Fréttablaðið - 10.12.2016, Qupperneq 48
Fædd: 4. nóvember 1987 á
Akranesi
Maki: Hjalti Sigvaldason Mogensen
Börn: Marvin Gylfi (4 ára) og Kristín
Fjóla (8 vikna)
Foreldrar: Gylfi R. Guðmundsson
og Fjóla Katrín Ásgeirsdóttir
Menntun: Lögfræðingur frá
Háskólanum í Reykjavík
Fyrri störf: Lögfræðingur hjá
úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála, framkvæmdastjóri
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
aðstoðarmaður Ólafar Nordal
innanríkisráðherra, stundakennari
í stjórnskipunarrétti við lagadeild
Háskólans í Reykjavík.
Áhugamál: Lífið.
Hver hefur þinn ferill í stjórn-
málum verið? Hvar byrjaði
þetta allt?
Ég byrjaði í stjórn SUS árið 2007 og
varð formaður Þórs, félags ungra
Sjálfstæðismanna á Akranesi. Það
var skemmtilegur tími. Ég tók sæti
á lista flokksins í Norðvesturkjör-
dæmi fyrir kosningarnar árið 2007
og tók þátt í prófkjöri árið 2009.
Tók aftur sæti á lista árið 2013 og
var kosningastjóri í Norðvestur-
kjördæmi fyrir þingkosningarnar
árið 2013. Ég er ekki alin upp á pól-
itísku heimili en ég held að þetta
hafi alltaf blundað í mér. Ég sóttist
eftir starfi framkvæmdastjóra þing-
flokksins og Ólöf Nordal leitaði til
mín þegar hún varð ráðherra. Tæki-
færin hafa þannig komið til mín, ég
gripið þau en ég hef líka sóst eftir
þeim og leitað þau uppi.
Hvernig lýst þér á þingmanns-
starfið?
Mér líst vel á að vera orðin þing-
maður. Því fylgir ábyrgð og verk-
efnin eru æði mörg og misjöfn. Ég
hlakka til að takast á við starfið. Ég
ber mikla virðingu fyrir Alþingi og
þakka af auðmýkt fyrir að fólk hafi
treyst mér fyrir því að taka þar sæti
fyrir þess hönd.
Kvíðirðu fyrir einhverju varð-
andi starfið? Hverjar verða
hindranirnar?
Það er áskorun en jafnframt mikil-
vægt að vera alltaf trúr sjálfum sér.
Hvað úr reynslubankanum mun
nýtast þér í nýja starfinu?
Lögfræðimenntun nýtist vel og
áhuginn á stjórnskipunarrétti.
Sem framkvæmdastjóri þing-
flokks starfaði ég í þinginu, sat
þingflokksfundi, aðstoðaði þing-
menn við ýmis mál, kynntist
starfsfólki, þingstörfum og ýmsu
varðandi flokksstarfið sömuleiðis.
Í starfi mínu sem aðstoðarmaður
ráðherra öðlaðist ég mikla og fjöl-
breytta reynslu. Reynsla innan
ráðuneytisins, samskipti við fjöl-
miðla, undirstofnanir, þingið, þing-
menn og fleira. Í ráðuneytinu eru
margir stórir málaflokkar sem ég
hef nú unnið innan um sl. tvö ár.
Öll reynsla nýtist í þessu starfi, líka
persónuleg reynsla. Margt mótar
mann og ég mun gera mitt besta til
að nýta mína reynslu til góðs.
Sérðu fyrir þér að gera stjórn-
mál að ævistarfi?
Nei, það geri ég nú ekki. Ég er sosum
rétt að hefja störf núna og veit ekki
hvað framtíðin býður upp á en jafn-
vel þótt ég sæti í þrjú kjörtímabil er
ég að þeim loknum rétt rúmlega fer-
tug og á þá, ef lífið lofar, nóg eftir af
starfsævinni. Enginn veit sína ævina
fyrr en öll er og mig langar að áorka
mörgu og prufa ýmislegt.
Hvar ólstu upp og hvernig var
æska þín?
Ég er fædd og uppalin á Akranesi,
neðri Skaga til að vera nákvæm.
Ég gekk í Brekkubæjarskóla og
æfði sund með ÍA í meira en ára-
tug. Sundíþróttin krefst mikils
tíma svo ég var svona til skiptis
í skólanum og í sundlauginni.
Krullurnar náðu sjaldan að þorna
í æsku. Ég hef alltaf átt yndislega
vini og naut mín í æsku. Amma
Dísa bjó nokkrum húsum frá mér
og ég var mjög mikið hjá henni.
Hún var rúmum 70 árum eldri
en ég og hafði mikil áhrif á mig. Í
barnæsku lék ég mér mikið með
Gumma vini mínum, við vorum
oftast í fjörunni að leika, lentum
stundum í háska en einhvern veg-
inn reddaðist það alltaf. Ég hef
verið í sama saumaklúbbnum í 20
ár og æskuvinkonurnar eru enn þá
þær bestu í dag.
Hvernig nærir þú þig andlega?
Kúpla mig út með því að veita syni
mínum (nú börnunum mínum) alla
mína athygli. Heimili mitt nærir
mig andlega, kaffibolli með góðum
vinkonum, slökun í heitu baði,
góður nætursvefn. Á sumrin nærist
ég í íslenskri náttúru.
En líkamlega?
Ég fer mikið í sund þótt ég syndi
allt of sjaldan, það er af sem áður
var. Svo eru göngutúrar með fjöl-
skyldunni notalegir. Það fer eitt-
hvað minna fyrir spinning og
lóðum.
Hver er fallegasti staður sem þú
hefur komið á?
Santorini.
Uppáhaldsborg utan land-
steinanna?
Ég bjó í Vínarborg og hún er uppá-
halds.
Hvert langar þig að ferðast?
Mig langar að sjá allan heiminn.
Ég mun ekki komast yfir það en
vonandi verð ég svo lánsöm að fá
að ferðast víða. Mig hefur alltaf
langað að koma til Ástralíu, ætlaði
þangað sem skiptinemi en mömmu
fannst það fulllangt í burtu (svona
ef ég myndi ílengjast). Svo myndi
mig langa að ferðast um Japan með
fjölskyldunni.
Hvernig verðu helgarfríum?
Ég ver helgarfríum almennt í bröns,
bakstur, sundferðir, tiltekt, góðan
mat og rauðvín. Ég elska helgarfrí.
Hvaða hljómsveit eða tónlistar-
mann spilar þú mest á Spotify?
Beyoncé og Nýdönsk.
Hvað er síðasta myndband sem
þú horfðir á á YouTube?
Reykjavík er okkar með Emmsjé
Gauta. Sonur minn var hissa á að
ég kynni lagið þegar ég tók undir
með honum og hann vildi í kjöl-
farið hlusta á lagið á YouTube. Hann
gerði hins vegar athugasemdir við
að Emmsjé blótaði u.þ.b. fjórum
sinnum í laginu. Ég sagðist koma
því til skila. Gauti kannski les þetta.
Hvert er uppáhaldsjólalagið?
Silent Night, Holy Night með
Mahaliu Jackson.
Stjórnmál verða ekki ævistarfið
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er fjórði þingmaður Norðvesturkjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hér er hún á heimili sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Myndir úr fjölskyldualbúminu: Þórdís Kolbrún á ferð um landið með syni sínum og barnsföður. Nöfnurnar Þórdís og Þórdís, amma og barnabarn, á Akranesi 1989. Stoltur stóri bróðir með litlu systur nýfædda en
dóttir Þórdísar fæddist rétt fyrir nýafstaðnar alþingiskosningar, seint í október. Og loks Þórdís með foreldrum sínum og ömmu við útskriftina úr lagadeild HR í júní 2012, þá með elsta soninn undir belti.
Þekktu þingmanninn Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfa-
dóttir er nýr
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í
Norðvesturkjör-
dæmi en þó enginn
nýgræðingur í
stjórnmálum. Hún
var sunddrottning á
Akranesi á unglings-
árunum en nýtur
sín nú betur í heita
pottinum. Þórdís
kemur syni sínum á
óvart með að kunna
textana við heitustu
rapplög dagsins.
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R48 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
1
-A
3
9
4
1
B
A
1
-A
2
5
8
1
B
A
1
-A
1
1
C
1
B
A
1
-9
F
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K