Félagsbréf - 01.08.1959, Page 40
C. N. PARKINSON:
Lögmál Parkinsons
- eða liinn vaxandi pýramídi
Hér á eftir fer upphafskafli bókarinnar Parkinsorís Law eftir C. Northcote Parkin-
son. Kom bók þessi fyrst út í Englandi árið 1957, hefur síðan veriS endurprentuS
mörgum sinnum og auk þess þýdd á aSrar tungur. Hefur hún hvarvetna vakiS fögnuS.
SÉRHVERT STARF þenst út, unz það krefst alls þess tíma, sem aflögu er til
að ljúka því. Þetta hefur mönnum löngum verið ljóst, svo sem sannast á
málshættinum: „Störfum hlaðinn á stund aflögu.“ Öldruð kona og iðju-
lítil eyðir heilum degi í að skrifa og pósta bréfspjald til frænku sinnar.
Klukkustund fer í að finna bréfspjaldið, önnur í gleraugnaleit og hálftími
í að leita að heimilisfanginu. Ritstörfin taka fimm stundarfjórðunga, og
loks eyðir kerling tuttugu mínútum í að ákveða, hvort hún eigi að hafa
meðferðis regnhlíf út að j)óstkassanum á nassta götuhorni. Öllu þessu lyki
störfum hlaðinn maður á þrem mínútum, en gamla konan eyðir í það
heilum degi vafa, kvíða og strits og er örmagna eftir.
Ef vér gerum oss ljóst, hversu teygjanlegt tímahugtakið er gagnvart
framkvæmd ákveðinnar vinnu, og þá sérlega skrifborðsvinnu, liggur beint
við að ályktai, að lítil eða engin tengsl séu milli vinnumagns og starfs-
liðs. Ekki þarf heldur skortur á verkefni að leiða til iðjuleysis. Sá, sem
ekkert viðfangsefni hefur, situr ekki ávallt auðum höndum. Starfið verður
þeim mun flóknara og mikilvægara sem því er ætlaður lengri tími. Þessi
staðreynd er alkunn, en ónóg athygli hefur beinzt að afleiðingum hennar,
einkum að því er varðar embættisrekstur. Stjórnmálamenn og skattgreið-
endur álykta (þótt stöku sinnum séu þeir efins), að aukinn fjöldi ríkis-
starfsmanna reki rætur til aukinna verkefna. Efahyggjumenn hljóti að
gera suma þeirra verklausa eða veita þeim öllum styttri vinnutíma. En í
þessu efni missa bæði trú og efi marks, því að milli embættismannafjölda
og magns verkefnis ríkir ekkert samband. Fjölgun starfsliðs lýtur lögmáli
Parkinsons og væri að mestu hin sama, hvort sem vinnan ykist, minnkaði