Félagsbréf - 01.02.1959, Blaðsíða 46

Félagsbréf - 01.02.1959, Blaðsíða 46
44 PÉLAGSBRÉF sína með ýmsum skemmtilegum vísunt og ljóðbrotum, sem Guðmundur Sigurðs- son ltefur snúið haganlega á íslenzku. Kjartan Ólafsson er annálaður fyrir málakunnáttu sína. Talar hann og les ntörg erlend tungumál, en ekki hefur þessi málalærdómur dregið úr þeirri alúð, sent hann hefur lagt við íslenzk- una í bókum sínum. Málfar hans er mjög mergjað og stillinn sterkur. Eykttr þetta stórum kosti hókarinnar. Virðist sem ltann ltafi reynt að tileinka sér forn- an, íslenzkan frásagnarhátt og stundutn finnst ntér stíllinn tninna á frásögu Jóns Indíafara. Kjartan getur brugðið upp á- hrifamikilli og skýrri mynd tneð fáum, sterkum dráttum, og myndi ntargur ann- ar þurfa langt mál, til þess að segja jafn mikið. Ekki er þó laust við að stíll höfttndar sé dálítið tilgerðarlegur á stundum. Stafar þetta af því að hann notar of oft einstaka orðatiltæki, sent ltonum finnst vera hnyttin eða sniðug, eins og „tvist og bast“, og „eigi er það' vitað með vísindum“ o. s. frv. Það er sannarlega ekki nema gott eitt og virð- ingarvert að' taka upp notkun á .ýmsum hnyttnum og litsterkum orðum og orð- tökum íslenzkum, sem nærri eru orðin gleymd í slíkum frásögnunt í dag, en ef þau eru notuð um of gerir það stílinn klúsaðan. Enda þótt ritstíll höfundar í þessari hók sé með miklum ágætum, þá er heildarbygging ltennar ekki jafn sterk og örugg. 1 því efni finnst ntér bókin dálítið losaraleg, ekki næg alúð lögð við þann þátt vinnubragðanna, og ntér finnst höfundur stundum eyða of mikluiti tíma í að segja frá, ltvenær hann ltafi komið á þennan og þennan staðinn, og ltvenær ltann hafi lagt upp frá öð'rum stað; þá ltafi hann eytt einu kvöldi við' drykkju með kunningjutn eða heilli nótt við dans og suinbl á einhverjum nætur- klúbbnutn. Slíkt er ágæt hreinskilni en skiptir litlu máli, þegar því fylgir engiit frekari Iýsing á atburðum, og hefði vel ntátt sleppa. Síðasti liluti bókarinnar, þar sem höf- undurinn segir frá heitnsókn sinni og viðræðum við göntlu tnannætuna í Si- bundoy, er að mínum dómi hezt ritaði kafli hókarinnar og jafnframt hreinasta listaverk, ekki að'eins vegna efnis frá- sögunnar, sem sannarlega er mergjað, svo ekki sé dýpra í árina tekið, heldur sökiun þess, hve lifandi og stór lýsing höfundaiins er; samt keinur hann henni fyrir í ekki lengra máli en sem rúmast á 6 venjulegum bókarsíðum, og endur- sögnin af lýsingum kerlingarinnar gefur lesandanum glögga hugmynd um lifnað- arhætti villtu indíánanna og mannætanna, sem enn ráfa um víðfeðina frumskóga þessara töfralanda. Það fer mjög vel á því Iijá höfundi að enda frásögur sínar frá Eldóradó á þessum fróðlega og snilldar vel ritaða þætti, sem sýnir vel hve vafasamt það getur verið af hvítum mönnum að reyna að þröngva liinni svo nefndu siðmenningu sinni upp á frmn- stæðar þjóðir, ekki sízt þegar það er gert undir því yfirskini að þeir séu heiðnir og þurfi á sáluhjálp að' lialda, sjálfum sér og sínum til andlegra heilla. ÞórSur Einarsson. Loftur GuSmnndsson: GANGRIMLAHJÓUlt Almenna bókafélagiS 1958. Heiinsádeilan, ádeila á heim nútímans og framtíðarinnar, er langt frá því að

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.