Skólavarðan - 01.05.2013, Side 41
Skólavarðan 1. tbl 2013
kjaramálkjara ál
39
Viðmiðunarhópar kennara eru því eðli
lega aðrir sérfræðingar. Það er faglega
skylda kennara að verðmeta sérfræði
menntun sína miðað við breyttar for
sendur. Framundan er mikil vinna við
að uppfylla kjarastefnu KÍ sem kveður á
um að laun og önnur starfskjör kennara
og náms og starfsráðgjafa standist
ávallt samanburð við kjör annarra sér
fræðinga á vinnumarkaði.
Stjórn og samninganefnd SÍ munu
vinna áfram að því að forgangsraða og
þrepaskipta markmiðum og leiðum en
gert er ráð fyrir að þau liggi fyrir í vor,
til kynningar og umræðu meðal félags
manna.
Á vinnufundinum var einnig rætt
um samræmingu á kjarasamningum
Skólastjórafélags Íslands og Félags
stjórnenda í leikskólum. Vilji var til
að skoða þær hugmyndir frekar og
vinna með FSL að því að samræma
kjarasamninga eins og kostur væri og
nauðsynlegt vegna samrekstrar skóla.
FéLag LeiKSKÓLaKennara
Texti: Haraldur F. Gíslason, formaður FL.
Allt síðastliðið ár hefur Félag leik
skólakennara, ásamt samninganefnd
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
verið í mikilli launagreiningarvinnu í
tengslum við ákvæði í kjarasamningi.
Samningsaðilar ákváðu að láta fara
fram endurskoðun á kjörum leikskóla
kennara, með það að markmiði að
jafna grunnlaun og starfskjör þeirra
við kjör annarra háskólamenntaðra
starfsmanna er sinna sambærilegum
störfum. Þannig yrðu laun og önnur
kjör leikskólakennara samkeppnisfær
við kjör samanburðarhópa.
Hluta þessarar vinnu lauk um mitt
ár 2012 og ákveðnar leiðréttingar á
grunnlaunum leikskólakennara koma
til framkvæmda á samningstímabilinu.
Seinni hluti samkomulagsins kveður á
um að starfskjör beri samningsaðilum,
samkvæmt úrskurði ábyrgðarnefndar
verkefnisins, að koma sér saman um
áður en þriðja þrep leiðréttingarinnar
kemur til framkvæmda.
Árið 2014 er skammt undan og í lok
apríl það ár er kjarasamningur FL
laus. Samninganefnd FL hefur fyrir
þó nokkru hafið undirbúning fyrir
kjarasamningsgerðina 2014 og segja
má að undirbúningur hafi í raun hafist
strax við undirritun kjarasamninga
2011. Eftir að ný lög um menntun og
ráðningu kennara og skólastjórnenda
voru samþykkt árið 2008 þarf nú fimm
ára meistaranám til að fá leyfisbréf til
kennslu á á öllum skólastigum. Með
því viðurkennir löggjafinn að kennsla
hafi verið vanmetin og störfin einnig
breyst það mikið að nauðsynlegt sé
að kennarar hafi fimm ára sérfræði
menntun.
Eitt kort
35 vötn
6.900 kr
www.veidikortid.is
Kynnið ykkur
sértilboð til
félagsmanna
á skrifstofu
og orlofsvef.
00000
* frí heimsending
00000
00000