Félagsbréf - 01.10.1964, Blaðsíða 55
HANNES PÉTURSSON:
Steingrímur Thorsteinsson
Hannes Pétnrsson er þegar landskunnur af
ljóðum sínum, en hér hefur hann ritað
ýtarlega ævisögu Steingríms skálds Thor-
steinssonar, þar sem fjallað er um æsku-
slóðir Steingríms, uppvöxt hans og ætt,
skólagöngu, æskuverk, dvöl hans í
Kaupmannahöfn og ljóðagerð á þeim ár-
um, ævi Steingríms eftir heimkomuna
til Reykjavíkur og bókmenntastörf hans
þá og viðhorf hans til stjórnmála og skáld-
skapar, þar á meðal raunsæisstefnunnar og
annarra bókmenntalegra og menningar-
legra deilumála þeirra tíma. í bókinni er
vitnað til fjölmargra ójjrentaðra bréfa, og
segir þar margt frá skoðunum Stein-
gríms á mönnum og málefnum. Bók Hann-
esar er fyrsta könnun á ævistarfi þessa
merka skálds, sem naut á sínum tíma
frábærra vinsælda alþýðu manna
og vandlátra bókmenntaunnenda. Mun
hún vafalaust vekja ærna athygli
og þykja góðum tíðindum sæta.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs