Félagsbréf - 01.10.1960, Page 18
Október-bók AB
Hugur einn þaft veit
UM HÖFUNDINN
KARL STRAND, höfundur bókarinnar
Hugur einn það veit, er fæddur 1911.
Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1934 og háskólaprófi
í læknisfræði við Iláskóla Islands árið
1941. Sama haust hlaut hann námsstyrk
frá Brezku menningarstofnuninni, The
British Council, og fór til Lundúna l’l
framhaldsnáms.
Hann stundaði fyrst nám í taugasjúk-
dómum við Institute of Neurology, The
National Hospital, Queen Square, London,
sem tilheyrir Lundúnaháskólanum, síðan
heilarannsóknir við hermannaspítala í Ox-
ford. Á árunum 1942—-’46 stundaði hann
nám í sálarfræði og geðfræði við ýmsar
stofnanir í Lundúnum, en lengst af við
The Institute of Psychiatry, The Mauds-
ley Hospital, London, og The British
Postgraduate Medical School, Hammer-
smith Hospital, London, og tók próf í
sálarfræði við The Conjoint Examining
Board of England. Frá árinu 1943 vann
hann jafnframt á geðveikraspítala, West
Park Hospital, Epsom, sem er ein af allra
stærstu stofnunum Lundúna í geðvísind-
um og hefur á þriðja þúsund sjúklinga.
Ilann er nú starfandi geðlæknir við þenn-
an spítala, en hefur auk þess unnið jafn-
framt sem ráðgefandi læknir í geðsjúk-
dómum við ýmis önnur sjúkrahús, svo
sem Lambeth Hospital, St. John’s Hospital
í Lundúnum, og nú sem stendur við
Wilson Hospital, Mitcham. Loks hefur
hann stundað viðbótarnám í ýmsum hlið-
argreinum geðfræðinnar, svo sem afbrota-
sálarfræði, og komið fram sem geðfræði-
legt réttarvitni við réttarhöld í Lundún-
um.
Hann hóf ritstörf þegar í skóla og
hefir ritað fjölda greina í blöð og tíma-
rit. Árið 1952 flutti hann erindaflokk í
íslenzka útvarpinu er nefnist Úr ævintýra-
sögu mannsheilans, er síðar birtist í tíma-
ritinu Heilbrigðu lífi. Önnur grein um
geðfræðilegt efni, Alcohol, birtist i tíma-
ritinu Helgafelli árið 1947. Síðasta hálfan
annan áratug hefur hann því starfað ein-
göngu að rannsókn og lækningu geðveikra
og taugaveiklaðra, og er bókin Hugur
einn það veit sprottin upp úr reynslu
þessara ára. E.H.F.