Fréttablaðið - 10.12.2016, Page 48

Fréttablaðið - 10.12.2016, Page 48
Fædd: 4. nóvember 1987 á Akranesi Maki: Hjalti Sigvaldason Mogensen Börn: Marvin Gylfi (4 ára) og Kristín Fjóla (8 vikna) Foreldrar: Gylfi R. Guðmundsson og Fjóla Katrín Ásgeirsdóttir Menntun: Lögfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík Fyrri störf: Lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins, aðstoðarmaður Ólafar Nordal innanríkisráðherra, stundakennari í stjórnskipunarrétti við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Áhugamál: Lífið. Hver hefur þinn ferill í stjórn- málum verið? Hvar byrjaði þetta allt? Ég byrjaði í stjórn SUS árið 2007 og varð formaður Þórs, félags ungra Sjálfstæðismanna á Akranesi. Það var skemmtilegur tími. Ég tók sæti á lista flokksins í Norðvesturkjör- dæmi fyrir kosningarnar árið 2007 og tók þátt í prófkjöri árið 2009. Tók aftur sæti á lista árið 2013 og var kosningastjóri í Norðvestur- kjördæmi fyrir þingkosningarnar árið 2013. Ég er ekki alin upp á pól- itísku heimili en ég held að þetta hafi alltaf blundað í mér. Ég sóttist eftir starfi framkvæmdastjóra þing- flokksins og Ólöf Nordal leitaði til mín þegar hún varð ráðherra. Tæki- færin hafa þannig komið til mín, ég gripið þau en ég hef líka sóst eftir þeim og leitað þau uppi. Hvernig lýst þér á þingmanns- starfið? Mér líst vel á að vera orðin þing- maður. Því fylgir ábyrgð og verk- efnin eru æði mörg og misjöfn. Ég hlakka til að takast á við starfið. Ég ber mikla virðingu fyrir Alþingi og þakka af auðmýkt fyrir að fólk hafi treyst mér fyrir því að taka þar sæti fyrir þess hönd. Kvíðirðu fyrir einhverju varð- andi starfið? Hverjar verða hindranirnar? Það er áskorun en jafnframt mikil- vægt að vera alltaf trúr sjálfum sér. Hvað úr reynslubankanum mun nýtast þér í nýja starfinu? Lögfræðimenntun nýtist vel og áhuginn á stjórnskipunarrétti. Sem framkvæmdastjóri þing- flokks starfaði ég í þinginu, sat þingflokksfundi, aðstoðaði þing- menn við ýmis mál, kynntist starfsfólki, þingstörfum og ýmsu varðandi flokksstarfið sömuleiðis. Í starfi mínu sem aðstoðarmaður ráðherra öðlaðist ég mikla og fjöl- breytta reynslu. Reynsla innan ráðuneytisins, samskipti við fjöl- miðla, undirstofnanir, þingið, þing- menn og fleira. Í ráðuneytinu eru margir stórir málaflokkar sem ég hef nú unnið innan um sl. tvö ár. Öll reynsla nýtist í þessu starfi, líka persónuleg reynsla. Margt mótar mann og ég mun gera mitt besta til að nýta mína reynslu til góðs. Sérðu fyrir þér að gera stjórn- mál að ævistarfi? Nei, það geri ég nú ekki. Ég er sosum rétt að hefja störf núna og veit ekki hvað framtíðin býður upp á en jafn- vel þótt ég sæti í þrjú kjörtímabil er ég að þeim loknum rétt rúmlega fer- tug og á þá, ef lífið lofar, nóg eftir af starfsævinni. Enginn veit sína ævina fyrr en öll er og mig langar að áorka mörgu og prufa ýmislegt. Hvar ólstu upp og hvernig var æska þín? Ég er fædd og uppalin á Akranesi, neðri Skaga til að vera nákvæm. Ég gekk í Brekkubæjarskóla og æfði sund með ÍA í meira en ára- tug. Sundíþróttin krefst mikils tíma svo ég var svona til skiptis í skólanum og í sundlauginni. Krullurnar náðu sjaldan að þorna í æsku. Ég hef alltaf átt yndislega vini og naut mín í æsku. Amma Dísa bjó nokkrum húsum frá mér og ég var mjög mikið hjá henni. Hún var rúmum 70 árum eldri en ég og hafði mikil áhrif á mig. Í barnæsku lék ég mér mikið með Gumma vini mínum, við vorum oftast í fjörunni að leika, lentum stundum í háska en einhvern veg- inn reddaðist það alltaf. Ég hef verið í sama saumaklúbbnum í 20 ár og æskuvinkonurnar eru enn þá þær bestu í dag. Hvernig nærir þú þig andlega? Kúpla mig út með því að veita syni mínum (nú börnunum mínum) alla mína athygli. Heimili mitt nærir mig andlega, kaffibolli með góðum vinkonum, slökun í heitu baði, góður nætursvefn. Á sumrin nærist ég í íslenskri náttúru. En líkamlega? Ég fer mikið í sund þótt ég syndi allt of sjaldan, það er af sem áður var. Svo eru göngutúrar með fjöl- skyldunni notalegir. Það fer eitt- hvað minna fyrir spinning og lóðum. Hver er fallegasti staður sem þú hefur komið á? Santorini. Uppáhaldsborg utan land- steinanna? Ég bjó í Vínarborg og hún er uppá- halds. Hvert langar þig að ferðast? Mig langar að sjá allan heiminn. Ég mun ekki komast yfir það en vonandi verð ég svo lánsöm að fá að ferðast víða. Mig hefur alltaf langað að koma til Ástralíu, ætlaði þangað sem skiptinemi en mömmu fannst það fulllangt í burtu (svona ef ég myndi ílengjast). Svo myndi mig langa að ferðast um Japan með fjölskyldunni. Hvernig verðu helgarfríum? Ég ver helgarfríum almennt í bröns, bakstur, sundferðir, tiltekt, góðan mat og rauðvín. Ég elska helgarfrí. Hvaða hljómsveit eða tónlistar- mann spilar þú mest á Spotify? Beyoncé og Nýdönsk. Hvað er síðasta myndband sem þú horfðir á á YouTube? Reykjavík er okkar með Emmsjé Gauta. Sonur minn var hissa á að ég kynni lagið þegar ég tók undir með honum og hann vildi í kjöl- farið hlusta á lagið á YouTube. Hann gerði hins vegar athugasemdir við að Emmsjé blótaði u.þ.b. fjórum sinnum í laginu. Ég sagðist koma því til skila. Gauti kannski les þetta. Hvert er uppáhaldsjólalagið? Silent Night, Holy Night með Mahaliu Jackson. Stjórnmál verða ekki ævistarfið Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er fjórði þingmaður Norðvesturkjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hér er hún á heimili sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Myndir úr fjölskyldualbúminu: Þórdís Kolbrún á ferð um landið með syni sínum og barnsföður. Nöfnurnar Þórdís og Þórdís, amma og barnabarn, á Akranesi 1989. Stoltur stóri bróðir með litlu systur nýfædda en dóttir Þórdísar fæddist rétt fyrir nýafstaðnar alþingiskosningar, seint í október. Og loks Þórdís með foreldrum sínum og ömmu við útskriftina úr lagadeild HR í júní 2012, þá með elsta soninn undir belti. Þekktu þingmanninn Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir er nýr þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Norðvesturkjör- dæmi en þó enginn nýgræðingur í stjórnmálum. Hún var sunddrottning á Akranesi á unglings- árunum en nýtur sín nú betur í heita pottinum. Þórdís kemur syni sínum á óvart með að kunna textana við heitustu rapplög dagsins. Snærós Sindradóttir snaeros@frettabladid.is 1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R48 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 0 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 5 2 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B A 1 -A 3 9 4 1 B A 1 -A 2 5 8 1 B A 1 -A 1 1 C 1 B A 1 -9 F E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 5 2 s _ 9 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.