Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 92
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
Fanney hefur alla tíð haft áhuga á bakstri og eldamennsku og hafði gaman af að
fylgjast með í eldhúsinu sem barn. Þegar hún varð eldri fór hún svo að fikta sjálf í
eldhúsinu enda áhuginn mikill.
Vínrauðu flauelskökurnar hennar Elínar líta vel út á veisluborðinu. MYNDIR/MARÍA ELÍNARDÓTTIR
Svo lengi sem Fanney Rut Elínar-
dóttir man eftir sér hefur hún haft
áhuga á bakstri. Svo mikinn að
þegar hún var lítil var hún harð-
ákveðin í að giftast bakara. Ný-
lega kom út bók eftir Fanneyju,
Stóra smákökubókin, en segja má
að bókin sé fjölskylduverk því syst-
ir Fanneyjar, María Elínardóttir,
tekur allar myndir í bókinni og svo
er hún gefin út hjá Drápu sem er
útgáfa í eigu foreldra þeirra. „Hug-
myndin að bókinni kviknaði síð-
asta vor þegar pabbi fór að tala um
að það vantaði bók fyrir jólin hjá
Drápu. Við höfum bæði mjög gaman
af því að baka smákökur fyrir jólin
og því lá beinast við að hræra í smá-
kökubók,“ segir Fanney sem bakar
sjálf mikið fyrir jólin.
„Sumar uppskriftir eru meira að
segja bakaðar oftar en einu sinni,
þá á ég við lakkrístoppana sem yf-
irleitt klárast áður en ofninn nær að
kólna og piparmintu marengsinn, en
hann er oft gefinn sem aukagjöf eða
notaður til að skreyta pakka.“
Spurð að því hvort hún sé mikið
jólabarn segir Elín brosandi að það
sé óhætt að fullyrða það. „Á skalan-
um einn til tíu þá er ég sterk tólfa.
Mér líður best í umhverfi sem lítur
út eins og jólin hafi ælt rauðu og
grænu yfir svæðið og ég elska skrít-
ið, öðruvísi og óhefðbundið jóla-
skraut.“
Eins og sönnu jólabarni sæmir
heldur Elín ákveðnar jólahefð-
ir í heiðri. Hún fer til dæmis með
systkinum sínum niður að Tjörn
að gefa öndunum brauð á Þorláks-
messu þegar þau eru öll á landinu
á sama tíma. Elín er hjá foreldrum
sínum á aðfangadag og segir hún
þau vera ansi stíf á því að setjast til
borðs á slaginu klukkan sex, þegar
jólaklukkurnar klingja. „Og svo má
segja að það sé orðinn jólasiður að
eitthvert af systkinum pabba kemur
með síðasta pakkann til okkar eftir
að við erum byrjuð að borða, það
bara eru ekki jól ef það gerist ekki.
Í aðdraganda jólanna hittist stór-
fjölskyldan alltaf í laufabrauðsút-
SUMAR SORTIR
ÞARF AÐ BAKA OFT
Vínrauðar flauelskökur eru bæði fallegar og góðar og því tilvaldar á
kaffiborðið á aðventunni. Fanney Rut Elínardóttir bakar alltaf mikið
fyrir jólin og nýlega kom út Stóra smákökubókin eftir hana.
skurði þar sem við skerum út og
steikjum rúmlega hundrað kökur og
borðum svo hangikjöt og fleira eftir
puðið. Svo má kannski bæta við að
það sé orðin jólahefð hjá mér að
eyða alltof miklum tíma í að skreyta
pakkana sem ég gef ættingjum og
vinum,“ segir Elín og brosir.
Hún gefur hér uppskrift að vín-
rauðum flauelskökum sem hún
segir vera svolítið óvenjuleg-
ar því þær séu svo fallegar á lit-
inn. „Svona flauelsvínrauðar og
jólalegar. Auk þess eru þær mjög
góðar á bragðið og ekki flóknar í
bakstri.“
Skatan er komin
á Sjávarbarinn!
Erum byrjuð að framreiða ilmandi
skötu með öllu tilheyrandi.
Alla daga fram að jólum.
Afsláttur fyrir hópa.
Pantanir í síma 517 3131 og 696 5900.
Sjávarbarinn – Grandagarði 9 – sjavarbarinn.is
Skötuveisla
3.600 kr. fyrir
tvo til og með
16.des.
Klipptu flipann
út og taktu með
þér.
2
FYRIR
1
FYRSTI VINNINGUR ER ÓTRÚLEG
ÆVINTÝRAFERÐ FYRIR TVO TIL TÆLANDS
AÐ HEILDARVERÐMÆTI 658.000 KR.
Dregið föstudaginn
16. desember
ÁSKRIFENDA
LOTTERÍ
3X
Tælandsferð
fyrir 2
Tryggðu þér áskrift á 365.is eða í síma
1817 og þú ert komin/n í pottinn!
Gildir fyrir alla sjónvarpspakkaáskrifendur í nóvember og desember
VÍNRAUÐAR FLAUELSKÖKUR
200 g hveiti
20 g kakó
1 tsk. matarsódi
¼ tsk. salt
115 g smjör
150 g púðursykur
50 g sykur
1 stk. egg
1 msk. mjólk
2 tsk. vanilludropar
1-1 ½ msk. rauður matarlitur
180 g súkkulaðidropar auk
þeirra sem fara á kökurnar
eftir bakstur
Blandið saman þurrefnunum;
hveiti, kakói, matarsóda og salti í
stóra skál. Hrærið saman smjöri,
sykri og púðursykri þar til deig-
ið er rjómakennt. Bætið mjólk,
eggi og vanilludropum saman við.
Bætið að lokum matarlitnum út í
og hrærið þar til liturinn er jafn.
Bætið þessu næst þurrefnunum
varlega saman við á meðan hrært
er, líka súkkulaðidropunum. Hér
má bæta við matarlit ef óskað er
eftir skærrauðu deigi. Kælið í eina
klukkustund, að lágmarki. Má
vera allt að þrjá daga í ísskáp.
Hitið ofninn í 180°C. Takið um
1 ½ tsk. af deigi og mótið kúlur
á milli handanna. Hafið smá bil
á milli. Bakið í níu til ellefu mín-
útur. Þegar kökurnar eru tekn-
ar úr ofninum má þrýsta á þær til
að mynda í þeim sprungur. Setjið
að lokum súkkulaðidropa ofan á
heitar kökurnar. Leyfið kökunum
að kólna í nokkrar mínútur á plöt-
unni áður en þær eru teknar af.
Til að gera þessar gullfallegu
kökur dálítið jólalegri má sáldra
flórsykri yfir þær eftir bakstur. Þá
má líka nota hvíta súkkulaðidropa
ofan á kökurnar.
1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R10 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ K Y N I N G A R B L A Ð ∙ H E L G I N
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-8
1
0
4
1
B
A
1
-7
F
C
8
1
B
A
1
-7
E
8
C
1
B
A
1
-7
D
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K