Félagsbréf - 01.10.1964, Blaðsíða 34

Félagsbréf - 01.10.1964, Blaðsíða 34
hleypidóma; segja má að hæfir gagn- rýnendur séu hverju þjóðfélagi eins nauðsynlegir og listamennirnir sjálfir. Við erum allt annað en vel á vegi staddir í þessum efnum sem áður er sagt, en ég set hiklaust traust mitt á æskulýðinn, menn framtíðarinnar, trúi því að þá skorti hvorki gáfur né vilja. Róm var ekki reist á einum degi — íslenzkrar gagnrýni bíður framsókn og heillavænleg þróun ef vel er á mál- um haldið og fleyinu stefnt í rétta átt. JÓN S. JÓNSSON Ösanngirni Hvað er það sem gagnrýnandi tón- listar getur lagt til grundvallar skrif- um sínum? Að mínu viti er það eftir- farandi: sá tónlistarsmekkur og sú tónlistarþekking sem hann hefur öðl- azt með bóknámi, verklegri og and- legri reynslu. Eigi gagnrýni að vera sanngjörn og heiðarleg ættu önnur og annarleg sjónarmið að vera fjarri huga gagnrýnandans. Ég þarf ekki lengi að íhuga framanritað til að gera mér grein fyrir því að þessi einföldu boð- orð er erfiðara að halda en gefa. Það sem hér fer á eftir varðar eink- um þann þátt tónlistargagnrýninnar sem snertir íslenzka tónflytjendur. Gagnrýni hérlendis er alloft ósann- gjörn. Ósanngirnin felst einkum í því að gagnrýnin er sjaldan eins ströng og skyldi. íslendingar eru afar hör- undssárir og máske eru tónflytjendur þar fremstir í flokki. Þetta er í og með vegna þess að þeir eru ekki eins ströngu vanir og aðrir íslenzkir lista- menn. Það skal viðurkennt hér að gagn- rýnandi siglir oft með góðri samvizku milli skerja, og að sannleikurinn er ekki alltaf sagna beztur. Þetta kann að þykja furðuleg játning, en þó gagnrýn- andinn sé strangheiðarlegur og jafn- framt óvæginn, á hann ávallt við eitt mikið vandamál að stríða: Hvenær má satt kyrrt liggja og hvenær ekki? Tón- listargagnrýnandi er sannarlega ekki neinn fréttamaður, sem hefur þann starfa að rita samvizkusamlegar um- sagnir um tónleika. Starf hans er fyrst og fremst það, að leiðbeina flytjend- um og áheyrendum eftir beztu getu. Leiðbeiningar hans eru í því fólgnar að lofa það sem er gott og virðingar- vert, en lasta með góðum og gildum rökum það sem miður fer. Þetta er ekki vandalaust í okkar litla þjóðfé- lagi og stuðla tónflytjendur sjálfir óbeint að því. Þeir virðast margir bverjir ekki gera sér skynsamlega grein fyrir starfi gagnrýnandans. Tón-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.