Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 65
Draumastörf á lausu
Þjónustustjóri og sérfræðingur á skrifstofu
Nox Medical er leiðandi hátæknifyrirtæki á heimsvísu í þróun og framleiðslu á búnaði til greiningar á svefnröskunum. Vörur okkar bæta líf fólks með því að gera
svefngreiningar einfaldari og þægilegri. Nox Medical var stofnað fyrir 10 árum og í dag starfa um 50 manns hjá fyrirtækinu. Í gegnum tíðina hefur fyrirtækið hlotið
margskonar viðurkenningar og má þar nefna Útflutningsverðlaun forseta Íslands, Vaxtarsprotann, Fyrirmyndarfyrirtæki ofl.
Sérfræðingur á skrifstofu
Fjármálasvið
Nox Medical óskar eftir að ráða starfsmann í fjölbreytt og spennandi starf
sérfræðings á skrifstofu. Starfið er á fjármálasviði og viðkomandi heyrir undir
fjármálastjóra. Starfið bíður upp á möguleika til vaxtar og þroska í starfi hjá
vaxandi fyrirtæki í alþjóðlegu umhverfi.
STARFSSVIÐ OG ÁBYRGÐ
›› Ábyrgð og umsjón með birgðakerfi Navision
›› Aðstoð við starfsmenn innkaupadeildar og birgðahalds vegna birgðamála
›› Upplýsingagjöf til lagerstarfsmanna, framleiðsluteymis og innkaupadeildar
vegna pantana til afhendingar
›› Umsjón með stofnun vörunúmera og viðskiptamanna í Navision
›› Samskipti við viðskiptamenn og umsjón með pöntunum þeirra
›› Almenn skrifstofuumsjón og þjónusta við samstarfsmenn
›› Önnur tilfallandi verkefni í samráði við fjármálastjóra
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
›› Menntun á sviði viðskipta eða bókhalds skilyrði
›› Þekking og reynsla á birgðakerfum
›› Bókhaldsþekking og skilningur á bókhaldi
›› Mjög góð tölvukunnátta skilyrði, kunnátta á sviði Excel og Navision mikilvæg
›› Mjög góð kunnátta í ensku sem og geta til að tjá sig í ræðu og riti
›› Góð kunnátta í íslensku
›› Nákvæmni og skipulagshæfileikar í starfi
›› Mikil hæfni í mannlegum samskiptum sem og þjónustulund
›› Mikið sjálfstæði og frumkvæði í starfi sem og útsjónarsemi
UMSÓKNIR
Umsóknarfrestur er til og með 18. desember. Nánari upplýsingar um starfið
veitir Ragnheiður Dagsdóttir hjá Capacent á ragnheidur.dagsdottir@capacent.is
Umsækjendur eru beðnir um sækja um starfið á heimasíðu Capacent
á www.capacent.is
Þjónustustjóri
Markaðs- og þjónustudeild
Nox Medical óskar eftir að ráða þjónustustjóra sem ber ábyrgð á að byggja upp
og útfæra þjónustustefnu fyrirtækisins í samvinnu við markaðsstjóra. Hann
þarf að hafa ríka þjónustulund, ástríðu fyrir mannlegum samskiptum og djúpan
skilning á tækni. Starfið gæti krafist ferðalaga.
STARFSSVIÐ OG ÁBYRGÐ
›› Þróa og útfæra þjónustustefnu Nox Medical í samvinnu við markaðsstjóra
›› Veita viðskiptavinum og dreifingaraðilum framúrskarandi þjónustu
›› Veita viðskiptavinum tækni- og bilanagreiningarþjónustu
›› Vinna með sérfræðingum að flóknum þjónustuverkefnum
›› Útbúa þjónustuleiðbeiningar og annast viðhald á þeim
›› Útbúa og greina tölfræðilegar upplýsingar úr þjónustukerfum
›› Tileinka sér framúrskarandi skilning á vöruframboði Nox Medical
›› Þátttaka í öðrum tilfallandi verkefnum í markaðs- og þjónustudeild
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
›› B.Sc. gráða í tækni-, heilbrigðis-, eða viðskiptagreinum
›› A.m.k. 5 ára reynsla í þjónustu og/eða þjónustustýringu
›› Framúrskarandi samskiptahæfileikar og þjónustulund
›› Afburða enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli
›› Mikið frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
›› Nákvæmni
›› Geta starfað vel undir álagi
›› Ríkt sjálfstraust og góð framkoma
›› Skapandi hugsun og geta til að leysa flókin vandamál
UMSÓKNIR
Umsóknarfrestur er til og með 18. desember nk. Umsóknum
og ferilskrám skal skilað á netfangið careers@noxmedical.com.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingvar Hjálmarsson,
ingvar@noxmedical.com
Nox Medical | Katrínartún 2 | 105 Reykjavík | 570 7170 | info@noxmedical.com | noxmedical.com
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-A
8
8
4
1
B
A
1
-A
7
4
8
1
B
A
1
-A
6
0
C
1
B
A
1
-A
4
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K