Fréttablaðið - 10.12.2016, Page 38

Fréttablaðið - 10.12.2016, Page 38
„Ég er að horfast í augu við gamla neikvæðni og óunnin mál í fjölskyld- unni. Það er svo auðvelt fyrir yngri kynslóðir að benda og dæma, það er svo mannlegt. Og kannski er það sniðugt af náttúrunni, því þannig erum við alltaf að horfast í augu við okkur sjálf og ef til vill að létta á far- angrinum fyrir börnin okkar. En ég er líka að gera svolítið grín að sjálfri mér. Því hver er eiginlega heill? Og hver er eiginlega brotinn? Þegar ég horfi til baka þá hef ég kannski talið mig eiga gott tímabil, en kannski var ég hvað mest brotin þá. Og öfugt. Við erum alltaf að sjá ævi okkar aftur og aftur upp á nýtt, frá nýjum sjónar- hornum.“ Áhætta og velgengni Sýningin hefur fengið góð viðbrögð. Björk segir mikla áhættu hafa tengst sýningunni, enda sé hún ákveðin til- raun. „Það er enginn að gera þessa sýn- ingu í heiminum á þessum skala eins og við erum að gera. Hún er sú fyrsta þessarar tegundar. Sýningin var mjög stór í Sydney, ein og hálf millj- ón manns fór í gegnum sýninguna. Þetta var í raun eins og listahátíð hér heima og umgjörðin öll stærri. Ég ákvað bara að láta á þetta reyna og sjá hvað gerðist. Það gekk vel og þá prófaði ég að fara með sýninguna til Tókýó, mekka tækninnar. Þar var sýningin haldin á tæknisafni sem er nú orðið tuttugu ára gamalt. Það var alveg ótrúlegt að sjá tuttugu ára sögu róbóta á safni því tilfinningin er sú að þetta sé eitthvað sem er nýhafið,“ segir Björk. Sýningin í London var haldin í Somerset House. „Þar var undir- tónninn virðulegri, alvarlegri, annað samhengi. En við fengum mjög góða dóma og það var uppselt á sýning- una allan tímann.“ Líkamleg nánd sýndarveruleika Hverjir eru möguleikar sýndarveru- leika og tónlistar? „Ég hef lengi verið að taka þátt í því að búa til myndbönd. Síðan ég veit ekki hvenær, ég held 1982. Þannig að ég hef mikla reynslu í þessum iðnaði sem hefur gengið í gegnum margs konar skeið. Ég var alltaf að reyna að gera eitthvað nýtt og óska þess að ég gæti gert eitthvað stórbrotið. Brotið mig úr rammanum. Mér hefur alltaf fundist sjónvarpið frábært en samt eins konar millilending. Þegar sýndarveruleikinn varð mögulegur í tónlist þá varð ég strax mjög hrifin og forvitin. Þarna er hægt að fara í afmarkaðan heim þar sem maður getur sleppt sér. Það heillar mig og við erum rétt að byrja, núna erum við að þróa hljóðið, láta það fara með hreyfingunni á sama tíma og horft er. Það þarf að semja lagið þannig, taka tillit til skynhrifanna. Það eru kostir og gallar en sterk- ustu kostirnir eru þessi áhrif. Þessi líkamlegu og nánu áhrif. Sýndar- veruleikinn fer beint í heilann. Sá sem horfir og hlustar er í miðjunni, þess vegna er þetta svo spennandi,“ segir Björk og nefnir að vísinda- menn séu líka heillaðir ekki síður en listheimurinn. Alltaf skilað auðu í pólitík Björk er ekki virk í stjórnmálum að eigin sögn og hefur alltaf skilað auðu í kosningum. „Ég hef alltaf skilað auðu í pólitík og aldrei stutt neinn flokk. Meira að segja þegar vinir mínir fóru fram í Besta flokknum þá studdi ég þá ekki á neinn hátt. Nema bara sem vinur, eins og þeir hafa stutt mig sem vinir. En alls ekki opinberlega eða með fjárstuðningi. Mín pólitík er hins vegar umhverf- ismálin. Ég hef verið í um sextán ár í sjálfboðavinnu í því að minna Íslendinga á að þeir eigi þennan fal- lega þjóðgarð og það gerist ekki sjálf- krafa að hann verði verndaður. Og það þarf að taka afstöðu,“ segir Björk og segist stundum hafa áhyggjur af því að með baráttu sinni hafi hún þau áhrif að fólk geri minna. „Ég fæ reglulega þetta áhyggju- kast að fólk hugsi: Gott að Björk er að þessu. Þá þarf ég ekki að gera neitt. Því það er svo gríðarlega mikil- vægt að allir taki afstöðu og ábyrgð í umhverfismálum. Sérstaklega vegna válegrar þróunar í loftslagsmálum. Við héldum eitt sinn að við hefðum fimmtíu ár til að breyta orkugjöfum til þess að snúa við þróuninni, en þau eru nú átta. Ef við ætlum virki- lega að gæta þess að barnabörnin okkar geti átt heima á jörðinni þá verðum við að blanda okkur í bar- áttuna með skýrum hætti.“ Ábyrgðarleysi stjórnvalda Hún gagnrýnir ábyrgðarleysi íslenskra stjórnmálamanna, henni finnst erfitt að fylgjast með þróun mála í Helguvík og óttast mjög um framvinduna í Hvalfirði. „Mér finnst virkilega erfitt að fylgjast með þróun mála í Helguvík. Iðnaði sem ég barðist ötullega gegn. Það er minna en fjórðungur ofnanna kominn í gang og mengunarbræla út um allt. Þá er Hvalfjörður í mikilli hætti og þéttbýli í grennd. Þar er stórslys í uppsiglingu sem verður að stöðva. Þetta er svo mikið ábyrgðar- leysi af hálfu stjórnvalda. Ég fylgist núna með stjórnmálunum og stjórn- armyndunarviðræðum og vona að sterkur umhverfisráðherra taki við. Einhver sem skellir ekki í margar Helguvíkur heldur tekur ábyrgð.“ Gott líf í Vesturbænum Björk býr á Íslandi  langstærst- an hluta ársins. „Yfirleitt þegar ég er hérna á Íslandi þá nýt ég þess að vera bara heima í Vesturbænum. Fara í Vestur- bæjarlaugina og Melabúðina. Mér finnst það gott líf. Ég fer ekki mikið í viðtöl, þá heldur fólk að ég sé á flakki. Mér finnst það best, að halda mig svolítið til hlés.“ Hvað með þessa eyju sem þú ætl- aðir einu sinni að búa á í Breiðafirði? „Ég var einu sinni að leita að eyju en svo varð það að einhverju fjölmiðla- máli og ég bakkaði út úr því. En ég á mér griðastað, á sumarbústað á Þing- völlum sem ég fer oft í. Hann hentar mér betur. Ég veit ekki hvernig ég ætti að plata unglinginn með mér í afskekktan fjörð eða eyju,“ segir hún og hlær. „Jæja, nú skulið þið koma með mömmu á eyðieyju í tvær vikur! En ég sé til þegar börnin eru búin í skóla. Þá geri ég kannski eitthvað alveg brjálað,“ segir Björk og brosir við tilhugsunina. Rými fyrir femínisma Björk sagði í viðtali við Pitchfork að hún skildi konur í tónlistariðnaði sem fyndu fyrir misrétti. Er það raunin? Er mikið misrétti í þessum iðnaði? „Mamma var mjög virk kvenrétt- indakona og ól mig upp í því að nú væri búið að kvarta og kveina og nú þyrfti að gera hlutina. Svo fór ég og gerði hlutina. Gætti þess að kvarta ekki og kveina. En svo fór ég að finna að yngsta kynslóðin hafði ekki sömu reynslu. Það hafði komið bakslag enn á ný og mér fannst ég þurfa að styðja þær með því að segja þeim að ég skildi þær. Þetta væri erfitt. Og það er rétt. Þjóðfélagið hefur alltaf ákveðið rými fyrir vissan tíðaranda. Ég held að síðustu ár hafi myndast sífellt meira rými fyrir femínisma. Þetta sveiflast og þegar rýmið myndast er mikilvægt að koma með öll vanda- málin á borðið og leysa þau. Svo förum við aftur í tíðarandann þar sem við trúum ekki á vandamálin heldur það að gera,“ segir Björk og á við að þetta séu eðlilegar sveiflur. Gera allt sjálf Hún gerir mikið sjálf og gætir vel að öllu markaðsefni, útliti, búningum og skilaboðum sem tengjast tónlist hennar og list. „Ég og mitt nánasta starfsfólk, James Merry, Rosemary Llagorstera, Derek Birkett og fleiri, við gerum allt sjálf. Við setjum á netið, Facebook, framleiðum kynningarefni og stýr- um því, tónlistarmyndböndum. Mér finnst eins og ég sé að vökva garðinn minn. Þetta er ekki stjórnsemi af illu tagi heldur er ég að vernda lögin mín. Bara á sama hátt og ég passa að dóttir mín fari í réttan skóla. Þetta skiptir mig máli.“ En hvernig líður Björk, þegar hún er að semja? Semur hún mikið? „Það að semja lag hefur margar hliðar. Ég hugsa að ég semji sirka eitt lag á hverju fullu tungli. Þar er kannski mesta flugið. Ég verð stund- um hissa þegar ég hlusta seinna. En það eru líka margar aðrar hliðar á því að búa til tónlist sem ég ber jafn mikla virðingu fyrir. Eins og til dæmis þegar ég er að gera strengjaút- setningar eða klippa saman riþma. Kannski meira eins og að sauma út eða prjóna. Rólegra en alveg eins miklir töfrar og nostur og ef vel tekst upp, alveg eins mikil gjöf. Annar hraði, meira eins og að biðja bænir. Síðan hljóðblandar maður og mast- erar. Þetta eru allt mismunandi nálg- anir á sama hlutnum: Að undirbúa gjöf sem mann langar til að gefa, mis- mikið straumlínulagað. Að velja með natni hverjum af samtölunum við mann sjálfan maður er til í að deila og finnst einhver smá séns á að muni tengja eða finna samruna þarna úti.“ „Það er enginn að gera þessa sýningu í heiminum á þessum skala eins og við erum að gera,“ segir Björk. Mynd/SAntiAGo FeLipe Eftir því sEm ég Eldist þá Eflist ábyrgðartil- finningin sEm í raun fylgir pönkinu. þEtta Er Ekki stjórn- sEmi af illu tagi hEldur Er ég að vErnda lögin mín. bara á sama hátt og ég passa að dóttir mín fari í réttan skóla. „Þegar ég horfi til baka þá hef ég kannski talið mig eiga gott tímabil, en kannski var ég hvað mest brotin þá. og öfugt,“ segir Björk. Mynd/SAntiAGo FeLipe 1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r38 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 0 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 5 2 s _ P 1 3 0 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 1 1 5 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B A 1 -1 E 4 4 1 B A 1 -1 D 0 8 1 B A 1 -1 B C C 1 B A 1 -1 A 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 5 2 s _ 9 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.