Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 56
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
ÚTGEFANDI: 365 MIÐLAR | ÁBYRGÐARMAÐUR: Svanur Valgeirsson
UMSJÓNARMENN EFNIS: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir,
liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367
Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358
Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 SÖLUMENN: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 |
Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
Boðið verður m.a. upp á súkkulaði, humarsúpu, söl, reykta bleikju, tvíreykt hangi-
kjöt, makríl, lerkisveppi, geitaafurðir, fjallagrasaflatkökur, berjavörur, lífrænar
kryddsultur, hákarl og hamborgara í Hörpu um helgina. MYND/HELGA BJÖRNSDÓTTIR
Matarmarkaður Búrsins verð
ur haldinn í Hörpu um helgina
en hann hefur notið mikilla vin
sælda frá því hann var fyrst hald
inn árið 2011. Um helgina munu
um 50 smábændur og framleiðend
ur kynna fjölbreyttar afurðir sínar
fyrir gestum og gefa þeim kost á að
smakka á flestum þeirra. Úrvalið
er sem fyrr afar fjölbreytt og verð
ur m.a. boðið upp á sýrt grænmeti,
sjávarsalt og súkkulaði, tvíreykt
hangilæri, humarsúpu, söl og sinn
ep, reykta bleikju og rúllupylsu,
makríl og marmelaði, lerki sveppi,
geitaafurðir, fjallagrasaflatkökur,
berjavörur, lífrænar kryddsultur,
hákarl og hamborgara svo nokkr
ar vöru séu taldar upp.
Meðal þeirra framleiðenda sem
hafa verið með frá upphafi eru
hjónin Eygló Björk Ólafsdóttir og
Eymundur Magnússon sem saman
reka Móður Jörð í Vallanesi. Fyrir
tækið ræktar og framleiðir m.a.
ferskt grænmeti, sælkeravörur,
heilsuvörur, hrökkbrauð og aðrar
heilkornaafurðir.
UMGJÖRÐIN BREYST
Það eru þær Eirný Sigurðardótt
ir, oftast kennd við Búrið, og Hlé
dís Sveinsdóttir sem hafa skipu
lagt markaðinn frá upphafi. Það
var einmitt Eirný sem kom að
máli við þau hjónin á sínum tíma
vegna matarmarkaðar sem hún
vildi hafa á bílastæðinu fyrir
utan verslun Búrsins í Nóatúni
á sínum tíma. Eygló Björk segir
það aldrei hafa verið spurningu
um annað en að taka þátt enda
var þetta gert af miklum eldmóði
og ástríðu fyrir góðum mat. „Á
þessum tíma var enginn mark
aðsmenning í Reykjavík eða
beinn vettvangur fyrir sælkera
og áhugaverða íslenska vöru en
á þessum árum strax eftir hrun
var mikil gerjun í íslenskri mat
ELDMÓÐUR OG ÁSTRÍÐA
Um 50 bændur og smáframleiðendur kynna fjölbreytta framleiðslu sína á Matarmarkaði Búrsins í Hörpu um helgina.
Hjónin Eygló Björk Ólafsdóttir og Eymundur Magnússon frá Móður Jörð hafa tekið þátt í matarmarkaðinum frá upphafi.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Um 50 bændur og smáframleiðendur af öllum gerðum gera sér glaðan dag í Hörpu um helgina. MYND/HELGA BJÖRNSDÓTTIR
vælaframleiðslu. Þetta hafði á sér
mikinn ævintýrablæ, markaður
inn heppnaðist mjög vel þrátt
fyrir að við höfum þurft að halda
tjaldinu niðri í rokinu á köflum og
básinn færst úr stað um nokkra
metra á þessum örfáu tímum sem
hann stóð yfir. Ég held að allir
hafi skemmt sér konunglega þrátt
fyrir þetta, sýnendur sem gestir.“
Matarmarkaðurinn er haldinn
þrisvar sinnum á ári og hefur með
árunum þroskast, segir Eymund
ur. „Umgjörðin í dag gerir kröf
ur til framleiðenda um gæði og
ákveðna fagmennsku. Þær stöll
ur Eirný og Hlédís hafa mjög
skýra sýn á hvað þær vilja bjóða
upp á og eru að beita markaðnum
til þess að draga fram það sem
er sannarlega íslenskt og fram
leitt af ákveðnum hugsjónum í
þágu íslenskrar matarmenningar.
Fyrir okkur er það kærkomið að
ná góðu samtali við viðskiptavini
okkar bæði til að heyra hvað þeim
finnst, fá nýjar hugmyndir og út
skýra okkar framleiðslu svona
maður á mann. Einnig er gott að
styrkja tengsl við aðra framleið
endur. Það hefur t.a.m. orðið til
þess að þeir geta unnið saman eða
deilt þekkingu þegar á reynir.“
KYNNA NÝJAR VÖRUR
Eins og á fyrri mörkuðum munu
þau kynna nýjungar í bland við
eldri vörur. „Um helgina verðum
við með þrjár nýjar uppskriftir að
sýrðu grænmeti og nýtt kex úr ís
lensku byggi sem ætlað er á veislu
borð landsmanna. Þeir sem þekkja
kartöflur Móður Jarðar ættu að
hraða sér á markaðinn og gott ef
við verðum ekki með eitthvað af
fersku grænkáli líka.“
Í vetur ætla þau að leggjast
undir feld eins og hefð er fyrir og
taka sér stutt frí. „Einnig ætlum
við að þróa áfram matartengda
ferðaþjónustu sem fram undan er
í tengslum við Asparhúsið í Valla
nesi en það er hús sem við vorum
að byggja úr eigin timbri, trjám
sem plantað var árið 1986. Húsið
mun hýsa stækkandi vörulínu
okkar auk þess sem boðið verður
upp á léttar veitingar úr jurtarík
inu. Þangað eru allir velkomnir en
við opnum í apríl á næsta ári.“
Matarmarkaður Búrsins fer
fram í Hörpu í dag og á morgun,
sunnudag, milli kl. 11 og 17. Ókeyp
is er inn á markaðinn.
Nánari upplýsingar á Facebook
undir Matarmarkaður Búrsins.
Hjónin Eymundur og Eygló í Vallanesi
mæta í Hörpu um helgina.
1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R2 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ K Y N I N G A R B L A Ð ∙ H E L G I N
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
1
-8
A
E
4
1
B
A
1
-8
9
A
8
1
B
A
1
-8
8
6
C
1
B
A
1
-8
7
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K