Morgunblaðið - 12.09.2015, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Eggert
Rithöfundurinn Katja Kettu er hrifin af Íslandi og hún lauk við að skrifa fyrstu bók sína hér á landi.
er hversu Villiauga er fróð um jurtir
og lækningamátt þeirra.
„Hér áður fyrr fluttist kunn-
áttan um jurtir í gegnum kynslóð-
irnar frá konu til konu. Amma mín
kenndi mér grunnatriði um hvaða
jurtir eru græðandi, hverjar róa
magann og fleira í þeim dúr. Þessi
sama amma mín var uppi á styrjald-
arárunum og hún var ótrúlega já-
kvæð manneskja. Hún elskaði lífið
og ástina. Á tímum þar sem fólk veit
ekki hvað morgundagurinn ber í
skauti sér, er mikil þörf fyrir ást-
ina.“
Lyktin af kærastanum best
Villiauga er afar næm mann-
eskja og tengd náttúrunni. Víða í
sögunni koma fyrir atriði þar sem
hún finnur lykt sem nútímafólk er
löngu hætt að finna, lyktina af ótta
og lyktina af greddu.
„Í Lapplandi þar sem ég ólst
upp eru vetur langir og dimmir og
allt þakið hvítum snjó. Þá eru engir
litir og það finnst ekki lykt af neinu.
Loksins þegar stutta sumarið kem-
ur þá verðum við sólgin í lyktina og
litina af nývakinni náttúru. Kannski
þess vegna skiptir lykt okkur miklu
máli. Mér finnst til dæmis lyktin af
kærastanum mínum
vera rétta lyktin fyrir
mig. Fólk á ekki að vera
saman nema lyktir þess
passi saman. Í okkur öll-
um búa fornar minningar
og vitneskja um lykt og
bragð, sem við kunnum
því miður ekki lengur að
lesa í.“
Æskan í skóginum og
háskaleikir á ánni
Náttúran er allt um
lykjandi í sögunni, allir
hennar kimar og krókar, bæði í okk-
ur og utan við okkur. Því vakna
spurningar um hvort Katja hafi
sjálf alist upp í nánd við náttúruna.
„Ég ólst upp í litlum bæ í Lapp-
landi, Rovaniemi, og frændi minn
átti sleðahunda sem ég elskaði.
Hann var líka með hesta og fleiri
skepnur og ég var vön að hjálpa til
með kýrnar. Mínar bestu æsku-
minningar eru frá því að hlaupa um
í skóginum með vinum mínum þar
sem við spunnum upp ævintýri við
hvert fótmál. Við duttum inn í aðra
heima og lékum okkur til dæmis að
því að ferðast á trjádrumbum sem
söfnuðust upp í ánni. Ég veit þetta
var háskaleikur og ekki til eft-
irbreytni, en það var gaman,“ segir
Katja og hlær prakkaralegga.
Þýðendur mínir hata mig
Katja hefur góð tök á tungu-
málinu, hún býr til mikið af nýjum
orðum og skeytir saman ólíklegustu
orðum. Textinn er á köflum mikil
orða- og stílveisla. Fyrir vikið má
gera ráð fyrir að það hafi verið ögr-
andi verkefni fyrir Sigurð Karlsson
að þýða bókina, en það hefur honum
tekist einstaklega vel.
„Allir þýðendur mínir hata mig
á einhverjum tímapunkti vegna
þessa,“ segir Katja og hlær. „En
þeir hafa staðið sig stórvel og marg-
ir þeirra hafa fengið virt þýðing-
arverðlaun fyrir að sigrast á texta
mín og skilað honum yfir á annað
tungumál. Tungumálið heima í
Lapplandi er mjög ríkt af orðum, en
mér finnst líka mjög gaman að búa
til orð og leika mér með orð. Ég geri
það líka til að komast nær fólki..“
Kynþáttahatur hefur aukist
Katja hefur verið dugleg við að
tjá sig um pólitísk málefni heima-
fyrir. „Því miður hafa mál þróast
þannig í Finnlandi að íhaldsstefnu
hefur vaxið fiskur um hrygg og kyn-
þáttahatur hefur aukist. Reiðar
mannhatursraddir verða æ hávær-
ari. Ég tók þátt í mótmælum þar
sem ég stóð frammi fyrir tíu þúsund
manns og mótmælti stefnu stjórn-
valda, meðal annars vegna þess að
hún hefur bitnað mest á ungum
konum á lægstu laununum. Ég vil
ekki þegja. Ég veit að sumir rithöf-
undar kjósa að þegja þegar kemur
að stjórnmálum, og ég virði þá
ákvörðun þeirra, en ég sé enga
ástæðu til að þegja þegar samviska
mín segir mér að láta rödd mína
heyrast.“
Sagt að gerast einkaritari
Katja er femínisti og hún segir
að konur eigi ekki vera þægar og
þöglar.
„Það skiptir máli að segja þeim
það. Þær þurfa að virða sjálfar sig
og verk sín,“ segir Katja sem er
meðfram rithöfundarstarfinu söng-
kona í pönkhljómsveitinni Confusa.
Katja segist alltaf hafa verið að
skrifa og teikna, alveg frá því hún
var stelpa.
„Þegar ég var í miðskóla sýndi
kennarinn minn listamanni ljóðin
mín handskrifuð sem ég hafði lagt
hjarta mitt og blóð í eins og títt er
um ungt fólk, og hann átti að hjálpa
ungum rithöfundum að komast
áfram. En hann fékk einhverskonar
áfall og hvarf til Spánar með ljóðin
mín og ekkert kom út úr þessu. Ég
leit á það sem skýr skilaboð um að
ég ætti ekki að gerast rithöfundur.
Ég sagði samt við kennarann minn
að mig langaði til að verða rithöf-
undur og þá sagði hann að ég ætti
kannski að gerast einkaritari,“ seg-
ir Katja og hlær.
„Ekki veit ég hvort það var af
því að ég var stelpa og frá Lapp-
landi, en þessi viðbrögð voru mikil
vonbrigði fyrir mig, því þetta var
stóri draumurinn minn.“
Katja skellti sér í listaháskóla í
Turku og útskrifaðist sem leikstjóri
í teiknimyndagerð, þannig gat hún
sameinað áhuga sinn á teikningu,
kvikmyndum og því að segja sögur.
„En ég hélt áfram að skrifa og
sýndi starfsfélaga mínum í teikni-
myndagerðinni handrit með nokkr-
um sögum sem ég átti í fórum mín-
um og hann sýndi rithöfundi það
sem leist vel á og fór með það til út-
gefanda sem sagði: Jú, þú ert góð í
þessu, en nú þarftu að fara að
vinna. Skrifa af alvöru,“ segir Katja
og hlær.
„Þá fór ég í háskólanám í
finnskum bókmenntum, því ég vissi
að nú ætti ég möguleika. Ég skrif-
aði handritið að fyrstu bókinni
minni, The Sorrow Collector, sem
ég reyndar lauk við að skrifa hér á
Íslandi. Áhrifa frá íslenskri náttúru
gætir í þeirri bók. Himinninn hér er
magnaður, með margskipt lög af
skýjum. Ég heimsótti Dimmuborg-
ir og þar er auðvelt að láta ímynd-
unaraflið fara af stað. Ég elska
töfraraunsæi og með skrifunum get
ég kíkt inn í aðra heima.“
Kvikmynd um ljósmóðurina
Katja segist sjá hlutina fyrir
sér mjög myndrænt þegar hún er
að skrifa og því skal engan undra
að fyrir viku var frumsýnd kvik-
mynd sem gerð er eftir sögu henn-
ar um ljósmóðurina. Katja skrifaði
fyrstu útgáfuna af kvikmynda-
handritinu.
„Antti J. Jokinen leikstýrir
myndinni og ég er mjög ánægð með
hana. Reyndar hefði ég viljað hafa
hlut Samastelpunnar Möshu
stærri, því mér þykir vænt um hana
og samband hennar við aðalpersón-
una, Villiauga. En það er ekki auð-
velt að velja hverju á að sleppa úr
heilli bók þegar gerð er tveggja
tíma kvikmynd eftir henni. Áhersl-
an í myndinni er á ástina, og ég er
ánægð með það.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015
NÚ Í NÝJUM UMBÚÐUM
LJÚFFENGA HEILHVEITIKEXIÐ
SEM ALLIR ELSKA
Spennutryllirinn, Það er
margt sem myrkrið veit,
eftir Ingu Söndru Hjart-
ardóttur og Lovísu Láru
Halldórsdóttur, bar sigur
úr býtum á stuttmyndahá-
tíðinni Gullmolinn, sem í
vikunni var haldin í annað
skipti. Hátíðin var haldin í
Molanum, ungmennahúsi í
Kópavogi. Sigurmyndin
fjallar um Unu sem upp-
lifir yfirnáttúrulega hluti í
kjölfar fóstureyðingar.
Í öðru sæti var New
York, New York eftir Arnar
Geir Gústafsson og Birni
Jón Sigurðsson, en hún
segir frá vináttu tveggja
drengja og fylgjast áhorfendur með síðasta degi þeirra saman. Heimild-
armyndin Amma eftir Eyþór Jóvinsson, sem segir frá jólahaldi á Flatey var í
þriðja sæti.
Gullmolinn, ungmennahús Kópavogs, hélt utan um hátíðina, sem ætlað er
að vera lyftistöng efnilegra kvikmyndagerðarmanna.
Stuttmyndahátíðin Gullmolinn
Spennutryllir var í fyrsta sæti
Gullmolar Inga Sandra Hjartardóttir og Birnir
Jón Sigurðsson náðu góðum árangri.
Nýjasta bókin, Ljós-
móðir af Guðs náð
(The Midwife, Kätilö)
er þriðja bók Kötju og
kom út 2011. Áður
hafði hún gefið út
bækurnar The Sorrow
Collector (Suruj-
enkerääjä, 2005) og
The Welder (Hit-
saaja, 2008).
Síðan hafa komið
út tvær bækur, Pipe
Collector (Piip-
puhylly,2013) sem er
smásagnasafn, og Hawk Moth (Yö-
perhonen, 2015)
Bækurnar
hennar Kötju
AFKASTAMIKIL