Félagsbréf - 01.10.1962, Side 32

Félagsbréf - 01.10.1962, Side 32
28 FÉLAGSBRÉF \ l '! í fylgiríkjum Sovétríkjanna, ekki sízt í Póllandi, eru skoðanir áþekkar skoð- unum Tertz ekki ótíðar, og sósíalrealisminn sætir umræðu og gagnrýni. Slíkt frjálsræði virðist a.m.k. enn sem komið er óhugsandi í Sovétríkjunum sjálfum, og þetta veitir bókum Abrams Tertz enn aukið gildi á sinn hátt: þær eru heim- ild um duldar andlegar hræringar þar eystra, um viðhorf ungra manna sem ekki fá að komast upp í dagsljósið að sinni. Það er kunnugt að neðanjarðarlíf bókmenntanna er furðu fjölskrúðugt og fjölbreytilegt í Sovétríkjunum og bygg- ist á ríkum og sívakandi bókmenntaáhuga almennings: handrit og fjölrit verka ganga milli manna, ljóð berast mann frá manni, sú umræða um listir og menningarmál sem ekki fær aðgang að opinberum málgögnum vakir undir niðri. Trúlegt er að Tertz sé einn þeirra höfunda sem kvöddu sér hljóðs í „hlákunni“ 1956 þegar slakað var á skipulagningu bókmennta um sinn; full- víst er að viðhorf hans eru ekkert einsdæmi. Sérstaða hans er sú að hann ákveð- ur að koma handritum sínum úr landi, lætur sér ekki nægja þann þrönga lesendahóp sem hann á völ á heima fyrir (þótt athæfi hans heiti föðurlands- svik að sovézkum lögum og honum megi ljós vera örlög sín ef upp kemst hver hann er). Það vottar þroska hans, að viðleitni hans er hugsuð og uppreisnin gegn skipulaginu honum bráð nauðsyn. Hann getur ekki vænzt fjár né, frama fyrir ritverk sín; hitt er honum nauðsyn að rödd hans berist út úr myrkviði bók- menntaeinræðisins, að menn nemi og skilji mál hans. Af öllum þessum sökum eru verk Abrams Tertz verð athygli og gaumgæfni á Vesturlöndum; hann er enn einn vottur þess margbreytilega og óþekkta lífs sem leynist bak við sunnudagsandlit sovétveldisins. Hitt skiptir þó mestu máli að verk hans eru góðar bókmenntir af sjálfum sér; þótt heimildargildi þeirra sé mikilsvert er það honum sjálfum ekkert aðalatriði: erindi hans er fyrst og fremst listræns eðlis. Réttur er settur, skáldsaga Abrams Tertz, kemur út í íslenzkri þýðingu nú i haust. Þýðandi er Jökull Jakobsson, en Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar gefur bókina út. Ó. J.

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.