Félagsbréf - 01.08.1959, Síða 44
42
FÉLAGSBRÉF
heim, og hugleiðir, hokinn í herðum og skælbrosandi, að kvöldvinnan sé,
eins og gráu hárin, fylgifiskur velgengninnar.
Af þessari lýsingu mun öllum, er skyn bera á stjórnmálavísindi, Ijóst,
að hjá því fer tæpast, að skrifstofulið margfaldist, er fram líða stundir.
Enn hefur samt ekki verið getið, hversu vænta megi, að langur tími líði
frá því að A er ráðinn og til þess dags er H kemst á föst laun. Óramagni
skýrslna og talna hefur verið safnað, og á rannsókn þeirra er lögmál
Parkinsons grundað. Hér er ekki rúm fyrir nákvæmar skýringar, en les-
andanum þykir kannski skemmtilegt að frétta, að rannsóknin hófst í
skýrslum brezka sjóhersins. Þær urðu fyrir valinu af því að starfsbyrðar
sjóhersins eru auðmældari en til dæmis störf verzlunarmálaráðuneytisins.
Það er bara um að ræða skipafjölda og burðarmagn. Hér skulu til-
færðar nokkrar tölur til skýringar: Árið 1914 voru í sjóhemum 146,000
sjóliðar — liðsforingjar og óbreyttir, 3249 embættismenn og skrifstofu-
menn í höfn og 57,000 verkamenn í höfn. 1928 voru aðeins 100,000
sjóliðar og aðeins 62,439 verkamenn, en þá voru í höfn 4558 embættis-
menn og skrifstofumenn. Herskipamagnið var árið 1928 aðeins brot af
því, sem verið hafði 1914 — færri en 20 orustuskip undir merkjum flot-
ans í stað 62. Á sama tíma fjölgar embættismönnum sjóherráðsins úr 2000 í
3569, enda var þess þá getið, að þeir mynduðu „mikilfenglegan sjóher á
landi“. Þessar tölur verða skýrar settar fram í töfluformi:
Skýrsla um brezka flotann.
Ár Aukningeða
Flokkun 1914 1928 rýrnun í'
Orustuskip 62 20 + 67.74
Sjóliðar í brezka flotanum , 146.000 100.000 -L31.5
Hafnarverkamenn . 57.000 62.439 + 9.54
Embættis- og skrifstofumenn í höfn ., 3.249 4.558 +40.28
Embættismenn sjóherráðs 2.000 3.569 +78.45
Þegar þessi skýrsla birtist, beindist gagnrýnin einkum að hlutfallinu
milli fjölda vopnfærra manna og embættismanna. En vér miðum ekki að
neinum slíkum samanburði. Það, sem oss ber að veita athygli er, að 2000