Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 110
Innblástur í
innpökkun
Fréttablaðið fékk hönnuði og listafólk til að veita lesendum kærkom-
inn innblástur í innpökkun jólagjafa. Hugmyndir þeirra eru ólíkar.
P arið Helga Friðriks-dóttir og Orri Finn-b o g a s o n v i n n u r myrkranna á milli í jólaösinni en nýtur þess að upplifa sig
eins og hjálparsveina jólasveins-
ins í klassískri jólasögu. Jólin eru
sérstök í ár því þau eiga von á
jólabarni og Helga er sett þann
25. desember. Þau pökkuðu inn
skartgripum úr nýrri línu, Mila-
gros, sem er spænska orðið yfir
kraftaverk, og finnst hæfa að láta
fegurðina blasa við í stað þess að
fela hana.
Hugmyndina að nýju línunni
fengu þau á ferðalagi um Suður-
Ameríku. Hún heitir Milagros,
eða kraftaverk upp á spænsku. Í
þessum heimshluta þekkist einnig
að orðið sé notað yfir áheitagripi.
„Þetta eru litlir munir sem fólk
leggur á helga staði og biður fyrir
einhverjum,“ segir Orri og segir
munina í formi líkamshluta eða
líffæra. „Það er af því að biðjand-
inn biður oft um bata af veikind-
um, líkamlegum eða andlegum,“
segir Orri og nefnir til dæmis að
ef munur í formi hjarta sé lagður
á helgan stað megi biðja um bata
af ástarsorg.
Hann segir þau Helgu hafa leikið
sér að því að nota form manna-
beina sem var til siðs að nota til
skrauts í menningarheimum Inka
í Perú. „Skartið er úr silfri og bronsi
og hjörtun úr gulli. Við bættum
svo ferskvatnsperlum inn í með
gullhjörtunum sem gerir skart-
gripina rómantíska í andstöðu
við myrkari stemninguna í bein-
unum,“ útskýrir hann.
Hvernig er jólaösin í ár? Er mikið
að gera?
„Jólaösin byrjar aldrei fyrr en
upp úr miðjum desember og í
skartgripabransanum oft ekki
fyrr en nokkra daga fyrir aðfanga-
dag en fólk er byrjað að koma og
skoða og fá jólagjafahugmyndir.
Það er hins vegar brjálað að gera
hjá okkur við smíðina, á verkstæð-
inu okkar byrjar jólaundirbún-
ingurinn strax í ágúst. Í desember
er unnið myrkranna á milli, allt
skartið er smíðað á verkstæðinu
okkar sem er staðsett inn af versl-
un okkar á Skólavörðustíg 17a. Það
er mjög hátíðleg stemning í mið-
Fegurðin blasir við
Helga og Orri eiga von á barni á jóladag. Fréttablaðið/SteFán
Hér sést í fallega muni sem eru gefnir. Skartið er úr nýrri línu. Fréttablaðið/SteFán
Þær Hildur Sigurðar-dóttir og Ólöf Birna Garðarsdóttir hjá Reykjavik Letterpress notuðu prentaðan jólapappír og merki-
miða úr smiðju sinni með greni
og grænum og kopartónum.
„Við notuðum okkar eigin jóla-
pappír, en í ár gerðum við tvær
tegundir og prentað er á báðar
hliðar pappírsins, svo í raun eru
munstrin fjögur,“ segir Hildur Sig-
urðardóttir, annar eigenda Reykja-
vik Letterpress, um það hvernig
þær pökkuðu inn jólagjöfum að
sínum hætti. „Merkimiðar í stíl.
Litasamsetningin er grænir tónar
og kopar, með mistilteini og greni,
sem er afar hlýlegt og fallegt,“ segir
Hildur.
„Jólin eru í algleymingi hjá
okkur á þessum tímapunkti. Ásamt
því að vera að kynna nýjar vörur,
bæði jólalínu sem samanstendur
af t.d. jólapappír, merkimiða, jóla-
korti og svo heilsársvörur, eins og
minnisblokkir og dagatal fyrir árið
2017, þá er mikið um prentverk-
efni fyrir aðra. Þar má helst nefna
gjafabréf sem við erum að prenta
fyrir hin ýmsu fyrirtæki, enda eru
gjafabréf alltaf voða góð og sniðug
Hlýlegt o g fallegt
Hildur Sigurðardóttir og Ólöf birna Garðarsdóttir pökkuðu inn gjöfum fyrir Fréttablaðið og
nota meðal annars pappír, furu og mistiltein. Fréttablaðið/ernir
Yfirhönnuður Tulipop, Signý Kolbeinsdóttir, hefur nóg að gera þessa dagana. Fram undan eru flutningar til New York þar sem fyrirtækið opnar
skrifstofu. Hún elskar gamalt jólaskraut
og leyfði því að njóta sín ásamt eigin
hönnun á pakkanum.
„Ég elska gamalt jólaskraut! Jóla-
skrautið sem er á pakkanum er eitt-
hvað gamalt sem ég fann í Góða hirð-
inum,“ segir Signý Kolbeinsdóttir,
yfirhönnuður og eigandi Tulipop,
um gjöfina sem hún skreytti fyrir les-
endur Fréttablaðsins. „Ég átti þennan
rauða borða svo bara skellti ég Fred og
nokkrum sveppum sem gera allt flott-
ara. Jólapakkar eiga fyrst og fremst að
vera girnilegir. Það er best ef það sést
að maður hafi lagt svolítið á sig við að
pakka inn gjöfinni. Gott ef maður á eitt-
hvert flott skraut til að skreyta þá með.
Þannig að ef og þegar ég hef tíma til að
dunda í jólapakkapökkun þá vil ég hafa
þá svona „more is more“ þegar kemur
að jólapökkum!“
Hvað er í brennidepli hjá þér þessa
dagana hjá Tulipop?
„Ég að leggja lokahönd á nýja vatns-
brúsahönnun. Ný heimasíða er í bígerð
og svo er ég líklega að fara í skreppitúr
til Skotlands að hitta animation-liðið
okkar sem við erum að vinna með
þessa dagana að æsispennandi teikni-
myndagerð.
Svo eru flutningar til New York
mjög ofarlega á lista, en við erum að
opna skrifstofu þar og ég flyt þangað
með fjölskyldunni í byrjun næsta árs!“
Hvaðan færðu innblástur?
„Héðan og þaðan. Fólki kannski
aðallega.“
Hvernig er jólaösin hjá hönnuði eins
og þér, er mikið að gera?
„Já, það er frekar mikið að gera bara
líklega eins og hjá flestum. Kannski sér-
staklega mikið núna út af flutningum.“
Hvernig verða jólin hjá þér? Ertu
mikið jólabarn? Ertu með fastar hefðir?
„Við erum yfirleitt heima en verðum
hjá mömmu um jólin í þetta sinn. Þar
munum við mamma elda jólasteikina
saman, örugglega Wellington-steik.
Þegar ég var lítil þá var alltaf rjúpa
sem mér finnst ótrúlega góð á bragðið
með brúnuðum kartöflum og rauð-
káli. En sú hefð dó, ég hef ekki falast
eftir rjúpum eftir algera martraðar
rjúpnahamflettingu ein jólin. Allt í
fjöðrum og blóði og ég endaði á að
hringja grátandi í pabba og bað hann
blessaðan um að klára verkið fyrir
mig.
Eftir það hefur það verið alls konar.
Einu sinni hnetusteik, þegar ég ákvað
að gerast grænmetisæta, ætli það hafi
ekki verið eftir rjúpnamartröðina?
hamborgarhryggur, hreindýrakjöt og
svo núna Wellington-steikin þriðja árið
í röð. Kannski það sé orðið að hefð?“
Annars finnst Signýju jólaösin svo-
lítið erfið. „Það er of mikil pressa, það
þarf allt að vera svo fullkomið og allir í
jólaskapi. Ég er að vinna í þessu.“
Jólapakkar eiga að vera girnilegir
Signý Kolbeinsdóttir pakkar inn gjöf og notar gamalt jólaskraut og eigin hönnun, fígúruna Fred. líflegur og litríkur pakki.
Fréttablaðið/ernir
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r54 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-7
7
2
4
1
B
A
1
-7
5
E
8
1
B
A
1
-7
4
A
C
1
B
A
1
-7
3
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K