Félagsbréf - 01.08.1959, Qupperneq 17

Félagsbréf - 01.08.1959, Qupperneq 17
FÉLAGSBRÉF 15 höfðu jafn ungir íslenzkir höfundar orðið jafn þekktir erlendis og þeir Gunnar og Jóhann (23 og 32 ára 1912). Og með Borgar- ættinni og Fjalla-Eyvindi ryðja þeir íslenzkum bókmenntum síðari alda í fyrsta sinn til rúms meðal lifandi bókmennta umheimsins. Að vísu höfðu verk eftir íslenzka höfunda síðari tíma áður verið þýdd á erlend mál og orðið kunn og nokkurs metin, meðan þau stóðu í fersku gildi, svo sem eftir Jón Thoroddsen, Gest Pálsson, Indriða Einarsson, Einar Hjörleifsson (síðar Kvaran) og Jón Trausta, auk einstakra ljóða helztu skálda okkar. En aldrei fyrr höfðu verk íslenzkra höfunda á síðari öldum orðið jafn fljótt og jafn víða fræg né orðið lifandi þáttur í bókmenntum umheimsins. Þessari merkilegu staðreynd hefur ekki verið gefinn sá gaumur, er skyldi. Auk þessa voru Fjalla-Eyvindur og Saga Borgarættar- innar fyrstu íslenzk skáldverk, sem voru kvikmynduð (1917 og 1919), og Borgarættin var fyrsta kvikmynd, sem tekin var hér- lendis og að nokkru með íslenzkum leikurum. Frá aldamótum og fram til loka fyrri heimsstyrjaldar voru bók- menntirnar hér heima að mestu bornar uppi af skáldum, sem komið höfðu fram þegar á 19. öld, allt frá séra Matthíasi til Jóns Trausta. Þeir nýir íslenzkir höfundar, sem kváðu sér hljóðs á þessu tíma- bili og mest kvað að, voru búsettir erlendis og sömdu þorra verka sinna á dönsku, eins og Jóhann Sigurjónsson, Gunnar Gunnarsson og Guðmundur Kamban. Sumir íslendingar hafa legið þeim á hálsi fyrir þetta, talið, að með þessu hafi þeir brugðizt þjóð sinni, svik- izt undan merkjum. Nú orðið heyrist þetta raunar varla nefnt, enda niikill misskilningur. Ótrúlegur munur var þeirra kosta, sem upp- ronnandi höfundar áttu hér á landi þá og nú, auk þeirrar menntun- ar, sem jafnan hlýzt af utanlandsdvölum. Enginn þessara manna hefði þá náð slíkum skáldþroska hérlendis, flestir líklega koðnað niður. En í þess stað var nú augum umheims lokið upp fyrir því, að við ættum gildar bókmenntir, yngri en frá 13. öld, merkar sam- timabókmenntir voru skapaðar. Og ólíkt örðugra var að ryðja sér braut í framandi landi á erlendri tungu en á móðurmálinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.