Fréttablaðið - 10.12.2016, Qupperneq 26
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18 • Dalbraut 1
Jólakökur,Smákökur,Stórar piparkökurtil að skreyta,PipakökuhúsO.m.fl.
JÓLIN ERU
HJÁ OKKUR...
....................................................
www.bjornsbakari.is
Þegar ég heyrði fréttina í hebreska útvarpinu var ég á ferð rétt hjá Gaza þar sem ungmenni kasta
steinvölum á móti byssukúlum her-
manna. Rétt fyrir utan Tel Aviv í Ísrael
gaf 93 ára gamalmenni upp öndina.
Allir valdamestu menn jarðarbyggðar
kipptust við, lögðu allt frá sér og stukku
upp í flugvélar sínar. Með tveggja daga
fyrirvara flugu þeir, langar leiðir til að
votta virðingu þessum vitringi frá Aust-
urlöndum. Viðstödd útförina voru öll
helstu fyrirmenni veraldar, frá 70 þjóð-
löndum, álíka margir og þegar Nelson
Mand ela var kvaddur. Mahmoud
Abbas, forseti Palestínu, kom einnig
til að kveðja. Hamas fordæmdi.
Á sínum 70 ára pólitíska ferli var
Simon Peres þátttakandi í ákvörðunar-
tökum sem hafa mótað heimssöguna á
því svæði þar sem hinstu örlög munu
ráðast, að margra mati. Obama vék að
því í sínum minningarorðum hvernig
dauði fjölskyldu Peresar í helförinni
i hinni kristnu Evrópu varð hvati að
hans mikla og þrotlausa lífsstarfi.
Hann var bæði stríðshaukur og friðar-
dúfa.
Stríð og uppbygging
Peres átti þátt í stofnun Ísraelsríkis
sem var frá byrjun eina lýðræðisríkið
á svæðinu. Þegnarnir voru stríðshrjáð-
ir, landlausir flóttamenn sem áttu alls
engan samastað. Hann átti stóran þátt
í að skapa á skömmum tíma þá inn-
viði sem gerði hinu nýstofnaða ríki
kleift að taka á móti milljónum flótta-
manna sem streymdu alls staðar að úr
heiminum. Hebreskan var endurlífg-
uð eftir 2000 ár, það er einstakt. Hann
átti þátt í að byggja upp öflugan her
til að verjast fjandsamlegum nágrönn-
um. Hann vann sleitulaust að því að
skapa þjóð sinni örugga og friðsæla
tilveru. Aðferðirnar voru því miður
ekki alltaf friðsamlegar því það litla
og hrjóstruga landsvæði sem þjóð
hans var ætlað af alþjóðasamfélaginu
við stofnun Ísraelsríkis árið 1948 var á
ófriðsamlegu svæði. Gyðingar höfðu
búið þar um aldir en einnig Drúsar,
Bedúínar og palestínskir arabar sem
höfðu ekki skilgreint sig sem þjóð og
margir lifðu hirðingjalífi á mun stærra
svæði. Svæðið hafði verið í pólitískri
upplausn um aldir.
Landamæri
Við dæmum Ísraela hart fyrir að virða
ekki öll landamæri. Flest landamæri
Mið-Austurlanda hafa verið dregin
án nokkurrar lýðræðislegrar aðkomu
þess fólks sem á svæðinu býr. Helstu
landamæri voru dregin af vestrænum
valdhöfum eftir fall Tyrkjaveldis. Þau
voru dregin þvert á línur þjóðernis-
hópa, ættbálka, trúarbragða og tungu-
mála. Í dag búa nokkur þjóðarbrot í
flest öllum löndum og flestir minni-
hlutahópar búa við mun verri kjör en
Palestínumenn búa við í Ísrael.
Friðarverðlaun Nóbels
Í lok starfsferils síns hafði hann verið
ráðherra flestra mikilvægustu ráðu-
neytanna, verið forsætisráðherra í tví-
gang og forseti síðustu árin. Friður var
alltaf hans markmið. Fyrir framlag sitt
til Óslóarsamkomulagsins fékk Peres
friðar verðlaun Nóbels árið 1994,
ásamt Yitzhak Rabin og Yass er Ara-
fat. Peres var í senn afburðagreindur
og mikill bjartsýnismaður og hann dó
með friðardrauminn í brjósti.
Við fyllumst reiði
Margir hér á landi fyllast heilagri reiði
þegar þeir heyra af yfirgangi Ísraels-
manna gagnvart Palestínumönnum.
Þar er auðvelt að flæða yfir í sögulegt
gyðingahatur hinnar kristnu Evrópu
og finna einn allsherjar sökudólg alls
þess sem miður fer. Evrópa kann þá
sögu og er nú byrjuð aftur. Nú ríkir
upplausnarástand í arabaheimi. Víða
má finna ógnarstjórnun og grimmileg
stríðsátök. Sýrland er sem helvíti á
jörðu, börn, sjúkrastofnanir og aðrir
saklausir eru notaðir sem byssu-
fóður, flestir eru hættir að telja. Hvers
vegna eru ekki mótmæli hér heima
eða hótanir um viðskiptabönn? Á
það einungis við þegar gyðingar
tengjast málum? Sum Vesturlönd
sem eru öflug í vopnaframleiðslu og
sölu undir borðið, virðast bara horfa
á, sem ábyrgðarlaus. Víða í hinum
sundraða arabaheimi er hatrið á
Ísrael eina sameiningaraflið og það
nýtt til þess ýtrasta í áróðursskyni.
Við erum orðin vön að dæma Ísraela
mun harðari dómi en við dæmum
alla nágranna þeirra og einnig mun
harðari dómi en við dæmum okkur
sjálf.
Steinvala
Ég dreif mig upp til Jerúsalem. Þegar
veraldarleiðtogar höfðu yfirgefið graf-
arsvæðið á Hertzel-hæðinni sem er
þjóðargrafreitur, þá gafst tækifæri til
að fara að gröfinni. Tregafull harmon-
ikkutónlist hljómaði og andrúmsloft-
ið var tilfinningaþrungið, kyrrlátt, tár
á hvörmum. Við látlausa gröfina voru
jú blómakransar en einnig fjölmargar
steinvölur sem syrgjendur höfðu
sett á leiðið að sið gyðinga. „Grasið
visnar, blómin fölna,“ en steinvalan
deyr ekki. Hún getur haldist óbreytt
endalaust, þegar flest annað breytist.
Ég lagði steinvölu á leiðið, þannig
mun minningin lifa.
Steinvala á leiði Símonar Peres
Árið 1948 komu menn sem útskrifaðir voru af geð-sjúkrahúsi í New York
saman á kaffihúsi. Þeir áttuðu sig
á að margir sem legið höfðu með
þeim höfðu komið aftur og aftur og
ekki fundið sig í lífinu utan sjúkra-
hússins. Þeir sem hafa dottið út úr
rútínu daglegs lífs þurfa aðlögun að
samfélaginu aftur. Þessi umræða
varð upphaf að stofnun fyrsta
klúbbhússins sem nú eru orðin að
alþjóðlegri hreyfingu. Upphaflega
byggðu þeir á orðunum We are not
alone eða við stöndum ekki ein.
Félagsskapnum áskotnaðist hús
á Manhattan og var gosbrunnur í
garðinum. Húsið gekk undir nafn-
inu Fountain House eða brunnhús
og er alþjóðahreyfingin kennd við
það. Í húsinu mótaðist kerfi sem
byggðist upp á því að auka sjálfs-
traust félaga og skapa andrúmsloft
sem var ólíkt því sem þeir höfðu
upplifað á sjúkrahúsum. Félagar
og starfsfólk vann saman sem
jafningjar að öllu sem gera þurfti í
starfseminni. Allt rými var aðgengi-
legt öllum og starfsfólk hafði ekki
sér aðstöðu fyrir sig. Allar ákvarð-
anir voru teknar í samhljómi án
atkvæðagreiðslu og stjórn í dag-
legum rekstri var á herðum félaga
og starfsfólks í sameiningu. Dagur
í klúbbnum átti að líkjast degi á
vinnustað. Með ýmsum ráðum
voru félagar studdir til fullrar þátt-
töku í daglegu lífi með stuðningi til
vinnu, í húsnæðisleit og öðru slíku.
Hefur breytt lífi fjölda
einstaklinga
Nú er þessi starfsemi alþjóðleg og
mótuð af stöðlum og gæðaeftir-
liti. Rannsóknir í háskólum hafa
sýnt að það fé sem varið er til starf-
seminnar er lítið miðað við þjóð-
félagslegan sparnað sem fólginn er
í bættri heilsu, meiri atvinnuþátt-
töku og færri innlögnum þeirra
sem njóta góðs af kerfinu. Þá er
ekki meðtalinn sá ávinningur sem
félagar hafa í bættri heilsu og betra
lífi.
Hér á landi er Klúbburinn Geysir
í Skipholti 29. Hann er rekinn í
anda þessa kerfis. Hann hefur verið
gæðavottaður reglulega og staðist
fyllstu kröfur. Hann hefur starfað í
yfir 16 ár og hefur breytt lífi mikils
fjölda einstaklinga. Eina skilyrði
fyrir þátttöku er að líða eða hafa
liðið af andlegum veikindum. Ég
hvet alla sem eru í þeirri stöðu eða
þekkja menn í þörf fyrir klúbbinn
að kynna sér hann frekar. Hann
hefur heimasíðuna kgeysir.is. Hægt
er að hafa samband í síma 5515166
með t-pósti kgeysir@kgeysir.is eða
koma á staðinn.
Höfundur er félagi og stjórnar-
maður í Klúbbnum Geysi og í
ráðgjafahópi Alþjóðahreyfingar
Klúbbhúsa.
Stuðningsráð
fyrir veika
Jón
Sigurgeirsson
lögfræðingur og
stjórnarmaður í
Klúbbnum Geysi Rannsóknir í háskólum hafa
sýnt að það fé sem varið er til
starfseminnar er lítið miðað
við þjóðfélagslegan sparnað
sem fólginn er í bættri heilsu,
meiri atvinnuþátttöku og
færri innlögnum þeirra sem
njóta góðs af kerfinu.
Save the Children á Íslandi
Hjörtur Magni
Jóhannsson
Fríkirkjuprestur
við Tjörnina
Við dæmum Ísraela hart fyrir
að virða ekki öll landamæri.
Flest landamæri Mið-Austur-
landa hafa verið dregin án
nokkurrar lýðræðislegrar
aðkomu þess fólks sem á
svæðinu býr.
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r26 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
1
-3
6
F
4
1
B
A
1
-3
5
B
8
1
B
A
1
-3
4
7
C
1
B
A
1
-3
3
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K