Félagsbréf - 01.08.1959, Qupperneq 28

Félagsbréf - 01.08.1959, Qupperneq 28
26 FÉLAGSBRÉF ir á rás til þjóðvegarins, þar sem einhver umferð helzt er: „Oh boy, stúlka, stúlka ...“ Einn af setuliðsmönnunum kemur til okkar Brynhildar. Ég kannast við Dick, föngulegur maður, að því er mér finnst. Hann ávarpar mig þessu vanalega: „Hvemig hefurðu það?“ „Svona sæmilegt.“ Hann býður mér vindling, en ég kýs heldur pípuna mína. Hann ýtir við Brynhildi með fætinum, en svo stingur hann tánum undir hnésbót hennar og dregur fótinn hlæjandi að sér. Hún sezt upp. „Dick, æ seztu. Komdu Dick!“ Hann sezt á milli okkar. Þá tekur hún til við að snyrta sig, en hann leggur handlegginn utan um hana. Hún hlær, skrækir og iðar. Hann tekur nú undan blússu sinni súkkulaði, appelsínur, tyggigúmmí og vindlinga og raðar þessu í kjöltu hennar. „Eigum við að sigla á vatninu í kvöld,“ segi ég við Brynhildi. „Sigla í logni, og báturinn ára- og seglalaus!“ „Ég sagði nú svona, en annars veiztu, að það eru tvær árar í bátnum.“ „Já, ég veit, en við sleppum því í kvöld.“ „Einmitt, ég skil.“ „Skilur, jæja, viltu appelsínu?“ „Sama og þegið,“ svara ég og rís á fætur. Ég kreppi hnefana í vös- unum, horfi á Dick, en sé hvorki óvild né sigurbros á andliti hans, en þó virðist mér svipur hans tvíræður. Dick dregur nú enskunámsbók úr vasa sínum og réttir Brynhildi. „Hva, hvað meinarðu maður?“ „Þú sagðist vilja læra ensku, og ég get hjálpað þér.“ „Bölvaður asni ertu. Hvað á ég að gera með enskunámsbók? Nei góði minn, það er ekki fyrir mig.“ Brynhildur dæsir, stingur upp í sig súkkulaðibita og smjattar á honum hálf ólundarleg á svipinn. Dick hreyfir sig, eins og hann ætli að fara. Þá segir hún: „Jæja Dick, jú annars, komdu með bókina.“ Bókin liggur opin á hnjám þeirra. Þau leggja vanga að vanga. Ég sný mér undan, og þegar ég held af stað, segi ég:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.