Fréttablaðið - 10.12.2016, Síða 52
Himneskt vörurnar fást í ríkulegu úrvali. Á vefsíðunni himneskt.is er að finna nánari upplýsingar um þær, uppskriftir og uppskriftamyndbönd.
„Ég er alin upp við lífræna hobbí
rækt foreldra minna og vandist
því til dæmis að skafa af matar
diskunum því að þau voru með
safnhaug til að búa til mold. Ég
hef gert það allar götur síðan. Ég
lærði síðar í Danmörku en Danir
hafa lengi verið framarlega í líf
rænni ræktun. Það hafði ekki
síður áhrif á mig,“ segir Sólveig,
eða Solla eins og hún er oftast köll
uð. Hún segir dönsk stjórnvöld sí
fellt vera að vinna að framgangi
lífrænnar ræktunar og vinna þau
nú að því að tvöfalda lífrænt land
búnaðarland fyrir árið 2020. „Við
erum algerir eftirbátar Dana á líf
ræna sviðinu. Það er ekki nóg að
búa á afskekktri eyju og halda að
eiturefnin blási bara burt. Þau fara
alveg jafn mikið á plönturnar og
ofan í jarðveginn og annars stað
ar. Við verðum því að gera mun
betur.“
Skipta beint við framleiðendur
Himnesktvörurnar voru settar á
markað árið 2009 og var ákveð
ið að fá þær vottaðar hjá íslensku
Vottunarstofunni Túni ehf. en að
baki því liggur mikil vinna og
þurfa vörurnar og allt ferli þeirra
að uppfylla strangar kröfur. „Við
skiptum beint við framleiðendur í
lífrænni ræktun á erlendri grund.
Vörunum er jafnframt pakkað er
lendis. Við köllum eftir ítarlegum
gögnum að utan, sendum til vott
unarstofunnar og sækjum þann
ig um vottun fyrir hverja einustu
vöru,“ segir Baldvin Valgarðsson,
matvælafræðingur og gæðastjóri
hjá Aðföngum, sem flytja vörurn
ar inn. „Auk þess hafa Solla og
Einar Þórisson, innkaupastjóri Að
fanga, farið og heimsótt nær alla
framleiðendur sem við skiptum
við,“ bætir hann við.
Heildræn hugsun
„Það er ótrúlega gefandi og
skemmtilegt,“ segir Solla „Það
ríkir sífellt meiri samkeppni á
milli lífrænna framleiðenda og
menn ganga sífellt lengra í að
hugsa hlutina heildrænt. Menn eru
því ekki eingöngu að horfa í rækt
unaraðferðirnar heldur leggja auk
þess upp með að nota sólarorku í
stað annarra orkugjafa, flokka allt
sem hægt er að flokka og gæta að
aðbúnaði starfsfólks svo eitthvað
sé nefnt.“
En hvers vegna ætti að velja
lífrænt? „Fyrir því eru bæði heil
brigðis og umhverfissjónarmið,“
segir Solla og eru umhverfis
sjónarmiðin henni ekki síst hug
leikin. „Fyrir iðnbyltingu var að
eins stunduð lífræn ræktun og
þá tók hún þann tíma sem þurfti.
Eftir hana fjölgaði fólki og fram
leiðslukrafan jókst. Þá fóru menn
að finna upp ýmsar aðferðir til að
flýta fyrir ræktuninni, nota áburð
til að bæta sprettu og efni til að
draga úr afföllum með tilheyr
andi áhrifum á náttúruna og heilsu
fólks,“ útskýrir Solla.
Hún heimsótti eitt sinn tómata
bóndann á Ítalíu sem framleiðir
lífrænu tómatana fyrir Himneskt
vörulínuna og gaf sú heimsókn
henni góða innsýn. „Hann hefur
aðeins leyfi til að framleiða tiltek
ið magn af tómötum á ári miðað
við það landsvæði sem hann hefur
yfir að ráða. Jarðvegurinn er ekki
talinn þola meira og þarf hvíld inn
á milli til að verða ekki næringar
snauður, en það er ein af grunnfor
sendum lífrænnar ræktunar. Sömu
kröfur gilda hins vegar ekki um
hefðbundna ræktun.“
Heilbrigð skynsemi
Solla segir að í hennar huga snú
ist þetta um heilbrigða skynsemi.
„Hvort viltu borða mat sem er
ræktaður með hjálp tilbúinna efna
og sprautaður með skordýraeitri
eða ekki?“
Viðráðanlegt verð
Solla segist því setja andlit sitt við
Himneskt með mjög góðri sam
visku og að hinn góði málstað
ur drífi hana áfram í starfi. „Þá
höfum við alltaf lagt mikla áherslu
á að vörurnar séu á viðráðan legu
verði enda finnst mér ömurlegt
til þess að hugsa að aðeins þeir
efnameiri geti valið lífrænt. Til
að halda verðinu niðri er versl
að beint við framleiðendur. Þann
ig getum við bæði valið það besta
sjálf og tökum út kostnaðarsama
milliliði.“
Að sögn Baldvins er lögð höfuð
áhersla á að vörurnar uppfylli
reglur Túns „Í okkar huga er mjög
mikilvægt að hafa vottunaraðilann
nálægan og að neytendur þekki til
hans.“
Hann segir ýmsar fyrirspurnir
og ábendingar koma frá neytend
um í gegnum vefsíðu Himneskt og
í beinum símtölum. „Það er okkar
reynsla að þeir sem velja lífrænt
séu meðvitaðir neytendur og vilji
eðlilega afla sér upplýsinga um
uppruna varanna, framleiðsluað
ferðir og annað í þeim dúr. Við
tökum öllum fyrirspurnum vel og
svörum eftir bestu getu.“
Á vefsíðu Himneskt er jafn
framt að finna uppskriftir og upp
skriftamyndbönd frá Sollu þar sem
hún sýnir hvernig nota má vörurn
ar sem fyrir sumum eru framandi.
„Það vita til dæmis ekki allir að það
getur verið gott að setja hveiti gras
í duftformi út í heimatilbúið súkku
laði til að tempra sætuna og annað í
þeim dúr,“ segir Solla og bendir á að
ný og endurbætt vefsíða fari í loftið
í byrjun árs. „Hún lofar svakalega
góðu og ég er mjög spennt fyrir því
að sýna afraksturinn.“
Mest seldu lífrænu vörurnar á Íslandi
Himneskt eru mest seldu lífrænu vörurnar á Íslandi í dag. Um 150 Himneskt-vörur eru í sölu og eru nær allar með vottun frá
Vottunarstofunni Túni ehf. Matarhönnuðurinn Sólveig Eiríksdóttir er andlit vörulínunnar en hún hefur lengi haft mikla ástríðu fyrir
lífrænum matvælum og kynnt hinar ýmsu matarnýjungar fyrir landsmönnum. Í hennar huga snýst lífræn ræktun um heilbrigða skynsemi.
Solla segist setja andlit sitt við Himneskt með mjög góðri samvisku og að hinn
góði málstaður drífi hana áfram í starfi. Baldvin segir lagða höfuðárherslu á að
vörurnar uppfylli reglur Túns. „Í okkar huga er mjög mikilvægt að hafa vottunar
aðilann nálægan og að neytendur þekki til hans.“ MYND/ANTON BRINK
LÍFRÆNT VOTTAÐ Kynningarblað
10. desember 20164
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
1
-B
2
6
4
1
B
A
1
-B
1
2
8
1
B
A
1
-A
F
E
C
1
B
A
1
-A
E
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K