RM: Ritlist og myndlist - 01.03.1948, Qupperneq 101
(
Erlendar bækur
BÆKUR Á SÆNSKU:
Árens flykt, eftir Anders Österling
Bonniers 1947. Verð 8,50 sænskar
krónur. Nýtt ljóðasafn eftir hið aldr-
aða, sænska ljóðskáld.
Under mánens fallande bage, eftir
Bertil Malmberg. Bonniers 1947. Verð
7,50 s. kr. Gagnrýnendur telja þetta
beztu ljóðabók skáldsins.
Skinn över sten, eftir Artur Lund-
kvist. Bonniers 1947. Verð 8,50 s. kr.
Ný ljóð eftir eitt víðkunnasta skáld
og bókmenntamann Svía. Kvæðin eru
mjög í anda surrealismans.
Geniet, eftir Ivar Lo-Johansen.
Bonniers 1947. Verð 16 kr. sænskar.
Að þessu sinni hefur „Statar-skáldið“
sent frá sér stóran róman, sem fjallar
um barnssálina og uppeldið. Ræðst
Lo-Johansson harkalega á uppeldis-
og skólakerfi Svía og ber skólana
þungum sökum.
Konvoj, eftir Thorsten Jonsson.
Bonniers 1947. Verð 9 kr. sænskar.
> Höfundur þessarar skáldsögu er
snjall rithöfundur og þýðandi. Hann
hefur þýtt á sænsku ýmsa mestu rit-
^ höfunda Bandaríkjanna, og þykir taka
þá sér til fyrirmyndar. Hin nýja
skáldsaga Jonssons gerist á farþega-
skipi í skipalest, meðan ógnir kaf-
bátastyrjaldarinnar eru sem mestar.
Bókin er talin vel skwfuð.
Jungfrun i det gröna, skáldsaga
eftir Lars Ahlin. Tiden 1947. Verð
kr. 9.50. Hið unga skáld er hvort-
tveggja í senn, einn af athyglisverð-
ustu og afkastamestu rithöfundum
Svía.
Verandan, þrjár sögur eftir Sivar
Arnér. Bonniers 1947. Verð kr. 10.
Sögur þessar, einkum fyrsta saga
bókarinnar, fá góða dóma.
Fádema, söguleg skáldsaga eftir
Jan Pridegárd. Wahlström & Wid-
strand 1947. Verð kr. 12. Saga þessi
er látin gerast á steinöld og fjallar
um hvatalífið, sem höfundur mun
telja ærið líkt hjá steinaldarmanni
og nútímafólki.
BÆKUR Á DÖNSKU:
Romerske Dagböger, eftir H. C.
Andersen. Gyldendal 1947. Verð 13.50
kr. danskar. Úrval þetta úr dagbók-
um og minnisblöðum frá Rómaferðum
ævintýraskáldsins fræga hafa þeir
gert Paul V. Rubow og H. Topsöe-
Jensen.
Efter Regn, skáldsaga eftir Ole
Juul, höfund hinnar kunnu hemáms-
sögu „De röde Enge“. Thaning &
Appel 1947. Verð 7.75 d. kr.
BÆKUR Á NORSKU:
Grenseland, skáldsaga eftir Sigurd
95