Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 103
Aðalbjörg er alin upp við sjóinn
á Tálknafirði, umvafin fjöllum.
Orka og hreinleiki náttúrunnar
hefur alltaf heillað hana. „Ég
finn fyrir orkunni í jurtunum,
sjónum og fjöllunum og það var
örugglega engin tilviljun að ég
fór þessa leið í lífinu,“ segir hún.
„Síðan er yndislegt þegar maður
heyrir að varan hjálpi fólki.“ Að-
albjörg notar margar tegund-
ir villtra jurta og misjafnt er
hvaða hluti hverrar jurtar er
nýttur.
Vörur Villimeyjar eru 100%
lífrænt vottaðar frá Vottunar-
stofunni Túni en vottunin trygg-
ir öryggi neytandans um hrein-
leika vörunnar og að fyrirtækið
uppfylli þær kröfur um innihald
afurða, uppruna og aðgreiningu
hráefna, gæðastýringu og fleira
sem reglur kveða á um. Það er
mikið öryggi fyrir neytendur
að varan er vottuð. Við skráum
allt vinnsluferlið. Hver tínsla
fær framleiðslunúmer og síðar
þegar unnið er úr afurðunum þá
er skráð hvaða afurðir eru not-
aðar í hverja framleiðslu fyrir
sig og hún fær lotunúmer. Þann-
ig getum við fylgst vel með öllu
vinnsluferlinu,“ segir Aðalbjörg.
Eigin uppskriftir
Vinnslan fer fram á Tálknafirði
en það skiptir máli fyrir fersk-
leika og virkni varanna. Það
skiptir líka miklu máli á hvaða
vaxtarstigi hver jurt er tínd
og hvaða hluti hennar er nýtt-
ur. Aðalbjörg hefur þróað allar
uppskriftir sjálf og gætir að því
að tína jurtirnar þegar virkni
þeirra er mest.
Allar vörur Villimeyjar eru
ákaflega vinsælar og Aðalbjörg
fær oft að heyra frá ánægð-
um viðskiptavinum. „Ég bjó til
fyrsta kremið mitt vegna þess
að ég var alltaf kvalin af vöðva-
bólgu í öxlum. Ég prófaði alls
kyns krem og olíur án árangurs.
Það var ekki fyrr en ég hafði búið
til Vöðva- og liða Galdur sem ég
fór að finna fyrir betri líðan.
Núna gæti ég ekki verið án þess-
ara vara,“ segir Aðalbjörg. „Ég
bjó til smyrsli, olíur og jurta-
seyði í fimmtán ár en eingöngu
fyrir fjölskyldu og vini. Virkni
varanna spurðist út og fólk hvatti
mig mjög til að setja þær á mark-
að. Allar vörurnar eru lengi á
prufutíma áður en þær fara í
sölu,“ segir hún.
Lífræn vottun
„Þegar ég tók áskorunum
um að setja vörurnar á
markað fór ég strax í að
sækja um lífræna vottun
en það ferli tekur nokk-
urn tíma meðal annars
vegna þess að landsvæði
sem sótt er um vottun á,
þurfa þriggja ára aðlög-
un. Fjölskylda mín starf-
ar með mér í fyrir tækinu
og við tínum jurtirnar
eingöngu í Tálknafirði og
Arnar firði. Það þarf að
passa vel upp á náttúruna,
fara vel með landsvæðið
og hvíla svæði milli ára
til að raska ekki tegunda-
samsetningu jurtanna á
tínslusvæðum,“ útskýrir
hún. „Landeigendur hafa
stutt okkur ómetanlega
í þessu. Þeir vita að við
pössum vel upp á þetta.“
Vörur Villimeyjar eru
smyrsli, olíur og eplaedik.
Þær heita allar Gald-
ur: Vöðva- og liða Gald-
ur, Æsku Galdur, Sára
Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, eigandi og stofnandi Villimeyjar. Hún hefur sjálf þróað allar uppskriftir.
Lífrænt vottuð vara sem gerir gagn
Aðalbjörg Þorsteinsdóttir hefur þróað og framleitt vörur frá árinu 1990. Hún setti fyrirtæki á laggirnar árið 2005 og vörur hennar eru
löngu orðnar þekktar undir nafninu Villimey. Áhuginn á jurtum og áhrifamætti þeirra vaknaði á unga aldri í Tálknafirði.
REYNSLUSÖGUR SEM BORIST HAFA
Galdur, Húð Galdur, Fóta Gald-
ur, Vara Galdur, Bumbu Gald-
ur, Bossa Galdur, Unga Galdur,
Berja Galdur, Hvannar Galdur
og Birki Galdur.
Ótrúleg virkni
Aðalbjörg segir að það sé stund-
um árstíðabundið hvaða vörur
séu vinsælastar, sem dæmi segir
hún að Húð Galdurinn taki kipp á
haustin þegar fólk fær kuldaex-
em en stundum rjúki sumar teg-
undir allt í einu út, „Líklega er
það virknin í vörunum sem þá fer
manna á milli. Fólk notar vörurn-
ar til að bæta heilsuna vegna ým-
issa vandamála, vöðvabólgu, lið-
verkja, sprunginna ilja, sveppa-
sýkinga, þurrar húðar, brenndra
bossa og alls kyns vandamála
eða bara til að líða betur og fyr-
irbyggja.
Okkur er mjög umhugað um
að fólk sé meðvitað um að það
sem borið er á húðina fer inn í
blóðrásina, sérstaklega hjá verð-
andi eða nýbökuðum mæðrum og
börnum en öll kremin og olíurnar
má nota fyrir allan aldur. Þetta
eru svo hreinar vörur og þær
henta öllum.
Fyrir nokkrum árum upp-
götvaðist að Fóta Galdur þurrk-
ar upp flökkuvörtur sem börn fá
oft á leikskólum. Ég hef heyrt
frá foreldrum sem hafa próf-
að að bera kremið á vörtur með
þessum góða árangri. Eins hafa
vörtur á höndum og fótum horf-
ið þegar hann hefur verið bor-
inn á og plástur settur yfir til
að kremið nái að liggja við. Það
eru ótrúlegar reynslusögur sem
ég fæ frá fólki og það er mjög
ánægjulegt,“ segir Aðalbjörg.
„Það heldur okkur gangandi því
oft hefur róðurinn verið erfið-
ur því mjög mikil vinna er að
baki þessu öllu, meiri en fólk
getur ímyndað sér. Ég veit að
Sára Galdur hefur ótrúlega góð
áhrif á brunasár, skurði eftir að-
gerðir og legusár. Fóta Galdur
hefur góð áhrif á sveppasýkingu
og Vöðva- og liða Galdurinn er
alveg magnaður, hreint ótrú-
leg virkni á bólgur og alls kyns
verki. Ég gæti endalaust talið
upp svona dæmi sem fólk hefur
sagt okkur frá. Æsku Galdurinn
er andlitsolía, borin á kvölds og
morgna sem dag- og næturkrem.
Samkvæmt rannsóknum inni-
heldur hún hátt hlutfall andoxun-
arefna og hægir því á öldrun húð-
arinnar. Hún inniheldur ekki vatn
og því er hún frábær vörn í kulda
og frosti auk þess að gefa henni
góðan raka.
Matís rannsakaði vörurnar og
fengum við frábærar niðurstöð-
ur,“ segir Aðalbjörg og bendir á
að fólk sé orðið mun meðvitaðra
um hreinar vörur í dag en fyrir
tæpum tólf árum þegar vörurnar
fóru á markað. „Kemísk efni fara
inn í blóðrásina og fólk vill ekki
þessi aukefni, allra síst fyrir börn-
in sín,“ segir hún.
Vörur Villimeyjar eru nýlega
komnar í öskjur og eru því fal-
leg gjafavara við öll tilefni. Þær
eru fáanlegar á heimasíðunni
www.villimey.is og í mörgum
verslunum um land allt.
FÓTA GALDUR
„Dóttir mín fékk í vetur mjög mikið af flökkuvört-
um og var mér þá bent á Fóta Galdur. Ég bar á hana
þrisvar á dag og á einum mánuði hurfu allar vört-
urnar. Ég var í skýjunum að geta læknað þetta með
náttúrulegum efnum. Ég mæli hundrað prósent með
þessu kremi.“ Berglind.
VÖÐVA- OG LIÐA GALDUR
„Ég er hjúkrunarfræðingur og sinni heimahjúkrun.
Meðal annars heimsæki ég sjúklinga sem hafa verið
í liðskiptum á hnjám og bíða eftir aðgerð á mjöðm-
um. Þessi bið er oft löng og skjólstæðingur minn
með slæma verki. Hann fann það upp hjá sjálfum sér
að bera Vöðva- og liða Galdur á hnén fyrir nóttina.
Það er með ólíkindum að sjá muninn eftir að hann
fór að nota kremið reglulega, sleppir göngustaf og
grind. Einnig talar hann um minni verki og betri hvíld.
Gaman að upplifa að einhver söluvara standi undir
væntingum og gefi sýnilega mun.“ Erna.
FÓTA GALDUR
„Ég fékk sveppasýkingu á fót og í nögl á fæti. Ég var
settur á dýrt sveppalyf í þrjá mánuði en sýkingin kom
aftur. Ég ákvað að prófa Fóta Galdur. Bar hann vel á
kvölds og morgna og var ekkert að spara, passaði
upp á að klippa nöglina oft svo að áburðurinn kæm-
ist vel undir og ofan á hana. Ég bjóst ekki við því sem
gerðist. Á þriðju viku fór ég að sjá mun á nöglinni og
húðin var orðin góð. Á þremur mánuðum er svepp-
urinn farinn og nöglin gróin heil fram. Nú eru tærn-
ar fínar og ég ber Fóta Galdur reglulega á, til að fyrir-
byggja að ég fái aftur sýkingu.“ Þorsteinn
BOSSA GALDUR
„Verð að hrósa ykkur fyrir Bossa Galdur. Dóttir mín
er í tanntöku og því fylgir oft rauður bossi. Ég not-
aði Bossa Galdur frá ykkur þar sem hann er tau-
bleiuvænn og gerir þær ekki vatnsheldar. Strax dag-
inn eftir var roðinn farinn og sárin eru að gróa. Við
mæðgur erum mjög ánægðar með það.“ Thelma
Ég finn fyrir orkunni í
jurtunum, sjónum og
fjöllunum og það var
örugglega engin tilviljun
að ég fór þessa leið í
lífinu
Kynningarblað LÍFRÆNT VOTTAÐ
10. desember 2016 11
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
1
-B
7
5
4
1
B
A
1
-B
6
1
8
1
B
A
1
-B
4
D
C
1
B
A
1
-B
3
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K