Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 2

Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 2
Veður Strekkings norðaustanátt. Rigning NA-til og slydda eða snjókoma til fjalla, en einnig dálítil rigning syðst á landinu. sjá síðu 70 Stígamót veittu viðurkenningar Árlegar viðurkenningar Stígamóta voru afhentar í gær. Talskonur og talsmenn Stígamóta í fræðslu- og fjáröflunarátaki ársins „Styttum svartnættið“ hlutu viðurkenningarnar í ár. Átakið felst í að stytta tímann frá því að kynferðisbrot er framið þar til brotaþoli leitar sér aðstoðar. Fréttablaðið/anton Jólagjöf VITA Veglegur bókunarafsláttur af völdum dagsetningum. Gildir til 30. desember. Vinsælustu gististaðirnir bókast fyrst. VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS ferðaþjónusta „Við vorum búin hlakka lengi til og spara fyrir þess- ari ferð,“ segja hjónin Sarah og Mark Bellew vonsvikin á síðasta degi fyrstu heimsóknar sinnar til Íslands. Ástæða vonbrigðanna er verðlagið. „Þetta er eiginlega alveg ótrú- legt,“ segja þau Sarah og Mark þar sem þau sitja í anddyrinu á Center Hotel við Þingholtsstræti. Daginn áður höfðu þau farið Gullna hringinn svokallaða; á Þing- velli og Gullfoss og Geysi. Að auki var heimsókn í baðstaðinn The Secret Lagoon á Flúðum innifalin í verðinu og veik von um norðurljós á himni en engar máltíðir. Þau sýna kvittunina. Á henni stendur skýrum stöfum: 87.800 krónur. Verðið er sem sagt 43.900 krónur á manninn. „Við erum bara hér í örfáa daga. Allir segja að þessa staði verði maður einfaldlega að sjá og þetta var það ódýrasta sem við fundum,“ segir Mark. Farið var með fimm far- þega jeppa en þau voru reyndar þau einu sem mættu. „Við veltum því ekki alvarlega fyrir okkur að leigja bíl sjálf til að fara þennan hring af því að aðstæður geta verið ótryggar en hefðum svo sem allt eins getað gert það.“ Sarah og Mark gengu í hjóna- band í september en geymdu brúð- kaupsferðina til Íslands þar til nú. Þau keyptu flug og gistingu á verði sem þau segja að hafi verið tiltölu- lega sanngjarnt. Þau hafi hins vegar fengið áfall við komuna. „Við höfðum heyrt að verðlagið hér væri hátt og áttum von á að það væri kannski eins og í London. Við höfum farið víða, til dæmis til Moskvu þar sem eru mjög dýr hverfi en þetta slær jafnvel það út,“ segja hjónin sem ætluðu að gera vel við sig þá fáu daga sem brúðkaups- ferðin átti að vara. Lítið varð af því. „Verðlag á veitingastöðum og börum í Reykjavík er svakalegt. Við hefðum einfaldlega farið á hausinn ef við hefðum ekki haldið aftur af okkur. Það er svekkjandi að hafa þurft að gera það,“ segir Sarah. Mark, sem er fertugur, er sam- skiptastjóri hjá lestarfyrirtækinu Network Rail. Sarah er 33 ára og er dagskrárgerðarmaður á útvarps- stöðinni Global Radio í heimabæ þeirra Manchester. „Við eigum vini sem eru að koma til Íslands í næstu viku og þekkjum fleiri sem velta því fyrir sér. Við verðum að vara þau við því sem er hér er  í gangi. Þetta er eins og að lenda í höndunum á fjárkúgurum,“ segja Bellew-hjónin sem  komu til landsins á miðvikudag og fóru aftur heim í dag – nánast tómhent. „Okkur langaði að kaupa minja- gripi til að færa börnunum. Við sáum Geysis-tröll sem kostaði 150 pund. Það er svona tífalt meira en sambærilegur hlutur  kostar í London,“ segir Mark. Sama gildi um tuskudýr, lopavörur og hvað- eina sem þau hafa rekist á. „Ætli við endum ekki á að reyna að finna minjagripasegul á ísskápinn heima. Þannig seglar kosta um tvö pund annars staðar. Ef við erum heppin sleppum við kannski með sex pund hér.“ gar@frettabladid.is Sem á valdi fjárkúgara í brúðkaupsferð á Íslandi Þriggja daga Íslandsheimsókn breskra hjóna var að þeirra sögn því líkust að lenda í greipum fjárkúgara. Lítið hafi verið um dýrðir í langþráðri brúðkaups- ferð. Þau segjast afar vonsvikin. Þau muni vara ættingja og vini við verðlaginu. „Það er talsvert af ferðamönnum í búðunum í reykjavík en maður sér varla nokk- urn mann kaupa nokkuð,“ segja hjónin Mark og Sarah bellew. Fréttablaðið/VilhelM Við hefðum einfald- lega farið á hausinn ef við hefðum ekki haldið aftur af okkur. Sarah og Mark Bellew samfélag Bankaráð Landsbankans hefur auglýst stöðu bankastjóra bankans lausa til umsóknar. Auglýsing þess efnis er í atvinnuaug- lýsingum Fréttablaðsins í dag. Stein- þór Pálsson, bankastjóri bankans, lét af störfum fyrir skemmstu og Hreiðar Bjarnason hefur verið starf- andi bankastjóri síðan. Farið er fram á að nýr bankastjóri búi yfir ótvíræðum leiðtoga- og stjórn- unarhæfileikum og f ra m ú r s k a ra n d i hæfni í mannleg- um samskiptum, auk menntunar og þekkingar á við- skiptaumhverfi og fjármálamarkaði. U m s ó k n a r - frestur er til 28. desember. – hh Landsbankinn auglýsir eftir bankastjóra efnahagsmál Húsnæðisverð hefur hækkað hvað hraðast í heiminum á Íslandi samkvæmt nýrri skýrslu. Frá september 2015 til september 2016 hækkaði húsnæðisverð um 12,9 prósent á Íslandi en um 5,5 pró- sent að jafnaði um allan heim. Mest var hækkunin í Tyrklandi, á Nýja- Sjálandi og Íslandi. Property Investor Today greinir frá því að húsnæðisverð hafi hækkað í Tyrklandi fimmta ársfjórðunginn í röð og um 13,9 prósent milli ára samkvæmt Global House Price Index eftir Knight Frank. Á eftir Íslandi hækkaði verð mest í Kanada, eða um 11,7 prósent. Hús- næðisverð hækkaði einnig í Banda- ríkjunum og var í lok tímabilsins hærra að raunvirði en nokkurn tímann áður. Húsnæðisverð er þó ekki alls staðar á uppleið. Húsnæðisverð lækkaði mest á tímabilinu í Úkraínu, eða um 9,9 prósent, og í Taívan um 8,9 prósent. Einnig lækkaði húsnæðisverð í Hong Kong um 5,5 prósent og í Singapúr um tvö prósent. – sg Húsnæðisverð hækkað einna mest á Íslandi 15 12 9 6 3 0 tyrkland nýja- Sjáland Ísland Kanada austur- ríki 13,9% 13,5% 12,9% 11,7% 9,5% þróun húsnæðisverðs Á einu ári í nokkrum löndum. Steinþór Pálsson 12,9% hækkaði húsnæðisverð á Ís- landi frá september 2015 til september 2016. 1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 l a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 0 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 5 2 s _ P 1 5 1 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 1 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B A 1 -0 5 9 4 1 B A 1 -0 4 5 8 1 B A 1 -0 3 1 C 1 B A 1 -0 1 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 5 2 s _ 9 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.