Félagsbréf - 01.10.1964, Blaðsíða 29
ÚLAFUR JÓNSSON
Um Tarjei Vesaas
Bókmenntaverðlaunum Norðurlanda-
ráðs hefur nú verið úthlutað þrívegis,
og hafa þau hlotnazt skáldsagnahöf-
undi hverju sinni, sænskum, finnskum,
norskum. í ár hlaut Tarjei Vesaas þau
fyrir skáldsögu sína Is-slottet sem kom
út í fyrrahaust.
Tarjei Vesaas er orðinn ærið af-
kastamikill höfundur og hefur á 40
ára ritferli birt yfir 30 hækur, skáld-
sögur, smásögur, leikrit, Ijóðmæli.
Hann er fæddur árið 1897, á Þela-
mörk, og mun þelamerkurmá’l vera
uppistaða liinnar hlæfögru nýnorsku
sem hann ritar; en Vesaas er talinn
oinhver stílsnjallastur höfundur á þá
iungu síðan Olav Duun leið.
Vesaas mun hafa byrjað heldur
s,nátt. Auk ásækinnar lilfinningasemi
°g rómantísku var þunglamaleg tákn-
stefna honum löngum fjötur um fót,
vandi hans mestur að samhæfa hana
raunsýnni frásagnaraðferð. Af fyrri
verkum hans má nefna sveitasögurnar
Deí store spelet og Kvinnor ropar
heim, báðar frá fjórða tugi aldarinn-
ar- Þeim hefur verið jafnað til verka
Hamsuns og Duuns, og má ætla af því
að þær þyki nokkurs verðar. En mest-
an frama vann Vesaas sér með skáld-
sögunni Kimen sem kom út 1940, og
fylgdi honum eftir að styrjöld lokinni
með Husct i mörkret, 1945, og Bleike-
plassen, 1946. Huset i mörkret hefur
verið kölluð fremsta „hernámssagan“
í norskum bókmenntum; þetta er tákn-
saga með auðgreindum Kafka-áhrif-
um, þung í vöfum en áhrifamikil. Síð-
an hafa táknvísi og raunsæi átt far-
sæla samleið í verkum Vesaas, hvort
heldur hreinræktuðum táknsögum eins
og Brannen, 1961, eða raunsæilegum
hversdagssögum eins og Fuglane, 1957
— sem kannski er alfremsta verk hans
til þessa. Á þessum tíma hefur hann
einnig birt athyglisverð ljóð og smá-
sögur; sagan sem birtist hér er sótt í
smásagnasafnið Vindane sem kom út
1952.
Síðasla saga Tarjei Vesaas, Is-
slottet er sérkennilegt og áhrifamikið
verk, og að því skapi vandlýst. Er
leyfilegt að tala um „innileika“ í stíls-
liætti? Þá væri freistandi að kalla stíl
Vesaas á þessari sögu innilegan, tala
um ást hans á mannlegu lífi og fín-
lega, nærfærna túlkun þess í verki
hans. Sú veröld sem honum er í mun
að bókfesta er innri veröld, síbreytilegt
landslag sálarinnar þar sem allt það
FÉLAGSBRÉF 25