Félagsbréf - 01.02.1959, Blaðsíða 3
Apríl-bók AB
Maðurinn og máttarvöldin
GUÐMUNDUR
GlSLASON HAGALlN
islenzkaði
Skáldið OlavDuun (1876—1939)
er viðurkenndur einhver stór-
brotnasti rithöfundur Noregs og
djúpsæjasti sálfræðingurinn í
evrópiskum bókmenntum. Hann
var stílsnillingur, svo að af bar,
frumlegur og fyndinn. Söguefni
hans eru tekin beint frá alþýð-
unni í Naumudal, þar sem Duun
fæddist og dvaldi lengstum, en
hann hóf norska þjóðlífslýsingu á
æðra svið, fékk henni hlutdeild í
bókmenntum heimsins.
Maðurinn og máttarvöldin er
síðasta verk Olavs Duun, kom út
ári fyrir dauða hans og er eitt
af heilsteyptustu iverkum hans.
Sagan geirist að mestu á lítilli
ey, sem á — samkvæmt gömlum
spádómi — að sökkva í sæ. Jafn-
framt því sem skáldið gerir oss
þátttakendur í lífsbaráttunni á
þessum stað, sýnlr það oss eftir-
minnilega sálir fólksins þar, — barna og fullorðinna — grefur
fyrir dýpstu rætur. Og vér lifum með honum nóttina, þegar hafið
tekur að stíga, taugaspennima, skelfinguna, en einnig baráttu-
kjarkinn og lífsþrána. Og í gegnum allt hríslast hin ódrepandi
kímni.
Maðurinn og máttarvöldin er mikið listaverk. Og þó að sögu-
sviðið sé lítið og sérstætt, varðar söguefnið allan heiminn.
Stærð um 300 bls. Verð eigi hærra en kr. 88,00 (ób.), kr.
110,00 (ib.).
J