Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 86

Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 86
| AtvinnA | 10. desember 2016 LAUGARDAGUR24 Þarftu að ráða starfsmann? RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. Útboð Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í verkið: Gamla höfnin Norðurgarður, 2. áfangi Bygging hafnarbakka 2017 Verkið felst m.a. í að reka stálþil, ganga frá stögum og ankerum, rífa núverandi trébryggju, fylla inn fyrir þil, steypa kantbita, leggja lagnir og steypa yfirborð bakka. Helstu magntölur eru : Rekstur stálþils 120 m Stög og ankerisplötur 42 stk Fyllingarefni 28.000 m³ Regnvatnslagnir 200 m Ídráttarrör fyrir rafstrengi 2.000 m Snjóbræðsla 4.000 m² Steypt þekja 4.000 m² Malbik 400 m² Verklok 15. nóvember 2017. Útboðsgögn verða afhent án gjalds á stafrænu formi með að senda beiðni með nafni bjóðanda, símanúmer og nafni tengiliðs á netfangið sigurdurgj@mannvit.is. Einnig er hægt að sækja gögnin á pappír endurgjaldslaust á skrifstofu Mannvits, Urðarðhvarfi 6, 203 Kópavogi frá og með þriðjudeginum 13. desember. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Faxaflóahafna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík, fimmtudaginn 12. janúar 2017 kl. 11:00. Innkaupadeild Ný verkefni í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Vesturbæjarskóli viðbygging. Eftirlit með uppsteypu og fullnaðarfrágangi ásamt breytingu á núverandi leikifimsal og kaffistofu kennara, forval nr. 13825. Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod FORVAL Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félaga- samtökum um verkefni sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins á sviði félagsmála. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 9. janúar 2017. Úthlutað verður eigi síðar en 28. febrúar 2017. Reglur um úthlutun styrkja sem félags- og húsnæðismála- ráðherra veitir samkvæmt safnliðum fjárlaga hverju sinni er að finna á vefsíðu velferðarráðuneytisins (www.vel.is). Veittir eru styrkir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf samkvæmt áherslum ráðherra hverju sinni. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Þá má m.a. veita til verkefna sem felast í því að: a. Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi. b. Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félags- manna. c. Bjóða upp á stuðning og ráðgjöf. Veittir eru styrkir til félagasamtaka sem starfa á sviði endurhæfingar, málefna fatlaðs fólks, forvarna, fræðslu og fjölskyldu- og jafnréttismála. Að þessu sinni verður lögð sérstök áhersla á verkefni sem eiga að: a. Efla svæðisbundið samráð á sviði aðgerða gegn ofbeldi og afleiðingum þess, sbr. samstarfsyfir- lýsingu þriggja ráðherra um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess (sjá nánari upplýsingar í auglýsingu á vef ráðuneytisins). b. Draga úr fátækt og félagslegum afleiðingum fátæktar. Ekki eru veittir styrkir eingöngu til rekstrar. Með rekstri er m.a. átt við rekstur skrifstofu, þ.m.t. greiðslu húsa- leigu. Mat á umsóknum Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir málefnasvið ráðuneytisins. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á: a. Gildi og mikilvægi verkefnis fyrir viðkomandi málaflokk. b. Að umsækjanda muni takast að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. c. Að verkefnið sé byggt á faglegum grunni. d. Að gerð sé grein fyrir því í umsókn hvernig staðið skuli að mati á árangri. e. Fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækj- andi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis. Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd þess verk- efnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina. Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is) Innskráning á mínar síður – þrjár leiðir: 1. Auðkenning með rafrænum skilríkjum á vef Island.is. 2. Auðkenning með Íslykli á vef Island.is. 3. Notandi velur flipann Nýskráning og skráir sig á vefinn á kennitölu sinni, gefur upp fullt nafn, heimilisfang og netfang og ákveður síðan lykilorð. Hafi notandi sótt um áður á Mínum síðum velur hann flipann Innskráning og skráir sig inn með einhverri ofangreindra aðferða. Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eft- ir ráðuneytum og stofnunum. Athugið að merkja við velferðarráðuneytið. Þar undir er umsóknareyðublaðið Styrkur af safnliðum fjárlaga 2017 – félagsmál. Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félagsmála Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknir á rafrænum eyðublöðum er að finna á vef ráðuneytisins. Reykjavík, 10. desember 2016 Útboð Framkvæmdadeild, fyrir hönd Akureyrarbæjar, óskar eftir tilboðum í LED götulýsingarlampa vegna endurnýjunar lýsingar í bænum. Lamparnir skulu henta fyrir lýsingu gatnakerfisins, stíga og bílastæða. Heimilt er að bjóða í allar gerðir lampa eða hluta þeirra. Samningstími er 3 ár. Útboðsgögn með nánari upplýsingum verða afhent rafrænt. Óska má eftir þeim með tölvupósti á netfangið vikingurg@akureyri.is. Tilboðum skal skila eigi síðar en kl. 13:00 fimmtudaginn 12. janúar 2017. Tilboðum má skila rafrænt á fyrrnefnt netfang eða í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 600 Akureyri. Tilboð verða opnuð strax að loknum skilafresti í fundarherbergi framkvæmdadeildar á 3. hæð Ráðhúss að viðstöddum bjóðendum sem þess óska. 1 0 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 5 2 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B A 1 -B C 4 4 1 B A 1 -B B 0 8 1 B A 1 -B 9 C C 1 B A 1 -B 8 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 5 2 s _ 9 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.