Skólavarðan - 01.05.2013, Síða 14
12 Skólavarðan 1. tbl 2013
netsiðareglurnetsiðareglur
nýr vettvangur
fyrir samskipti kenn-
ara og nemenda
hefur opnast með
nýjum samfélags-
miðlum, en huga
þarf að því hvernig
slíkum samskiptum
er best háttað.
Skólamálanefnd Félags framhalds
skólakennara skoðaði netsiðareglur
sem erlend kennarasamtök settu sér.
Niðurstaða þeirrar vinnu var að beina
því til siðaráðs KÍ að sambandið setti
sér hliðstæðar reglur fyrir félagsmenn
sína. Þar væri hnykkt á hlutverki þeirra
sem fagmanna og gefnar leiðbein
ingar um hvernig efla mætti umræðu
um heppilega notkun netsins. Einnig
skyldi fjallað um hvernig hægt væri
að bregðast við hugsanlegri áreitni og
einelti á samfélagsmiðlum.
Hér er það helsta sem skólamálanefnd
FF telur að ætti að standa í slíkum siða
reglum:
LEIðBEININGAR FYRIR KENNARA UM
NOTKUN SAMFéLAGSMIðLA:
• Kennarar gæti að mörkum einkalífs
og vinnu í samfélagsmiðlum og að
samskipti séu eðlileg og fagleg.
• Kennarar mismuni hvorki nemend
um né forráðamönnum þeirra.
• Kennarar ræði notkun samfélags
miðla við nemendur.
• Kennarar ættu að lýsa þeim mörkum
sem þeir setja sér um notkun sam
félagsmiðla. Í því felst til dæmis að
kennari geti ekki verið „vinur“ sumra
nemenda á samfélagsmiðlum en
ekki annarra.
• Kennari gæti trúnaðar við nem
endur á samfélagsmiðlum.
• Kennari skrifi ekki um einstaka nem
endur, viðbrögð þeirra eða verkefni
og birti ekki myndir af nemendum
eða úr skólastarfinu án samþykkis
allra hlutaðeigandi.
• Kennarar tjái sig af sanngirni um
vinnu sína á samfélagsmiðlum.
LEIðBEININGAR UM HVERNIG VINNA
MEGI GEGN ÁREITNI OG EINELTI Á
SAMFéLAGSMIðLUM:
• Kennarar hvetji til þess að í skólum
þeirra verði settar sameiginlegar
reglur fyrir stjórnendur, kennara,
nemendur og forráðamenn um
notkun samfélagsmiðla.
• Reglurnar ættu að vera skýrar og
augljóst hver ber ábyrgð á hverju.
Skólar ættu að setja sér reglur um
hvernig fyrirspurnum er svarað, t.d.
í tölvupósti, í gegnum síma eða á
fundum.
• Kennarar beiti sér fyrir því að settar
verði skýrar reglur um hvernig nem
endur nota farsíma, myndavélar
og tónhlöður í skólanum. Kenn
arar beiti sér einnig fyrir því að nem
endur og forráðamenn þeirra verði
upplýstir um reglurnar og viðurlög
við brotum á þeim.
• Kennarar beiti sér fyrir því að skólar
vinni markvisst gegn áreitni og
einelti.
Þessu markmiði mætti ná með því að
útskýra fyrir nemendum að það sem
er skrifað á netið teljist opinber birting
og viðurlög séu samkvæmt því. Leggja
ber áherslu á að skólar umberi ekki
neins konar áreitni eða einelti á netinu.
aðgát skal höfð...
- netsiðareglur og rafræn samskipti.
Anna María Gunnarsdóttir.