Félagsbréf - 01.10.1964, Blaðsíða 31
Gagnrýnendur um gagnrýni
Jólakauptíð fer í hönd: iþá koma út á skömmum tíma flestallar íslenzkar bækur
þetta árið. Leikhúsin hafa byrjað vetrarstarf sitt, sinfóníuhljómsveitin og tón-
listarfélagið haldið fyrstu tónleika sína, myndlistarsýningar standa jafnaðarlega
í einhverjum af sýningarsölum Reykjavíkur. Um öll þessi efni er rætt manna
á meðal, og í blöðum og tímaritum er reynt eftir megni að fjalla um helztu
nýjungar á sviði bókmennta og lista. Sú viðleitni þykir stundum fátækleg. ís-
lenzkir gagnrýnendur vinna flestir við kröpp og óhagstæð kjör, og verk þeirra
sæta oft að sínu leyti óbilgjarnri gagnrýni, ýmist af hálfu almennings eða
listamannanna sjálfra.
Félagsbréf hafa leitað til nokkurra manna sem fjalla að staðaldri um bækur,
leiksýningar, tónleika, myndlistarsýningar í dagblöðunum og beðið 'þá að gera
nokkra grein fyrir starfa sínum. Gagnrýnendurnir voru beðnir að ræða um það,
í stuttu máli, hvernig gagnrýni væri rekin í blöðunum, hvaða tilgangi liún lyti,
í hverju henni væri helzt ábótavant.
ÁSGEIR HJARTARSON
Utangardsmenn
Hvernig er íslenzkri listgagnrýni
farið á okkar dögum? Eru dómar og
umsagnir um listir svo vel samdir að
við megi una? Þrátt fyrir skiptar
skoðanir munu velflestir svara spurn-
mgu þessari neitandi, og er ég í þeirra
hóPÍ, þótt mér sé ógerlegt að rök-
styðja álit mitt að neinu gagni í þess-
um örfáu línum. Ég hef lesið flest það
sem ritað hefur verið um listir á landi
hér áratugum saman og er þó að von-
um tveimur greinum kunnugastur,
ritdómum og leikdómum. Ég skrifaði
um bækur um skeið, en raunar í smá-
um stíl og endur fyrir löngu, en varð
leikdómari af einskærri tilviljun fyrir
rúmum sextán árum og hef gegnt því
starfi síðan óslitið að kalla; og gæti
FÉLAGSBRÉF 27