Félagsbréf - 01.08.1959, Qupperneq 51

Félagsbréf - 01.08.1959, Qupperneq 51
FÉLAGSBRÉF 49 samvizku. Hún hefur brotizt undan eftir- liti foreldra, frænkna og kennara og losn- að við 'þær hömiur, þann ótta og spenning, sem þjakaði okkur á uppvaxtarárunum. ... Hamingjusöm nýtur hún þessara aldurs- ára með þeim eldmóði, fjöri og áhyggju- leysi, sem æskudögunum eru eiginleg. En fegurst við þessa hamingju finnst mér það, að æskan þarf ekki lengur að hræsna fyrir öðrum, heldur getur verið hreinskilin við sjálfa sig og einlæg í tilfinningum sínum og þrám. Má vera að vegna áhyggjuleysis- ins skorti unga fólkið nú á dögum eitt- hvað af þeirri lotningu, sem við bárum í æsku fyrir andlegum verðmætum. Vera má einnig, að með hinum frjálslegu umgengnis- háttum fari eitthvað það af ástinni for- görðum, sem okkur fannst sérstaklega dýr- mætt og töfrandi.......En allt þetta finnst mér lítilfjörlegt á móts við þá heillavæn- legu breytingu, að æskan nú á dögum er einörð og sjálfsörugg, frjáls af ótta og hömlum. ...“ Hvað segja nú þröngsýnar hræsnisskraf- skjóður vorra daga, sínöldrandi um spill- ingu unga fólksins, um þessa kenningu hins vitra rithöfundar? Stefan Zweig hefir verið framúrskarandi hráðþroska maður, enda náði hann furðu skjótlega miklum analegum þroska og þar með viðurkenningu og frægð. Hann þurfti ekki að berjast langri og harðri baráttu fyrir frægð sinni á æskuárum. Af þessu leiddi, að hann batt ungur náin kynni við ýmsa fremstu snillingana í lista- og menntaheimi meginlandsins. Lýsir hann miirgum þessara manna á óviðjafnanlegan hátt í ævisögu sinni, og fær oss þannig í hendur margar fráhærar persónulýsingar mikilla manna. Eykur það eigi lítið gildi bókarinnar. Ógleymanleg hlýtur öllum að verða lýsingin á Rainer Maria Riike, þessu fíngerða og hógværa skáidi. Listaverk Rilkes vaxa og hækka enn í vitund vorri og skilningi við þessa næmu og geðþekku lýsingu Zweigs á persónu hans. Zweig lýsir mörgum öðrum merkismönn- um á ógleymanlegan hátt, t. d. eldhuganum Theodor Herzl, ritstjóra við Neue Freie Presse í Vín, baráttumanni fyrir málstað Gyðingaþjóðarinnar; rilhöfundinum og menningarboðberanum Emile Verhaeren, sem hvatti þjóðir Evrópu lögeggjan undir kjörorðinu: „Admirez-vous les uns les autres", stjórnmálamanninum Walter Rat- henau, sem nazistar myrtu: skáldinu Romain Rolland; Maxim Gorkí. Lýsingin á heimsókninni til franska myndhöggvarans Rodins er hreinasta perla. — En Zweig bregður upp fyrir sjónum vorum mynduin af mörgum fleiri frægum mönnum, skýr- um og meitluðum, t. d. af Hugo von Hofmannsthal, James Joyce, höfundi Ulysses, Ferruccio Busoni tónsnillingi o. fl„ o. fl. En undir hinum breiða og fjölskrúðuga straumi frásagnarinnar svellur hvarvetna treginn og uggurinn um framtíð mann- kynsins og menningarinnar, afdrif frelsis- ins og listarinnar. Þetta þjáir Stefan Zweig sárt síðustu skeið ævinnar, og sú þjáning reið honum loks að fullu. Það var mikill fengur að fá þessa bók á íslenzku. Af slíku verki má Menningar- sjóður vera fullsæmdur. Þýðing þeirra Ilalldórs J. Jónssonar og Ingólfs Pálmasonar er rituð á afbragðs góðri íslenzku, svo að sums staðar er unun að lesa. Enda hefði það verið hötmulegt, ef þýðing slíkrar hókar hefði lent í hönd- unum á einhverjum bögubósum. Of fáir útgefendur gera sér ljóst hve áríðandi það er að velja bókum snjalla þýðendur og stílfæra íslenzkumenn. Það borgar sig. Ragnar Jóhannesson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.