Morgunblaðið - 12.09.2015, Síða 12

Morgunblaðið - 12.09.2015, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015 STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Nú tekur veiði að ljúka í þeim lax- veiðiám landsins þar sem veiðin hófst fyrst í sumar. Búið er að ganga frá við Norðurá og endaði veiðin í 2.886 löxum, sem er býsna gott, fjórða besta veiðiárið síðustu áratugi en 2013, 2008 og 2005 veiddust yfir 3.000 laxar í ánni. Laxveiðin hrökk seint í gang í sumar en síðan hefur afar góður gangur verið víða í henni, inn í sept- embermánuð. Og enn berast fregnir af stöku lúsugum nýrenningum í afl- anum. Samkvæmt samantekt Þor- steins Þorsteinssonar frá Skálpastöð- um fyrir vef Landssambands veiðifélaga, er heildartalan úr viðmið- unaránum, sem stóð í 43.515 löxum á miðvikudagskvöldið var, og veiðin í síðustu viku með því besta sem sést hefur síðasta áratug. Ef hafbeit- arárnar eru undanskildar var viku- veiðin sú besta í sjálfbæru ánum á þessum tíma síðan tekið var að halda utan um þessar veiðitölur. Af hafbeit- aránum er Ytri-Rangá gjöfulust og var síðasta vika þar býsna góð, þegar nær eittþúsund löxum var landað. Gekk hægt upp í Kjarrá Auk Norðurár er veiði einnig lokið í Straumunum, ármótum Norðurár og Hvítár í Borgarfirði. Þar er ein- ungis veitt á tvær stangir og voru 339 laxar færðir til bókar, sem er býsna gott. Veiðin hefur ekki síður verið góð í Brennu, ármótum Þverár og Hvítár, þar sem veitt er á þrjár stangir. Þar höfðu á miðvikudag veiðst 450 laxar. Sumarið var annars óvenjulegt uppi í ánum, Þverá niðri í byggð og Kjarrá sem nær upp á Tví- dægru. Veiðin virðist vera þar í ágætu meðaltali síðasta áratugar en í sumar gekk laxinn furðu seint upp ána. Fyrir vikið var lengi mok í Þverá, og ekki síst í tveimur eða þremur helstu veiðistöðunum, þar til laxinn rann á fjallið þegar leið á ágústmánuð. Andrés Eyjólfsson yf- irleiðsögumaður, sem hefur verið við ána í á fjórða áratug, segir þetta vera annað sumarið á þeim tíma þar sem betur veiðist í Þverá en í Kjarrá. Í fyrri hluta ágústmánaðar voru hollin uppfrá að fá um þrjátíu laxa en talan allt að tvöfaldaðist þegar leið að lok- um mánaðarins. Þegar blaðamaður kom þar við fyrstu daga september var laxinn orðinn vel dreifður, þó veiðin væri best ofarlega, á Gils- bakkaeyrum og á efsta svæðinu, í hinum kunnu Rauðabergshyljum. Hollið fékk sextíu. Ýmis veiðimet Þegar horft er norður yfir heiðar hefur mátt sjá veiðimet falla í nokkr- um ám. Enn er veitt í Miðfjarðará og veiðin að verða þriðjungi meiri en fyrra met sem var 4.004 laxar. Veiði- menn eru sammála um að í ánni sé furðulega mikið af laxi og hafa ekki séð annað eins. Enn er veiðin á dags- stöng allt að sjö laxar að meðaltali. Í Blöndu hefur hægst á veiðinni, vikan gaf tæplega 130 laxa en í Hrútafjarðará er fyrra veiðimet fall- ið, 701 lax sumarið 2013, en á mið- vikudagskvöldið var höfðu veiðst 710 í Hrútu og enn fín veiði í ánni. Frá Svalbarðsá í Þistilfirði, þar sem veitt er á þrjár stangir, bárust í sumar fregnir af furðugóðri veiði í ákveðnum hollum. Því kemur ekki á óvart að heyra að þar sé metveiði. Fyrir fjórum árum veiddust 562 lax- ar yfir sumarið en á miðvikudag höfðu 602 verið færðir til bókar, og enn er veitt. Þá er fallið fyrra met í hinni „nýju“ laxveiðiá Jöklu, Jökulsá á Dal, með hliðaránum Laxá, Kaldá og Fögruhlíðará. Áður höfðu veiðst á fjórða hundrað laxa á svæðinu en nú er búið að veiða hátt í sexhundruð laxa. „Þetta eru alvöru fiskar“ „Það hefur gengið rosalega vel í sumar og veiðin hefur verið ótrúlega jöfn,“ segir Jóhann Hafnfjörð Rafns- son, einn leigutaka Víðidalsár og staðarhaldari. Góður gangur hefur verið á veiðinni í Víðidal eins og hin- um húnvetnsku ánum, 1.400 laxar höfðu veiðst á miðvikudag sem er miklum mun betri staða en á sama tíma undanfarin ár. Jóhann segir þorra aflans vera smálax en þó sé töluvert af tveggja ára laxi líka að veiðast. „Þetta er mjög gott ár. Besta vikan gaf um 200 laxa og sú lakasta um 100, þú sérð hvað þetta er jafnt. Ágústmánuður var einstaklega góður,“ segir hann en veitt er í Víðidalnum til 25. sept- ember. Hann segir meðalveiði árinnar vera 1.150 til 1.200 laxar á sumri. „Við endum vonandi í um 1.600 löxum og allir eru mjög ánægðir. Svo hefur verið þokkaleg silungs- veiði. Bleikjan gekk seint, eins og lax- inn alls staðar, en allt virðist hafa verið á eftir áætlun í náttúrunni þetta árið. Töluvert hefur veiðst af urriða og bleikju á laxasvæðinu í ágúst, þar á meðal er talsvert af stórum urriða sem er fjögur til tíu pund, staðbund- inn og sjóbirtingur. Þetta eru alvöru fiskar. Og bleikjan falleg; stór og vel haldin.“ Ýmis veiðimet falla í laxveiðiám  Þótt enn sé veitt í flestum laxveiðiám er veiðin víða betri en áður  Metveiði í Hrútafjarðará, Svalbarðsá og Jöklu  Enn er mokstur í Miðfjarðará  Ágúst var „einstaklega góður“ í Víðidal Morgunblaðið/Einar Falur Líflegt Martin Bell glímir við öflugan nýrenning í Ytri-Rangá þar sem nær eitt þúsund laxar veiddust í liðinni viku. Aflahæstu árnar Heimild: www.angling.is* Lokatölur ** Tölur liggja ekki fyrir Ytri-Rangá & Hólsá (20) Miðfjarðará (10) Blanda (14) Norðurá (15) Eystri-Rangá (18) Þverá-Kjarrá (14) Langá (12) Haffjarðará (6) Laxá á Ásum (2) Víðidalsá (8) Laxá í Dölum (6) Hítará (6) Vatnsdalsá (7) Grímsá og Tunguá (8) Selá (8) Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði Á sama tíma í fyrra Á sama tíma 2013 Staðan 9. september 2015 2.074 1.501 1.901 924 2.289 1.137 524 777 941 574 145 381 684 458 942 4.626 3.379 2.580 3.220 4.020 3.314 2.532 2.150 1.019 781 626 ** 1.013 1.419 1.620 6.609 5.485 4.665 2.885* 2.523 2.274 2.167 1.624 1.588 1.400 1.291 1.222 1.146 1.125 1.086 Innritun stendur yfir fyrir skólaárið 2015-2016 • Börn, unglingar og fullorðnir. • Byrjendur velkomnir sem og lengra komnir. • Vinsælu hljómborðsnámskeiðin að hefjast. • Einkatímar. Ármúli 38, 108 Reykjavík • Sími 551 6751 og 691 6980 pianoskoli@gmail.com • pianoskolinn.is Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlæknir á Landspítala og prófessor við læknadeild Háskóla Ís- lands, hefur verið kjörinn formaður Samtaka hjarta- og lungnaskurðlækna á Norðurlöndunum. Í samtökunum eiga sæti allir sérfræðingar í hjarta- og lungnaskurð- lækningum á Norðurlöndunum og er hlutverk samtak- anna að skipuleggja fræðslu- og vísindastarf innan sér- greinarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur er valinn forseti í 66 ára sögu samtakanna. Tómas lauk læknanámi frá HÍ árið 1991 og stundaði síðan framhaldsnám í almennum skurðlækningum og hjarta- og lungnaskurðlækningum í Svíþjóð og fram- haldsnám í hjartaskurðlækningum við Harvard-háskóla í Boston. Fyrstur yfir norrænum læknasamtökum Tómas Guðbjartsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.