er hægt að fá einhverjar bætur
inn í þetta? Menn vilja skoða það og
hvort möguleiki er á að rétta okkar
hlut.“
Málið skoðað ofan í kjölinn
Á fjórða tug forystumanna aðild-
arfélaganna sátu tveggja daga for-
mannafund á Egilsstöðum þar sem
m.a. mikil umræða fór fram um stöð-
una í kjaramálum eftir úrskurð gerð-
ardóms.
Björn segir að ákvörðun um for-
sendur samninganna verði tekin í
febrúar en menn vilji skoða málið of-
an í kjölinn á næstunni.
„Við sjáum að ef forsendurnar
fara í sundur þá verður farið í eitt-
hvert ferli sem enginn veit hvernig
endar,“ segir Björn.
Í samþykkt fundarins segir m.a.
að niðurstaða gerðardómsins hafi
verið sú að hækka ákveðna hópa há-
skólamenntaðs fólks hlutfallslega
meira en gert var í almennu samn-
ingunum.
,,Ekki er tekið tillit til samstöðu
um hækkun lægstu launa né skatta-
breytinga í gerðardómnum. Það eru
gríðarleg vonbrigði og lýsir algerum
dómgreindarbresti að gerðardómur
hafi litið algjörlega framhjá þeim
leiðbeiningum sem dómurinn átti að
vinna eftir til að stuðla að stöðug-
leika.“ omfr@mbl.is
Vilja rétta sinn hlut
Formenn aðildarfélaga SGS funduðu á Egilsstöðum
Gagnrýna breyttar forsendur samninga eftir gerðardóm
Björn
Snæbjörnsson