Morgunblaðið - 12.09.2015, Síða 24

Morgunblaðið - 12.09.2015, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015 Yfirvöld í Ungverjalandi voru í gær sökuð um ómannúðlega meðferð á fólki í flóttamannabúðum nálægt landamærunum að Serbíu. Austur- rísk kona, Michaela Spritzendorfer, tók myndir af því þegar matar- pokum var kastað að flóttamönn- unum og hún sagði að komið væri fram við fólkið „eins og dýr“. „Þetta fólk hefur lagt á sig skelfi- legt ferðalag í þrjá mánuði,“ hefur fréttavefur breska ríkisútvarpsins eftir Spritzendorfer sem fór í flótta- mannabúðirnar til að veita aðstoð. „Flest þeirra hafa siglt yfir hafið á bátum, farið um skóga og gengið í gegnum skelfilega reynslu og við, Evrópubúar, höldum þeim síðan í búðum eins og dýrum. Evrópskum stjórnmálamönnum ber núna skylda til að opna landamærin.“ Fulltrúi mannréttindasamtak- anna Human Rights Watch sagði að flóttafólki væri haldið við „ömurleg- ar aðstæður“ í tveimur byggingum í bænum Röszke, án nægra matvæla og læknisaðstoðar. Sökuð um mannréttindabrot Fréttamenn hafa ekki mátt kanna aðstæður flóttafólksins í búðunum. Fréttamaður BBC á staðnum segir að myndirnar sem borist hafa úr búðunum kyndi undir ásökunum um að ungversk yfirvöld hafi brotið gegn ákvæðum mannréttinda- sáttmála Evrópu um meðferð á flóttafólki og öðrum hælisleitendum. Evrópuráðið hefur minnt aðildar- ríkin á að ekki eigi að koma fram við flóttafólk eins og fanga. Yfirvöld í Ungverjalandi segja að um 175.000 farandmenn hafi komið til landsins það sem af er árinu. Komið fram við þau eins og dýr AFP Í haldi Pakistanskir farandmenn sýna auðkennisarmbönd í flóttamannabúðum í ungverska bænum Röszke, nálægt landamærunum að Serbíu. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt aðbúnað þúsunda flóttamanna í búðunum.  Fólki haldið við ömurlegar aðstæður Ármú la 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn. is | www.gahusgogn. is 1975-2015 GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu. Við tökum málin þín í okkar hendur Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki 40 ára Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Utanríkisráðherrar fjögurra að- ildarríkja Evrópusambandsins – Póllands, Slóvakíu, Tékklands og Ungverjalands – höfnuðu tillögu framkvæmdastjórnar ESB um flóttamannakvóta á fundi í Prag með utanríkisráðherrum Lúxemborgar og Þýskalands í gær. „Við erum sannfærð um að sem ríki eigum við að ákveða hversu mörgum við getum tekið við og síðan bjóða þeim aðstoð,“ sagði Lubomir Zaoralek, utanríkisráðherra Tékk- lands, eftir fundinn. Miroslav Laj- cak, utanríkisráðherra Slóvakíu, sagði að flestir flóttamannanna vildu ekki dvelja þar í landi og slóvakísk yfirvöld hefðu aðeins fengið 130 hælisumsóknir fyrstu sjö mánuði ársins. „Hvernig eigum við að tryggja að fólkið verði um kyrrt í Slóvakíu?“ spurði utanríkisráðherr- ann. Frank-Walter Steinmeier, utan- ríkisráðherra Þýskalands, sagði að flóttamannavandinn gæti reynst erf- iðasta úrlausnarefnið í sögu Evrópu- sambandsins. Öll aðildarríki sam- bandsins þyrftu að taka höndum saman til að leysa vandann, hann væri einu ríki ofviða. Steinmeier sagði að stjórn Þýska- lands gerði ráð fyrir því að um 40.000 flóttamenn og aðrir hælisleitendur kæmu þangað um helgina. Um 20.000 hælisleitendur komu til Bæj- aralands um síðustu helgi. Systurflokkurinn óánægður Mikil andstaða er við stefnu þýsku stjórnarinnar í málinu í hægriflokkn- um CSU, systurflokki Kristilegra demókrata í Bæjaralandi. Leiðtogi flokksins, Horst Seehofer, forsætis- ráðherra Bæjaralands, segir að sú ákvörðun stjórnar Angelu Merkel kanslara að opna landamærin fyrir flóttamönnum sé „glappaskot sem dregur dilk á eftir sér í langan tíma“. „Við höfum sett okkur í þá stöðu að við stöndum frammi fyrir neyðar- ástandi sem verður bráðum óviðráð- anlegt,“ segir Seehofer í viðtali sem vikuritið Der Spiegel birtir í dag. Varaformaður CSU, Hans-Peter Friedrich, sagði að ákvörðun stjórn- arinnar væri „fordæmislaust póli- tískt axarskaft“ sem hefði „stóral- varlegar afleiðingar“. 66% styðja ákvörðunina Ný skoðanakönnun bendir þó til þess að tveir þriðju Þjóðverja, eða 66%, styðji þá ákvörðun stjórnarinn- ar að taka við flóttafólkinu. Aðeins 29% sögðust vera andvíg henni. Um 85% töldu að fleiri flóttamenn kæmu til Þýskalands og 62% sögðu að land- ið réði við flóttamannastrauminn. Hafna flóttamannakvótanum  Utanríkisráðherra Þýskalands segir að flóttamannavandinn geti reynst erf- iðasta úrlausnarefnið í sögu ESB Heimild: Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna Um 59,5 milljónir voru á skrám Sameinuðu þjóðanna yfir flóttamenn á síðasta ári. FLÓTTAMENN Í HEIMINUM *Fjöldi skráðra flótta- manna fyrr í mánuðinum SÝRLAND 4.088.099* AFGANISTAN 2.593.368 SÓMALÍA 1.106.068 PAKISTAN 335.915 SUÐUR-SÚDAN 616.210 KÓLUMBÍA 360.298 MALÍ 139.267 ÍRAK 369.904 MIÐ-AFRÍKULÝÐVELDIÐ 412.041 BÚRMA 479.001 VÍETNAM 313.419 KÍNA 210.730 AUSTUR-KONGÓ 516.770 ÚKRAÍNA 237.636 SÚDAN 665.954 Flestir flóttamannanna eru frá þessum sextán löndum: ERÍTREA 363.077 David Cameron, forsætisráðherra Breta, sagði í gær að Jeremy Corbyn væri ekki hæfur til forystu í Verkamanna- flokknum. Komu ummæli Camer- ons í kjölfar þess að Corbyn, sem þykir vera yst til vinstri í flokki sínum, gagnrýndi ákvörðun Camerons um að fella breskan meðlim Ríkis íslams í Sýr- landi með árás dróna. „Það er hluti af starfi forsætis- ráðherrans að taka þessar erfiðu ákvarðanir,“ sagði Cameron. „Ef þú getur ekki tekið þær ættirðu ekki að sinna starfinu.“ Tilkynnt verður í dag um niður- stöður leiðtogakjörs Verkamanna- flokksins, en Corbyn þykir sigur- stranglegastur. sgs@mbl.is BRETLAND Cameron varar við kjöri Corbyns David Cameron

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.