Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 18
Valdapendúllinn
hefur farið mjög
mikið til neytenda.
Valdimar Sigurðsson,
prófessor við
Háskólann í
Reykjavík
Það er ekkert sem
virkar eins vel og
virkt eftirlit neytenda sem
hafa tök á að gera verð-
samanburð.
Ólafur Arnarson,
formaður Neyt-
endasamtakanna
markaðurinn
„Ég held að það sé vitundarvakn-
ing hjá neytendum. Samanburður
við útlönd er orðinn auðveldari í
gegnum netið. Samfélagsmiðlar
eru orðnir leið til að deila þessu og
fjölmiðlar hafa líka sýnt þessu meiri
áhuga núna,“ segir Ólafur Arnarson,
formaður Neytendasamtakanna.
Með samfélagsmiðlum hefur
neytendahegðun að miklu leyti
breyst á undanförnum árum. Neyt-
andinn er stutt frá forsvarsmönnum
fyrirtækisins og ein Facebook-færsla
um ósanngjarnt verðlag getur haft
gríðarleg áhrif. Undanfarnar vikur
hafa dunið á fréttir um gríðarlegan
verðmun annars vegar hér á landi
og utan landsteinanna, dæmi hafa
verið um dekk og legókubba.
Fjölmiðlaumfjöllun hefur áhrif
„Einstaklingur sem gerir samanburð
og birtir á Facebook er gott mál, en
það er virkilegur slagkraftur þegar
sterkir fjölmiðlar taka þetta upp og
fara að fjalla um þetta. Þá verður
þetta alvöru mál. Það er samspil
þessa held ég sem veldur þessu,“
segir Ólafur.
Hann bendir á að annað sem geti
einnig spilað inn í sé styrking krón-
unnar. „Það er tilfinning okkar að
verslunin í landinu hafi ekki látið
þessa styrkingu ganga áfram til
neytenda í lækkuðu vöruverði. Þetta
á ekki við um alla, en þetta á við í of
mörgum tilfellum. Það verður mjög
áberandi og það verður sérstaklega
áberandi með vörutegundir sem
hafa alltaf verið dýrari hér en eru
núna svívirðilega dýrar eins og dekk
og legókubbar.“
Kaupmenn þurfa að bregðast við
Ólafur segir að neytandinn vilji ekki
láta bjóða sér þetta lengur. „Ég held
að verslunareigendur og kaupmenn
þurfi að bregðast við þessu hér því
netverslun er svo auðveld. Ef þú
pantar dekk þá eru þau komin til
þín eftir viku en ef þú kaupir minni
vöru er hún komin eftir tvo eða þrjá
daga,“ segir hann.
Ólafur bendir á að fólk fari í
auknum mæli í verslunarferðir og
svo skipti það ekki máli varðandi
verslun hvort neytandinn kaupi af
íslenskri eða erlendri netverslun.
„Hann situr bara fyrir framan
tölvuna og flestir Íslendingar eru
með þannig kunnáttu í ensku að
þeir geta hæglega verslað á netinu,
þetta er raunveruleiki sem kaup-
menn standa frammi fyrir. Hingað
eru svo að koma erlendar verslunar-
keðjur eins og H&M og Costco. Þetta
mun koma með samkeppni inn á
íslenskan smásölumarkað, draga
úr álagningu og koma neytendum
til góða. En það er ekkert sem virkar
eins vel og virkt eftirlit neytenda
sem hafa tök á að gera verðsaman-
burð,“ segir Ólafur.
Mikil breyting á áratug
„Valdapendúllinn hefur farið
mjög mikið til neytenda. Fyrir
tíu til fimmtán árum gat ég, ef ég
fór á lélegan veitingastað, refsað
fyrirtækinu með því að fara aldrei
þangað aftur og sagt vinum mínum
frá því. Þá heyrðu kannski ellefu af
því, nú hefurðu tæki til að láta 500
vini á samskiptamiðlum heyra þetta
sem og vini vina þinna. Það er allt í
kerfinu sem ýtir undir það að neyt-
endur tjái sig. Íslenskir neytendur
eru að átta sig á því að þeir geta
nýtt snjallsíma sína og samfélags-
miðla. Alþjóðaviðskipti hafa líka
aukist þannig að ef ég er óánægður
kaupi ég bara á netinu. Þetta er allt
Neytendur láta ekki
bjóða sér hvað sem er
Neytendur benda í auknum mæli á háa verðlagningu á samfélagsmiðlum
og neyða fyrirtæki til að bregðast við. Formaður Neytendasamtakanna segir
vitundarvakningu eiga sér stað. Fyrirtæki eru að læra að bregðast við þessu.
Frétt sem birtist á Vísi um dekkjaverð
vakti mikla athygli í vikunni.
til styrkingar neytendum,“ þetta
segir Valdimar Sigurðsson, doktor
í markaðsfræðum með áherslu á
neytendasálfræði. Hann er prófess-
or við Háskólann í Reykjavík.
Búið að missa nokkra sölu út
Valdimar tekur undir með Ólafi
um að það sé vaxandi óánægja
með hátt verðlag hér á landi hvort
sem það er á dekkjum, legókubbum
eða barnafötum. „Sala að utan
hefur aukist mikið hvort sem það
er í gegnum Aliexpress eða versl-
unarferðir vinkvenna til Boston.
Það er almennt minnkandi trú á
verslun hér á landi, bæði er það
vegna vöruframboðs, eða þá versl-
unin sjálf er ekki eins skemmtileg
og erlendis og svo er það verðlagið.
Ég get ímyndað mér að mörgum
neytendum finnst þeir illa sviknir
hér á landi, að verðlagið sé þannig
að þú verslir bara þarna vegna þess
að þú átt ekki annarra kosta völ,“
segir Valdimar.
„Maður heyrir það svolítið að
sumar verslanir hugsi þannig að þetta
sé orðinn þeirra kjörmarkaður hér á
landi: að selja þeim sem þurfa vöruna
strax. Það er það sem verslunin þarf
að gera því hún er búin að missa
nokkra sölu út,“ segir Valdimar.
Verð endurspeglar virði
Hann bendir þó á að ef maður setur
sig í spor verslunareigenda endur-
spegli verðlagning oft meira þá virð-
ingu og væntingar sem neytandinn
fær, en ekki endilega kostnað og ein-
hverja álagningu. „Það er alls ekki
nýtt að þykja það góð viðskipti að
reyna að búa til sem mest virði fyrir
neytandann. Svo er líka spurning
hvenær er verið að misnota þetta.“
Fyrirtæki bregðast við
Að mati Valdimars voru fyrirtæki
fyrir nokkrum árum algjörlega ber-
skjölduð gagnvart gagnrýni á sam-
félagsmiðlum. „Fyrir örfáum árum
var ráðist á nokkur fyrirtæki og þau
vissu ekki af því fyrr en eftir nokkra
daga. Núna eru hins vegar fleiri
fyrirtæki að taka upp stefnumótun
í þessu. Þau átta sig á að það er ekki
sniðugt að setja upp Facebook- eða
Instagram-síður án eftirlits. Það
kemur ekkert út úr þessu nema þú
sért í almennilegu sambandi við
neytendur. Nú eru mörg fyrirtæki
að vinna á faglegri hátt til að svara
svona gagnrýni.“
Hann bendir á að sum fyrirtæki
sjái núna hvort þeir sem gagnrýna
fyrirtækið séu áhrifavaldar á sam-
félagsmiðlum og þá skiptir álit þess
þau fyrirtæki meira máli. „Sam-
skiptamiðlar eru bæði til góðs og
ills. Það sem skiptir mig máli og
aðra er að þetta geti gefið okkur
betri fyrirtæki og betra samfélag ef
við getum nýtt kraft neytenda,“ segir
Valdimar. saeunn@frettabladid.is
Neytendur eru duglegir að bera saman verð á gjöfum hér og úti. MyNd/TeiTurJ
Einstaklega áhugaverð ferð til Víetnam sem býður uppá stórkostlega og ógleymanlega upplifun ásamt
ótrúlegri sögu lands og þjóðar. Landið er einstaklega fagurt
og gróðursælt með skógiklæddum fjöllum, gróskumiklum
hrísgrjónaökrum, fossum og lækjum.
Heimamenn taka einstaklega vel á móti ferðamanninum
og hvarvetna má sjá brosandi andlit. Í upphafi ferðar er
flogið til Frankfurt og gist í bænum Heidelberg rétt sunnan
við Frankfurt. Daginn eftir er flogið til Ho Chi Minh City
(Saigon) í suðurhluta Víetnam og dvalið þar í 4 nætur.
Þaðan er haldið í norðurátt til fyrrum höfuðborgar
Víetnam, Hue og borgarinnar Hoian en þær eru báðar
afar áhugaverðar og á heimsminjaskrá UNESCO. Í lok
ferðar er dvalið í höfuðborginni Hanoi. Þaðan verður farið
í einnar nætur siglingu á Halong flóa með dæmigerðum
bát heimamanna og gist þar eina nótt. Það er sem ævintýri
líkast að sigla þar á milli stórfenglegra kalksteinskletta og
fallegra sandstranda.
Fjölmargar áhugaverðar kynnisferðir eru innifaldar í
ferðinni og þess ávallt gætt að heimsækja áhugaverða
sögulega staði en einnig að njóta alls þess sem þetta
fallega land hefur uppá að bjóða.
KEFLAVÍK – FRANKFURT / HEIDELBERG – SAIGON – HUE
HOIAN HANOI – HALONG BAY – FRANKFURT – KEFLAVÍK
Fararstjórar: Jón Ingvar Kjaran / Árni Hermannsson
Frá kr. 469.900 m/fullt fæði innifalið
Netverð á mann frá kr. 469.900 m.v. 2 í herbergi
Innifalið: Flug, skattar, 1 taska/20kg, gisting í 1 nótt í Heidelberg,
gisting í 11 nætur á 4* hótelum í Víetnam. Fullt fæði innifalið.
Fjölmargar kynnisferðir og sigling innifalið í verði.
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
78
94
2
VÍETNAM
Ógleymanleg
upplifun14.-28. mars 2017
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r18 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
1
-1
4
6
4
1
B
A
1
-1
3
2
8
1
B
A
1
-1
1
E
C
1
B
A
1
-1
0
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K